Fréttablaðið - 09.03.2021, Side 8

Fréttablaðið - 09.03.2021, Side 8
Landfyllingin er nú í umhverfismati, mikilvægt er að sjá hver niðurstaða úr því verður, áður en endanleg tillaga að friðlýstu svæði er ákveðin. Umhverfis- og heilbrigðisráð Reykjavíkur UMHVERFISMÁL „Friðlýsingarhjólin eiga líka að fá að snúast í borginni,“ segir í bókun meirihlutaflokkanna í borgarráði sem hyggst vinna að friðlýsingu á þremur strandsvæð- um; í Blikastaðakró, Grafarvogi og þangfjörusvæði í Skerjafirði. Kolbrún Baldursdóttir, áheyrnar- fulltrúi Flokks fólksins í borgarráði, bókaði að friðlýsingin væri tíma- bær. „Allt of mikið er gengið á grænu svæði borgarinnar, náttúru fórnað fyrir steypu. Gengið er á náttúru- legar fjörur á nokkrum stöðum í borginni með landfyllingum til að þétta byggð enn meira,“ segir í bókun hennar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í borg- arráði; Eyþór Arnalds, Hildur Sverr- isdóttir og Valgerður Sigurðardóttir, kváðust „styðja friðlýsingaráform í Skerjafirði og Grafarvogi svo fremi sem þau raski ekki áformum um uppbyggingu Sundabrúar“, eins og segir í bókun þeirra. Tillagan er frá umhverfis- og heil- brigðisráði borgarinnar. Í henni felst að hefja eigi viðræður við umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Umhverfisstofnun um málið. „Um eru að ræða þrjú mikilvæg strandsvæði í Reykjavík sem hafa verið tilnefnd af Náttúrufræði- stofnun Íslands fyrir framkvæmda- áætlun náttúruminjaskrár,“ segir í greinargerð meö tillögunni. Í Grafarvogi á að friðlýsa grunn- sævi, leirur og fjörur til að vernda mikilvægar f jöruvistgerðir og búsvæði fugla. „Grafarvogur er eitt af fáum óspilltum leirusvæðum innan borgarmarkanna og er alþjóðlega mikilvægur viðkomustaður far- fugla, einkum vaðfuglategunda, til dæmis rauðbrystings, sanderlu, lóu- þræls, heiðlóu, jaðrakans og fleiri,“ segir í greinargerðinni. Friðlýsa eigi Grafarvog innan Gullinbrúar. Blikastaðakró er innan við eiðið út í Geldinganes. Þar er lagt til að grunnsævi, leirur, fjörur, árós, sker og eyjar verði friðlýst til að vernda mikilvæg búsvæði fugla, sela og sjávarhryggleysingja. „Fjörusvæðin frá Geldinganesi austur fyrir Blikastaðakró ein- kennast af fjölbreyttum vistgerð- um – leirum, þangfjörum, kræk- lingaáreyrum og sandfjörum sem eru lífauðugar og laða að fjölbreytt fuglalíf. Stórir hópar fuglar dvelja þar allan ársins hring og svæðið er sérstaklega mikilvægur viðkomu- staður farfugla.“ Tekið er fram að ekki sé hægt að friðlýsa alla strandlengju Geldinga- ness vegna áforma um Sundabraut. Þá á að friðlýsa þangfjörur og grunnsævi í Skerjafirði frá bæjar- mörkum að Seltjarnarnesi austur að Skildinganesi. Þannig á að vernda fjöruvistgerðir, einkum lífmiklar þangfjörur, þar með talið klóþangs- fjörur sem hafa hátt verndargildi. Varðandi Skerjaf jörð segir í greinargerðinni að á kaflanum milli þess svæðis og svæðis innar í Foss- vogi sem þegar sé friðlýst sé gert ráð fyrir landfyllingu vegna nýrrar byggðar. Það fari ekki saman með friðlýsingu. „Landfyllingin er nú í umhverf- ismati, mikilvægt er að sjá hver niðurstaða úr því verður, áður en endanleg tillaga að friðlýstu svæði er ákveðin.“ gar@frettabladid.is Vilja friðlýsa í Grafarvogi og í Skerjafirði og Blikastaðakró Borgarráð vill að umhverfisráðherra friðlýsi þrjú strandsvæði í borginni. Þau eru í Grafarvogi, innan við Geldinganes og í Skerjafirði. Ekki sé hægt að friðlýsa alla strandlengju Geldinganess vegna áforma um Sundabraut. Landfylling í Skerjafirði vegna nýrrar byggðar hindri að friðlýsa megi hluta fjörunnar þar. Fjölmargar fuglategundir, selir og sjávarhryggleysingjar eiga athvarf í Blikastaðakró. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI JAFNRÉTTISMÁL Þrettán kvenna- og jafnréttissamtök funduðu í gær, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, til að vekja athygli á kerfisbundnu misrétti gegn konum í réttarkerf- inu. Níu konur hafa kært íslenska ríkið fyrir að hafa brotið á rétti sínum til réttlátrar málsmeðferðar. Konurnar kærðu allar nauðganir, heimilisof beldi og/eða kynferðis- lega áreitni til lögreglu en málin voru felld niður. Íslenska kvenna- hreyf ingin segir brotið kerf is- bundið á rétti kvenna sem kæri kynbundið of beldi, til að mynda með því að mál fyrnist vegna þess hve langan tíma tekur að boða sak- borning í skýrslutöku, rannsóknir lögreglu taki almennt of langan tíma og að sönnunargögn séu ekki tekin alvarlega. Konurnar krefjast þess að brota- þolum, sem kæra kynferðisbrot eða ofbeldi í nánum samböndum, verði veitt aðild að sakamálinu, að meira fé sé veitt í rannsókn og saksókn og að dómurum, saksóknurum og lögreglu sé veitt fræðsla um ákvæði sem snúa að kynferðisbrotum og of beldi í nánum samböndum. Þá er gerð krafa um að brotaþolar hafi rétt á gjafsókn. Steinunn Gyðu- og Guðjóns- dóttir, talskona Stígamóta, segir að um 75–80% af sakamálum þar sem konur kæri of beldisbrot séu felld niður og fái aldrei áheyrn dómstóla. Þá hafi konur enga aðra leið en að fara í einkamál. „Í einkamálum er sönnunarstað- an ekki eins þung og í sakamálum en þau eru hins vegar dýr og því alls ekki aðgengileg. Ef ríkið tryggir gjafsókn opnast þarna möguleiki á einhverju réttlæti fyrir brotaþola kynbundins of beldis þegar önnur kerfi bregðast,“ segir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. – bdj Ríkið þurfi að tryggja fórnarlömbum gjafsókn í kynferðismálum Frá fundinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kraftur, traust og árangur Berglind Hólm Sími: 694 4000 Hringdu núna 520 9595 JAFNRÉT TISMÁL Katrín Jakobs- dóttir, forsætisráðherra og ráð- herra jafnréttismála, hringdi bjöllu Nasdaq-kauphallarinnar á Íslandi í Hörpu í gær í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Bjöllum rúmlega áttatíu kaup- halla víða um heim var hringt í gær til að vekja máls á kynjahlut- drægni og ójafnrétti en einnig til að fagna vinnu og afrekum kvenna. Nasdaq-kauphöllin á Íslandi ásamt UN Women á Íslandi, Samtökum atvinnulífsins og Félagi kvenna í atvinnulífinu stóðu fyrir viðburð- inum. „Lengi hefur verið talað um mik- ilvægi jafnra tækifæra þegar kemur að aðgangi að störfum innan fyrir- tækja sem og að ákvarðanatöku. Það er ekki bara réttlætismál heldur mjög efnahagslega og samfélagslega mikilvægt,“ segir Kristín Jóhanns- dóttir, samskiptastjóri hjá Nasdaq á Íslandi. – bdj Hringdi bjöllu í Kauphöllinni Forsætisráðherrann hringdi bjöll- unni í Hörpu í gær. MYND/BIG COVID-19 Um 1.400 manns mættu í skimun við COVID-19 í gær. Búið var að boða hátt í 2.000 manns í skimun, þar af um 800 sem sóttu tónleika í Hörpu á föstudaginn þar sem tónleikagestur var smitaður. Tilfellin sem greindust um helg- ina voru þau fyrstu utan sóttkvíar í rúman mánuð. Af brigði veirunnar reyndist vera það sem fannst fyrst í Bretlandi. – mhj Fjórtán hundruð mættu í skimun 9 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.