Studia Islandica - 01.08.1937, Page 24

Studia Islandica - 01.08.1937, Page 24
22 kel hák (sbr. síðar C 1935—3G). Það er tekið fram í A (sjá bls. 12 að framan). En í C er sú upplýsing fall- in burt, því að fjörráðin við Þorkel eru ekki nefnd (sbr. bls. 16 að framan). En höfundur C-'textans hefur gleymt, að hann var búinn að sleppa þessu, og sér ekki, að viðtaka Einars við fénu verður hér tilgangslaus og óskiljanleg. Af þessu verður að álykta, að ritari C-gerð- ar noti þá sögugerð, sem A hefur, en noti hana illa. Akra-Þórir segir við goða sinn (C 14i0e—107): „— ávallt ferr einn veg, at þú lætr hlut þinn fyrir Guð- mundi“. — Litlu síðar styrkist þessi sögn um undan- farin málaferli við orð sauðamanns: „Fédrjúgir verða þeir nú, þingmenn Þóris“ (= „Drjúgir verða þér, Guð- mundr, þingmenn Þóris til fjárins“ — í A). 1 C verða þessar upplýsingar alveg óskiljanlegar vegna þess, að þar er felld burt frásögn A-gerðarinnar um ofsóknir Guðmundar við þingmenn Þóris, legorðsmál og hross- reiðir. — Þess verður oftar vart í C, að fyllri skilning má leggja í atvik og ummæli, ef A er höfð í huga til skýringar, en hins vegar vonlaust, að nota megi C til að skýra A. Gleymska C-ritarans sannar, að hann styðst við A- gerðina (munnlega eða ritaða) um eitthvert mikilvæg- asta atriðið. En einmitt þar víkur hann mjög frá A, líklega viljandi að mestu. — Svo gersamlega bregzt trú Liestöls, að „gleymska“ sýni munnleg sögubrigði, en afsanni rittengsl. En mörg rök eru fyrir því, að hér sé um rittengsl að ræða: 1. Af Ljósv. hafa aldrei verið til fleiri en ein gerð heil, nema í ímyndun manna. Kaflinn 13.—18. kap. er frábrugðinn íauki, sem gat ekki átt nein lífsskilyrði í sögn né á bók án sambands við Ljósv. Til að skýra myndun kaflans vill Liestöl leita á náðir tilviljunar- innar: hugsa sér, að handrit hafi verið gallað, en fyllt upp í eyðurnar eftir öðru, — en samning og skráning þessa annars handrits (heillar gerðar?) þurfi ekki að

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.