Studia Islandica - 01.08.1937, Page 5

Studia Islandica - 01.08.1937, Page 5
I. HANDRIT OG ÚTGÁFUR. Af sögunni eru til tvær gerðir. Þær hafa myndazt á 13. öld eða að sumra ætlun fyrr. Samanburður gerð- anna er merkilegt rannsóknarefni. Önnur er ekki heil. Hún er geymd í leifum skinnbókarinnar AM 561, 4to, frá því um 1400. Hin er ekki varðveitt heil nema í pappírshandritum frá lokum 17. aldar og yngri. En öll pappírshandrit sögunnar eru runnin frá einu glöt- uðu afriti af 15. aldar skinnbók, sem hefur eyðilagzt á 17. öld, nema fáein blöð, þar af þrjú úr Ljósv., varð- veitt í AM 162 C, fol. Til hægðarauka eru þessar tvær skinnbækur og gerðir þeirra kallaðar A og C. Þegar þörf er á nákvæmni, er táknaður með C* texti C-gerð- arinnar á öllum þeim köflum, sem ekki eru á s'kinnblöð- um .AM 162, 4to. Útgáfur með handritakönnun hafa aðeins verið gerð- ar tvisvar, báðar í Kaupmannahöfn, 1830 og 1880. Fyrri útgáfan fylgir að mestu afargölluðu pappírs- handriti. Seinni útgáfan, sem hér verður vitnað til ein- göngu,1) er gerð eftir C* að meiri hluta. Á tveim köfl- um er A aðalhandrit, en miðbálkur þeirrar gerðar er aðeins prentaður í viðauka við söguna. A og C eru samhljóða í 1.—4. kap. að undanteknum lítils háttar orðamun og því, að þetta er allt einn kapí- tuli í A. Móti 5.—18. kap. í C koma ekki meir en þrír 1) Vitnað i kap. og línu. Þar sem A hefur ekki enn verið gef- in út með eigin kapítulatali, leyfi ég mér að vitna til þeirrar gerðar eins og þar væru sömu kapítular og í C*, þó að raunar sé mikill munur. 1*

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.