Studia Islandica - 01.08.1937, Síða 40

Studia Islandica - 01.08.1937, Síða 40
38 fleira en meðferð á persónum. Vel mætti rannsaka stíl- inn í C 13.—18., fjölgun aukasetninga, einkum „því at“-setninga, í sambandi við hneigð höfundar til skreyt- ingar og skýringa, aukning og fágun samtala o. s. frv. En þess þarf ekki hér, því að þar felst hvorki skýring: né afleiðing þeirrar niðurstöðu, sem meginþáttur grein- ar minnar leiðir til. Á þeirri niðurstöðu hef ég byggt þessar athuganir á meðferð sögunnar. Niðurstaðan haggast ekki við þær athuganir, heldur styrkist. Að vísu eru breytingar C- gerðar frá A-gerðinni róttækari en fræðimenn hafa látið af, en jafnframt auðskýrðar orsakir þeirra. Með allgóðum líkum má benda á tilefnin til þess, að höfund- ur C-textans byltir til aðalheimild sinni. Hann er rit- höfundur, sem semur C 13.—18. upp úr A eins og sögu- lega skáldsögu. Til stuðnings hefur hann einhverjar ættartölur og almenna sögulega þekkingu. En það er ekki nauðsynlegt að gera ráð fyrir, að hann hafi stuðzt. við munnlegar sagnir, óháðar A-gerðinni. Enn sem fyrr verða gerðir Ljósv. eitt hið merkasta sönnunargagn í deilunni um sagnfestu og bókfestu ís- lendinga sagna (Freiprosa — Buchprosa). Gildi sönn- unargagnsins snýst við. Ljósv. 13.—18. er ekki aðeins ónothæft dæmi um sagnfestu, eftir að rittengslin eru sýnd, heldur mun sá kafli í C vera eitthvert áþreifan- legasta og fróðlegasta dæmið um bóklega samningu íslendinga sagna.

x

Studia Islandica

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.