Studia Islandica - 01.08.1937, Side 39

Studia Islandica - 01.08.1937, Side 39
37 og efnisfærsluna. Á tilefnið mætti gizka. Ég hef bent á, að hann er bundnari við orð frumritsins en efni þess. Ef til vill hefur honum þótt minna ótrúlegt á að sjá að hafa ekki „Þorgils" heldur ,,Þórir“ eða „Akra-Þór- ir“ þar, sem efni frumritsins á við Þóri Helgason. (Sbr. einkum Ljósv. bls. 259io-19 við C 14u1-i7, þar sem aðeins þarf að strika út „Akra-“ í C 14u3, til þess að báðir textar segi hið sama.) Það er lítilsvert, að þrem þekktum mönnum, sem eru nefndir á nafn í A, er sleppt úr C. En í stað eins þeirra, Þorkels Geitissonar, virðist koma Vigfús Víga-Glúms- son1) í C. Vigfús er nefndur þannig, að gert er ráð fyrir, að lesendur þekki Glúmu (Ljósv. C 1637, 172o-29)- En fjandskapur þeirra Glúms og Möðrvellinga er breytt- ur í vináttu Vigfúss við Guðmund ríka. Ekki er víst, að höfundur C-textans hafi sótt þá vitneskju í sagnir. Ættartölur gefa slíkar sættir í skyn. Steinunn sonar- dóttir Vigfúss gekk samkvæmt þeim að eiga Einar á Grund son Ketils, er tekið hafði Þverá af Glúmi í föð- urbætur og fengið hana Einari bróður Guðmundar ríka. Vigfús segist einmitt eiga óhefnt fyrir missi Þver- ár (kap. 172C-29), en metur þó meir vináttuna við Guð- mund. Það var Guðmundi sæmd að hafa aflað sér slíkr- ar vináttu hjá fyrverandi fjandmanni. Og þrátt fyrir ertni Vigfúss við hann og önnur skemmtiatriði þing- sögunnar í C er óhætt að segja, að heiður Möðruvalla- goðans sé varðveittur þar af mikilli kunnáttu. Nú hef ég reynt að skyggnast inn í skrifstofu C-rit- arans. Það væri hægt betur og nákvæmar, en þá þyrfti að byrja rannsóknina á breiðara grundvelli. Viljandi hef ég lagt einhliða áherzlu á breytingar á Guðmundi ríka og fleiri persónum, því að það eru höfuðatriði, sem öðrum hefur sézt yfir. Meðferð sögunnar á við 1) Þó er hugsanlegt, að Vigfús hafi verið nefndur á blaðinu, ;sem týnt er úr A.

x

Studia Islandica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.