Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.03.2021, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 09.03.2021, Qupperneq 10
BANDARÍKIN Hæstiréttur Banda- ríkjanna neitaði að taka fyrir síðustu ákæru fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, Donalds Trump, í gær sem þýðir að málaferlum hans vegna kosningasvika er lokið, tæpum tveimur mánuðum eftir að Joe Biden tók við embætti. Alls reyndu fyrrverandi forsetinn og lögfræðiteymi hans að ógilda kosninganiðurstöður í rúmlega sex- tíu málsóknum án árangurs. Eftir að Trump tapaði í forseta- kosningunum á síðasta ári fór hann mikinn þar sem hann sakaði demó- krata og Joe Biden um að hafa stolið kosningunum frá sér. Trump kærði úrslitin í lykilríkjunum en mörg af málunum voru felld niður vegna skorts á sönnunargögnum. – kpt Rétt áður en við þurftum að fara, þá hafði ég rætt um þetta við Harry um morguninn. Meghan Markle Trump tapaði kosning- unum í Wisconsin með 20.000 atkvæðum. Lokamálsókn Trumps hafnað Trump lét af störfum í byrjun árs. Fundarboð Kviku banka hf. Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál. 1. Tillaga stjórnar um samruna Kviku banka hf., TM hf. og Lykils fjármögnunar hf. 2. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins vegna samrunans, þ.e. um hækkun hlutafjár. 3. Umræður og önnur mál löglega borin fram. Tillaga stjórnar um samruna og breytingar á samþykktum Þann 28. september 2020 hófust formlegar samrunaviðræður Kviku banka hf. og TM hf. um samruna félaganna. Áformað var að Lykill fjármögnun hf. myndi sameinast félögunum á síðari stigum en eftir nánari skoðun var ákveðið að framkvæma þríhliða samruna félaganna þriggja. Stjórnir Kviku banka hf., TM hf. og Lykils fjármögnunar hf. undirrituðu samrunasamning 25. nóvember 2020 þar sem samkomulag var um að samrunaáætlun og önnur samrunagögn yrðu undirrituð að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Samrunaáætlun var undirrituð af stjórnum félaganna 23. febrúar 2021. Þann sama dag voru undir ritaðar greinar gerðir stjórna félag anna, skýrslur sér fróðra mats manna og samruna­ efnahagsreikningur félaganna. Samkvæmt samrunaáætlun verða félögin sameinuð m.v. 1. janúar 2021 og munu hluthafar TM hf. fá 2.509.934.076 nýútgefna hluti í Kviku banka hf. sem endurgjald fyrir hluti sína í TM hf. Hinir nýútgefnu hlutir njóta sömu réttinda og aðrir hlutir í Kviku banka hf. frá afhendingardegi. Leggur stjórn því fram tillögu um að hlutafé verði hækkað um 2.509.934.076 kr. að nafnvirði og verða hinir nýútgefnu hlutir afhentir hluthöfum TM hf. í skiptum fyrir eignarhlut þeirra í TM hf. og Lykli fjármögnun hf. Fyrirhugaður samruni var tilkynntur til Fjármála eftirlits Seðlabanka Íslands og Samkeppniseftirlitsins í desember 2020. Samþykki Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir með ákvörðun dags. 26. febrúar 2021. Þann sama dag veitti Fjármálaeftirlitið Kviku banka hf. heimild til að fara með virkan eignarhlut í TM tryggingum hf., TM líftryggingum hf. og Íslenskri endurtryggingu hf. Beðið er eftir samþykki Fjármálaeftirlitsins fyrir samrunanum en gert er ráð fyrir að samþykki, með fyrirvara um að samrunaferlinu verði lokið í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga, muni liggja fyrir fyrir hluthafafundinn. Aðrar upplýsingar Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku og ensku utan þess að ársreikningar félagsins eru eingöngu aðgengilegir á ensku. Fundargögn eru aðgengileg á vefslóðinni https://www.kvika.is/ fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/ og skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Boðið verður upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum, án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað, í gegnum Lumi AGM. Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefstreymi auk þess sem hluthafar geta kosið rafrænt og borið upp skriflegar spurningar í gegnum Lumi snjallforritið eða vefslóð Lumi AGM. Rafræn þátttaka jafngildir mætingu á fundinn og veitir rétt til þátttöku í honum að öðru leyti. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram í gegnum Lumi AGM. Allir hluthafar, hvort sem þeir mæta til fundarins á Hilton Reykjavík Nordica eða taka þátt með rafrænum hætti, eru hvattir til að hlaða niður snjallforriti Lumi AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM. Samrunaáætlun og önnur samrunagögn, þ.m.t. greinar gerðir stjórna, skýrslur sér fróðra mats manna og sam runa efna hags reikningur, voru birt á heima­ síðu félagsins 24. febrúar sl. Þá hafa árs reikningar félag anna þriggja sl. þrjú rekstrarár verið að gengi­ legir á heima síðum félaganna frá 18. febrúar sl. Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til með ferðar á fundinum ef hann sendir um það skrif­ lega eða rafræna kröfu til félags stjórnar á heimilis­ fang félagsins eða á netfangið hluthafar@kvika.is. Þeir hluthafar sem óska eftir því að fá til tekið mál tekið til með ferðar á hlut hafa fund inum skulu senda beiðni um slíkt eigi síðar en tíu sólar hringum fyrir boðaðan hlut hafa fund, eða í síðasta lagi kl. 16:00 laugar daginn 20. mars 2021. Kröfu skal fylgja rök­ stuðn ingur eða drög að ályktun til félagsstjórnar. Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar fyrir hluthafafund með því að senda erindi á framangreint netfang eða bera þær upp á fundinum sjálfum. Aðilar sem eru skráðir hlut hafar í hluta skrá félagsins þegar hlut hafa fundur fer fram geta beitt réttindum sínum á hlut hafa fundinum. Hlut hafar geta látið umboðs mann sækja fundinn fyrir sína hönd. Umboðs maður skal leggja fram skrifl egt og dag sett umboð, en form að umboði er aðgengi legt á vef síðu félagsins. Umboð má leggja fram á fund inum eða senda á framan greint net fang fyrir fundinn. Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á vefsíðunni www.smartagm.com eigi síðar en kl. 16.00 þann 29. mars, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af gildum skilríkjum og umboð, ef við á. Hluthafafundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, óháð fundarsókn. Ákvörðun um samruna fer eftir 93. gr. laga nr. 2/1995. Fundarboð þetta, upplýsingar um heildar fjölda hluta og atkvæða á fundar boðs degi, dagskrá, til­ lögur stjórnar til hlut hafa fundar, ásamt umboðs­ formum eru nú að gengi leg á vef síðu félagsins. Önnur gögn vegna hlut hafa fundarins verða gerð að gengileg eigi síðar en þriðju daginn 23. mars n.k. á vefsíðu félagsins. Sé mis ræmi milli fundar gagna á íslensku og ensku, gildir íslenska útgáfan. Hluthafafundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930, verður haldinn þriðjudaginn 30. mars 2021 kl. 16:00, á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Stjórn Kviku banka hf. til hluthafafundar 30. mars 2021 ENGLAND Meghan Markle þurfti að þola einelti, kynþáttafordóma og íhugaði að stytta sér aldur eftir vist- ina innan bresku konungsfjölskyld- unnar. Megan og Harry Bretaprins opnuðu sig í tveggja tíma viðtali við Opruh Winfrey þar sem þetta kom meðal annars fram. Viðtalið var sýnt á Sjónvarpi Símans í gærkvöldi. Um fátt er rætt annað en við- talið enda héldu hjónakornin hvergi aftur af sér og svöruðu spurningum Winfrey meðal annars um ástæðu þess að þau stigu til hliðar, sem þau gerðu í janúar í fyrra. Að sögn Meghan gerði konungs- fjölskyldan ekki nóg til að vernda þau og segir hún að ástandið hafi versnað verulega eftir að þau giftust í maí 2018. Þá sagði hún að konungs- fjölskyldan væri tilbúin til að ljúga til þess að vernda aðra fjölskyldu- meðlimi í þeirra stað. Meghan, sem á nú von á sínu öðru barni með Harry, ræddi einnig um þá ákvörðun að Archie fengi ekki titilinn prins því hún hefði óttast að hann fengi ekki vernd. Þá sagði hún að innan fjölskyldunnar hefði verið rætt hver hörundslitur hins ófædda Archies yrði og ákveðnir fjölskyldumeðlimir hefðu komið því á framfæri við Harry. Oprah sagði í gær í viðtali á NBC að það hefðu ekki verið drottningin eða Filippus, svo mikið vissi hún. Skilja mátti Meghan sem svo að áhyggjur hefðu verið af því innan hirðarinnar að Archie yrði of dökk- ur á hörund og sagði hún botninum hafa verið náð á þeim tímapunkti. Í viðtalinu greindi Meghan frá því að daglegt líf hefði reynst henni gríðarlega erfitt innan konungsfjöl- skyldunnar og sagðist hafa upplifað mikinn einmanaleika þar sem tölu- verðar hömlur voru settar á nánast allt sem hún gerði. Þá sagðist hún stundum ekki hafa viljað lifa lengur vegna þessa. Aðspurð hvort hún hefði íhugað sjálfsvíg sagði hún svo vera. Hún vísaði til myndar sem var tekin af henni og Harry á viðburði í Royal Albert Hall meðan hún gekk með Archie. „Rétt áður en við þurftum að fara, þá hafði ég rætt um þetta við Harry um morguninn,“ sagði hún með tárin í augunum. Hún vísaði þar til sjálfsvígshugleiðinga sinna. Hún sagðist hafa farið með Harry á viðburðinn því henni fannst hún ekki geta verið ein en á myndinni sést Harry halda fast í höndina á konu sinni. Harry bætti svo við að kynþátta- fordómar hefðu hrakið þau frá Eng- landi og að drottningin hefði verið of upptekin til að hitta hann þegar myndbrot fóru að birtast í gær- kvöldi. Um er að ræða myndbrot sem voru ekki í viðtalinu en fóru að birtast eftir að það var sýnt í Banda- ríkjunum. fanndis@frettabladid.is, benediktboas@frettabladid.is Engin vettlingatök lengur innan bresku hirðarinnar Harry Bretaprins segir að kynþáttafordómar hafi átt stóran þátt í því að hann og eiginkona hans Megh an Markle fluttu frá Bretlandi. Hjónin eiga von á stúlku í sumar. Þau fóru um víðan völl í tveggja tíma löngu viðtali við Opruh Winfrey. Markle opnaði sig um vanlíðan sem hún upplifði við hirðina. Harry og Meghan í stólnum hjá Opruh Winfrey. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 9 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.