Studia Islandica - 01.08.1937, Page 13

Studia Islandica - 01.08.1937, Page 13
11 virðist hafa sannfært Finn Jónsson (Litt. Hist., 2. útg.) um það, að Ljósv. sé ein saga, en ekki tvær, og er skylt að minnast þess, sem hún vinnur þarfast. Þá hafa verið nefndir helztu ritaukar, sem menn hafa þótzt finna í Ljósv.1) Það hefur komið í ljós, að í A hefur enginn ritauki verið sýndur með rökum, en þættirnir þrír eru viðbót í C. Eftir er að ræða um 13.— 18. kap., sem eru ósamhljóða í A og C, en tilheyra þó heild sögunnar í báðum. III. HVORT ER A EÐA C ÓSAMKYNJA HEILD? Meginhlutinn af ritgerð Erichsens snýst um þetta efni. Niðurstaðan er, að kaflinn C 13.—18., sem um er deilt, sé í A ósamkynja við söguna; afritari hafi tekið hann „úr einhverri hliðarheimild (munnlegri eða rit- aðri) e. t. v. vegna eyðu í frumriti sínu, eða af því, að hann hafi haft þarna heimild, sem honum geðjaðist betur en frumritið“ (Erichsen, bls. 59—60). Þetta er að ýmsu leyti ófullnægjandi lausn og of lítið rökstudd til þess, að treysta megi á hana. Samanburður 13.—18. kap. í C við samsvarandi kafla í A og við söguheildina kostar lesandann athygli. Fyrst þarf að gefa hugmynd um söguheildina, með því að rekja þráð hennar í annarri hvorri gerðinni, og til hægðarauka vel ég fremur A. Deilurnar í 1.—4. kap. urðu að löngum fjandskap, er Þor- geirssynir lögðu á Guðmund (Ljósv. 313). Einn þeirra, Þorkell hákur, gerði ásamt Þóri goða Helgasyni, þremenningi sínum, illmæli um Guðmund ríka. Illmælið hefur verið gefið í skyn í því upphafi 13. kap., sem týnt er úr A. En þar hefst textinn 1) Smámunum er sleppt, en sumra getið hér síðar neðan- rnáls, bls. 13 og 21.

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.