Studia Islandica - 01.08.1937, Side 25

Studia Islandica - 01.08.1937, Side 25
23 rökstyðja frekar, enda þótt þetta sé, eins og hann tek- ur fram sjálfur, „eina örugga dæmið“ um Islendinga sögu í tveim munnlegum gerðum. — Það er of lang- -sótt skýring. Slík einsdæmi eru alltaf tortryggileg. Það er nærtækari og auðveldari skýring, að C 13.—18. sé saminn upp úr A skráðri, heldur en að sögubrigðin séu (eingöngu) munnleg og skráð óháð hvort öðru. 2. Öll þekking, sem máli skiptir í A, kemur fram í C, svo að A er þannig lík því, sem álykta mætti, að frumgerð eða aðalheimild fyrir C hafi verið. Hins vegar ■er fljótséð, að A gæti ekki stafað frá C. Einhver hefur aukið C-gerðina og breytt henni, en hið sama verður ,ekki sýnt um A. Það er einföld og fullnægjandi skýr- ing, að rithöfundur valdi breytingunum. En samkvæmt kenning Liestöls um óviljandi breytingar munnlegra sagna, stig af stigi, yrði það torskilið, hvernig A-gerð- in munnlega hefur haldizt eins og steingervingur, með- an C óx og tók hamskiptum. 3. Höfund C-gerðarinnar misminnir, að því er virð- ist, að hann sé búinn að gefa tvennar upplýsingar, sem .standa aðeins í A, eins og lýst hefur verið. Slík mistök <eru algengt einkenni þeirra texta, sem samdir eru laus- lega upp úr rituðu máli. Yfirleitt þykja þau öruggt vitni um rittengsl. Enginn hefur svo fáránlega trú á utanaðlærdómi sagnamannanna fornu að halda, að þeir hafi þulið margar óskiljanlegar setningar. 4. Þess hefur verið getið (bls. 16), að tímaröð í al- þingisfrásögn, sem er óaðfinnanleg 1 A, er fjarri rétt- um venjum í C. Ástæðan er, að þar eru mál Þóris og Guðmundar leyst úr sambandi við fjörráðin gegn Þor- keli hák og gerð að sjálfstæðum þætti. Þáttaskiptin eru g-erð af ritara C-gerðarinnar; „gleymskan", sem nefnd var í 3. lið, er full sönnun fyrir því. Hin ranga tíma- röð er einnig vafalaust hans sök meir en sagnamanna. Ef hann styddist við sagnir, en ekki frumrit, mætti heimta, að hann væri sjálfum sér samkvæmur við þátta-

x

Studia Islandica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.