Studia Islandica - 01.08.1937, Side 26

Studia Islandica - 01.08.1937, Side 26
24 skiptin og setti kapítulaskipti í kap. 18iG, þar sem Þórir Helgason er úr sögunni. Það gerir hann ekki. Á því fæst ekki eðlileg skýring nema sú, að hann sé háður kapítulaskiptum í frumriti, þar sem engin þáttaskipti voru.1) Þess kyns ósamkvæmni er algengur vottur um rittengsl. 5. Samskeyti C 13.—18. við framhald sögunnar gefa allt aðra hugmynd en þá, sem vakti fyrir Liestöl (og þar áður Erichsen), að eyða í frumriti hafi valdið því, þegar frábrugðni kaflinn var settur inn í Ljósv. Þetta er góðkunn skýringarleið fyrir ritskýrendur í vand- ræðum, en hér er hún ótæk. Samskeytin í lok frá- brugðna kaflans (hvort sem það væri A eða C) sýna ekki brotalöm, heldur óslitið textasamhengi. C rennur hægt og hægt saman við A, unz innskotum og breyt- ingum lýkur seinast í 18. kap. Þarna kemur ekki til mála önnur skýring en að höfundur íaukans hafi haft frumtextann á skrifborðinu, en vikið þó frá honum, þar sem honum þóknaðist.2) 1) Kapítulaskiptin eru þó ekki á sama stað og' í A, heldur litlu fyrr og sýnilega sett áður en búið var að ákveða, hvað rúmast ætti í næsta kapítula (18. kap.). Þeg'ar Guðmundur hsfur fellt dóminn yfir Þóri, kemur samstundis að ráðningu Rindils í A. Þarna skilur höf. C-gerðar á milli og setur strax kapitula- skiptin. Að því búnu fer hann að raða í næsta kap. og afræður að taka utanferðir Þóris á undan ráðningu Rindils, en þykir ekki taka því að setja ný kapítulaskipti við lok utanferðanna í 1810. 2) Hér skulu borin saman textabrot frá þeim stað. Um leið gefa þau nokkra hugmynd um, hvers eðlis orðalíkingarnar eru og afbrigði textanna. Afbrigðin eru skáletruð. A Rindill stóð upp ok gekk út. Hann tók steina tvá ok lagði upp á vegginn ok lét lokur frá hurðum. En ekki þótti honum gagn í, er konurnar vóru á gangi, ef þeir Guðmundr kasmi. C Síðan sofnaði hann (Þorkell) — — Ok er myrkt var orðit, reis Rindill upp ok skaut frá lokum. Síðan gekk húsfreyja eptir gólfi ok útar í öndina ok mælti: „Varð svá þó!“ ok lét

x

Studia Islandica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.