Studia Islandica - 01.08.1937, Blaðsíða 6

Studia Islandica - 01.08.1937, Blaðsíða 6
4 kíipítular í A og virðast aldrei hafa verið fleiri. Svo er mál með vexti, að í A er eyða, sem ætti að samsvara kap. 42i—13i30 í 'C, en hefur aldrei rúmað nema lítinn hluta þess, eins og brátt skal sýnt. Eftir eyðuna og næstum til loka 18. kap. eru gerðirnar frábrugðnar bæði að orðfæri, efni og kapítulaskiptum. Síðan verða þær aftur nálega samhljóða, unz A þrýtur seint í 21. kap. C er alls 31 kap. (sum hdr.). Efni 10 síðustu 'kapí- tulanna hefur fylgt sögunni frá öndverðu, og ekkert bendir til annars en að A og C hafi þar verið samhljóða. Hlutverk þessarar greinar er að rekja mismun gerð- anna og skýringar fræðimanna á honum, reyna að finna eðlilegri skýringar og sjónarmið og loks að neyta þeirra til að leiða í ljós einhverja vitneskju um samn- ingaraðferðir sagnaritaranna. Fyrstu örðugleikarnir, sem mæta manni, stafa ekki frá vandræðaástandi handritanna, heldur útgáfunni 1880. Gerðunum er þar ruglað saman á úreltan og óverjandi hátt. A er fylgt í kap. 1—42i og 19—2179, af því að texti þeirrar bókar er elztur og beztur. En í 13.—18. kap. hafa C og pappírshandritin lengri texta en A, og er þeim texta þess vegna hleypt inn í megin- mál sögunnar. Samsvarandi kafli í A er slitinn þannig úr sambandi og nýtur sín ekki í viðaukanum. Allt, sem vantar í A, er ennfremur fyllt eftir C. Kapítulatal er tekið eftir nokkrum pappírshandritum C-gerðarinnar. Fyrirsögnin, Ljósvetninga saga, er tekin eftir A. Undir- titlarnir „A. GuðmuncLar saga ens ríka“ og ,,B. Eyjólfs saga ok Ljósvetninga“ (við upphaf 22. kap.) eru til- búningur útgefanda og sömuleiðis allar fyrirsagnir nema ein fyrir þeim þáttum, sem hann fann eða þótt- ist finna í 1.—21. kap. sögunnar. Þessir gallar hafa allir leitt illt af sér: Þáttaskipt- ingin gérði það fyrst, í þáttakenningu Bááths,1) en þar 1) Studier öfver Kompositionen í nág'ra islándska attsagor, Lund 1885. Annars kemur það rit lítið við þessari grein.

x

Studia Islandica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.