Studia Islandica - 01.06.1956, Blaðsíða 75
Pierre Naert:
„MED ÞESSU MINU OPTNU BREFI“
EÐA FRAMBURÐURINN PTN Á SAMHLJÓÐASAM-
BANDINU PN 1 ISLENZKU.
1 fornbréfum íslenzkum er áberandi oft skrifað, eins
og stendur milli gæsalappa í fyrirsögninni hér að ofan,
þ. e. a. s. optnu í staðinn fyrir opnu. Eftir þessum ein-
kennilega rithætti munu þeir hafa tekið, sem fengizt
hafa við þessi bréf, en enginn hefur fyrr kannað þetta
viðfangsefni né ritað um það. Markmið þessarar litlu
ritgerðar er að lýsa útbreiðslu fyrirbrigðisins í tíma og
rúmi og auk þess að gefa hljóðfræðilega skýringu á því.
Þetta fyrirbrigði er sem ritháttur mjög takmark-
að, bæði í tíma og rúmi. Elzta dæmi, sem ég hef fundið,
er frá 1449 (Helgafell í Snæfellsnessýslu) og hið yngsta
frá 1567 (Bær í Súgandafirði). Svæðið, sermdæíifin ná
yfir, er frá Svalbarði í Norður-Þingeyjarsýslu, yfir Norð-
urland allt og suður að Skálholti. öll eru þau úr fom-
bréfum og einungis þeim, sem prentuð eru í Islenzku
fornbréfasafni. Ég hef að vísu ekki orðtekið nándar
nærri eins mikið úr neinum stafréttum útgáfum sem úr
Fornbréfasafni og Alþingisbókum. En þess var varla
þörf, með því að geysileg tíðni orðasambandsins með
þessu míwu (voru, o. s. frv.) opnu bréfi í þeim ritum
ætti að tryggja það, að rithættinum -ptru- bregði ör-
ugglega fyrir á þeim tímum og stöðum, þar sem svo
hefur verið borið fram.
Ef dæmin eru flokkuð eftir stað og tíma, tekur efn-