Börn og menning - 01.04.2014, Qupperneq 35

Börn og menning - 01.04.2014, Qupperneq 35
Eldar kveiktir í Gerðubergi 35 fyndnar og skemmtilegar barnabækur. Þetta hefði síðan orðið að kröfu sem hún hefði á endanum orðið þreytt á að uppfylla og þess vegna hefði hún snúið sér að því að skrifa fyrir fullorðna. Hún væri stundum spurð að því hvort ekki væri miklu erfiðara að skrifa fullorðinsbækur en barnabækur en auðvitað væri það mikill misskilningur. Lítill munur væri á ritstörfunum því þættirnir væru þeir sömu; sögupersónur, sögusvið og söguþráður. Yrsa sagðist hins vegar finna mikinn mun á áhuga fjölmiðla eftir að hún hefði farið að skrifa fyrir fullorðna. Það hefði stundum komið fyrir að tekin voru við hana viðtöl sem barnabókahöfund en það væri ekkert í líkingu við það sem nú væri. Líklega endurspeglaði áhugi fjölmiðla viðhorf almennings, áhuginn á barnabókum væri ekki almennur. Yrsa kom líka inn á samskiptin við lesendur og sagði að börnin væru mjög óvægin. Ef sagan næði þeim ekki samstundis færu þau bara að hugsa um eitthvað annað. Börnin væru hrein og bein og spyrðu krefjandi og áhugaverðra spurninga. Fullorðnir lesendur spyrðu hins vegar klassísku spurningarinnar: „Where do you get your ideas from?" Þeir ættu það til að gefa óspart hrós en líka að rífa niður, sérstaklega ef þeir væru undir áhrifum áfengis. Oft vildu þeir líka gauka að höfundum alls konar söguefni. Yrsa lagði ríka áherslu á að góð og breið flóra barnabóka væri hagsmunamál allra höfunda og það væri mikilvægt að barnabækurnar hættu að læðast meðfram veggjum. Yrsa var spurð að því úr sal hvort hún gæti hugsað sér að fara að skrifa aftur barnabækur. Hún svaraði því til að það kæmi vel til greina. Hún hefði þörf fyrir að skipta reglulega um bókmenntategund, hefði fikrað sig frá spennusögum yfir í hrollvekjur og aldrei væri að vita nema barnabækurnarfæru aðfreista hennaraftur. Af bleiku skýi í blákaldan veruleikann Marta Hlín Magnadóttirog Birgitta Elín Hassell, stofnendur bókaútgáfunnar Bókabeitunnar ehf., voru síðastar á mælendaskrá. Þær fjölluðu um þær áskoranir sem nýgræðingar í útgáfu unglingabóka standa frammi fyrir, en eins og titillinn á erindi þeirra gefur til kynna hefur lendingin úr bleika skýinu verið allharkaleg. Þær stöllur kynntust í námi í náms- og kennslufræðum og beindist áhugi beggja að bókmenntakennslu. 1 rannsóknarvinnu fyrir M.ed.-ritgerðir sínar komust þær báðar að þeirri niðurstöðu að besta leiðin til að efla yndislestur barna og unglinga væri að láta þau hafa spennandi og skemmtilegar bækur. Annað sem skipti máli væri að þau hefðu sjálf eitthvað um það að segja hvað þau læsu sér til ánægju. Val væri lykilatriði í að efla lestraráhuga og þær teldu að í vali á bók væri fólgin ákveðin sköpun. Undirstaða þess að börn og unglingar geti valið bækur eftir áhugasviði er að bókaflóran sé mikil að vöxtum og fjölbreytt. Mörtu og Birgittu fannst sárlega vanta afþreyingarbækur í flóruna og þær settust því niður, fullar af eldmóði og hugsjón, og hófu ritstörf. Árangurinn af þeirri vinnu var fyrsta bókin í Rökkurhæðaflokknum, sem þær líta sjálfar á sem lestrarþjálfunarbækur fyrir stráka og krakka sem lesa lítið. Þær hafa þá sannfæringu að þarna úti sé hin eina og sanna bók sem kveiki lestraráhuga hvers og eins. Þess vegna sé mikilvægt að gefa út margar og fjölbreyttar bækur. Með hugsjónina að leiðarljósi stofnuðu Marta og Birgitta útgáfufyrirtækið Bókabeituna, þar sem þær eru allt í öllu; rithöfundar, þýðendur, ritstjórar og starfsmenn á plani. Þrátt fyrir að þær gegni öllum þessum störfum án þess að taka fyrir þau laun er staðan sú að útgáfan stendur ekki undirsér. Birgitta sýndi ráðstefnugestum svart á hvítu alla verkþætti sem tilheyra útgáfu einnar bókar og kostnaðinn sem þeim fylgir. Blákaldur veruleikinn blasti við; þrátt fyrir prýðisgóða sölu á Rökkurhæðabókunum standa tekjurnar ekki undir kostnaðinum. Einhvern veginn þarf að auka söluna og áskoranirnar sem þær standa frammi fyrir eru meðal annars þessar: Hvernig á að markaðssetja efni sem neytandinn kaupir ekki sjálfur? Hvernig er hægt að gera lestur samkeppnishæfa tómstundaiðkun? Umræðurnar sem fóru i hönd snerust einkum um þessar áskoranir því það eru ekki einungis forleggjararnir sem standa frammi fyrir þeim heldur allir þeir sem vinna við að efla lestraráhuga barna og unglinga. Þrátt fyrir góða viðleitni tókst ekki að leiða málin til lykta á þessari Gerðubergsráðstefnu en það leyndi sér ekki að umræðurnar kveiktu í þátttakendum. Gerðubergsráðstefnan er viðburður í Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Að ráðstefnunni standa Rithöfundasamband íslands, IBBY á íslandi, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Félag fagfólks á skólasöfnum, Upplýsing - félag bókasafns- og upplýsingafræða og Menningarmiðstöðin Gerðuberg. Guðlaug Richter

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.