Fréttablaðið - 09.03.2021, Side 13
Í fréttatímum á rásum RÚV í útvarpi og sjónvarpi hinn 4. þessa mánaðar var ítrekað sagt
að Mannréttindadómstóll Evrópu
hafi vísað frá málum fimm ein-
staklinga gegn íslenska ríkinu.
Hafi þetta gerst í kjölfar sátta í
málum viðkomandi einstaklinga
þar sem íslenska ríkið féllst á að
brotið hefði verið gegn rétti kær-
enda við meðferð mála þeirra fyrir
íslenskum dómstólum. Þessi frá-
sögn er ekki rétt.
Hið rétta er að málunum var
ekki vísað frá dómi heldur staðfesti
Mannréttindadómstóllinn 4. mars
með formlegri ákvörðun (decision)
í hverju tilviki sáttirnar sem gerðar
hafa verið séu efnislega í samræmi
við fyrri dómafordæmi Mannrétt-
indadómstólsins og efni Mannrétt-
indasáttmálans. Af þeirri ástæðu
væri meðferð málanna fyrir Mann-
réttindadómstólnun felld niður og
þau tekin af málaskrá dómstólsins.
Viðleitni undirritaðra til að fá
fréttastofu RÚV til að leiðrétta þetta
bar ekki árangur.
Athugasemd vegna
fréttaflutnings RÚV
Ragnar Halldór
Hall
lögmaður
Gestur
Jónsson
lögmaður
Tillaga stjórnar um samruna
Þann 28. september 2020 hófust formlegar samruna
viðræður Kviku banka hf. og TM hf. en fljótlega þar eftir
var ákveðið að Lykill fjármögnun hf. myndi einnig sam
einast félögunum. Stjórnir félaganna telja raunhæft að
með samrunanum megi ná fram 1.200-1.500 m.kr. árlegri
kostnaðarsamlegð, án viðskipta og einskiptiskostnaðar.
Stjórnir félaganna undirrituðu samrunasamning 25. nóv
ember 2020 um að samrunaáætlun og önnur samruna
gögn yrðu undirrituð að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Samrunaáætlun, greinargerðir stjórna félaganna, skýrslur
sérfróðra matsmanna og samrunaefnahagsreikningur
félaganna voru undirrituð 23. febrúar 2021.
Fyrirhugaður samruni var tilkynntur til Fjármálaeftirlits
Seðlabanka Íslands og Samkeppniseftirlitsins í desember
2020. Samþykki Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir með
ákvörðun dags. 26. febrúar 2021. Þann sama dag veitti
Fjármálaeftirlitið Kviku banka hf. heimild til að fara með
virkan eignarhlut í TM tryggingum hf., TM líftryggingum
hf. og Íslenskri endurtryggingu hf. Beðið er eftir samþykki
Fjármálaeftirlitsins fyrir samrunanum en gert er ráð fyrir
að slíkt samþykki muni liggja fyrir, með fyrirvara um að
samrunaferlinu verði lokið í samræmi við ákvæði hluta
félagalaga, fyrir hluthafafundinn.
Samkvæmt samrunaáætlun verða félögin sameinuð m.v.
1. janúar 2021 og munu hluthafar TM hf. fá 2.509.934.076
nýútgefna hluti í Kviku banka hf. sem endurgjald fyrir hluti
sína í TM hf. Hinir nýútgefnu hlutir njóta sömu réttinda og
aðrir hlutir í Kviku banka hf. frá afhendingardegi.
Leggur stjórn því fram tillögu um samruna félagsins við
Kviku banka hf. og Lykil fjármögnun hf.
Dagskrá
1 Tillaga stjórnar um samruna Kviku banka hf.,
TM hf. og Lykils fjármögnunar hf.
2 Umræður og önnur mál löglega borin fram
Aðrar upplýsingar
Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru
aðgengi leg á heimasíðu félagsins á vefslóðinni
tm.is/fjarfestar og skrifstofu félagsins að Síðumúla
24, Reykjavík.
Samrunaáætlun og önnur samrunagögn, þ.m.t. greinar
gerðir stjórna, skýrslur sérfróðra matsmanna og samruna
efnahagsreikningar, voru birt á heimasíðu félagsins
24. febrúar sl. Þá hafa ársreikningar félaganna þriggja sl.
þrjú rekstrarár verið aðgengilegir á heimasíðum félag
anna frá 18. febrúar sl. Framangreindar upplýsingar er að
finna á vefslóðinni tm.is/fjarfestar/samruni
Hluthafar hafa heimild til að fá ákveðið mál tekið til með
ferðar á fundinum og skal kröfu þar um fylgja rökstuðn
ingur eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins
skriflega eða með tölvupósti á netfangið stjorn@tm.is í
síðasta lagi 20. mars næstkomandi.
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafundinn
fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt
eða rafrænt umboð eða á eyðublaði sem aðgengilegt er
á vef félagsins – tm.is/fjarfestar. Rafrænt umboð skal sent
félaginu á netfangið stjorn@tm.is áður en fundur hefst.
Ekki verður unnt að greiða atkvæði með rafrænum
hætti á fundinum. Óski hluthafi að taka fyrirfram þátt í
atkvæðagreiðslu skriflega og fá sendan atkvæðaseðil skal
hann gera skriflega kröfu þar um til félagsins eigi síðar
en fimm dögum fyrir fundinn. Að auki er unnt að greiða
atkvæði á skrifstofu félagsins á venjulegum opnunartíma
(kl. 9:00 til 16:00) til og með mánudeginum 29. mars
2021, en fyrir lokun skrifstofunnar þann dag skal einnig
skila þangað sendum atkvæðaseðlum. Nánar fer um
atkvæðagreiðsluna og gildi atkvæða samkvæmt henni
eftir reglum félagsins um atkvæðagreiðslu utan hluthafa
fundar, settum af stjórn félagsins 18. desember 2013.
Hluthafafundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað,
óháð fundarsókn. Ákvörðun um samruna fer eftir 93. gr.
laga nr. 2/1995. Hluthöfum er bent á að kjósi þeir gegn til
lögu um samruna geta þeir krafist innlausnar hluta sinna
skv. 131. gr. áðurnefndra laga.
Fundarboð þetta, upplýsingar um heildarfjölda hluta og
atkvæða á fundarboðsdegi, dagskrá, tillögur stjórnar til
hluthafafundar, ásamt umboðsformum eru nú aðgengileg
á vefsíðu félagsins. Önnur gögn vegna hluthafafundarins
verða gerð aðgengileg eigi síðar en þriðjudaginn 23. mars
nk. á vefsíðu félagsins.
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á fundinn á
fundarstað hálfri klukkustund áður en hann hefst.
Stjórn TM hf.
TM hf.
Hluthafafundur 30. mars
Hluthafafundur TM hf. verður haldinn þriðjudaginn 30. mars 2021 kl. 16:00,
á Hilton Reykjavík Nordica, 2. hæð, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.
Flest viljum við trúa því að íslenska réttarríkið fari ekki í manngreinarálit. Við tökum
öll u ndir eink u nnarorð lög-
reglunnar, „Með lögum skal land
byggja“ og við erum líka sammála
um það að hver maður sé saklaus
þar til sekt hans er sönnuð. Við
eigum öll rétt á sanngjarnri máls-
meðferð og sakborningar mega
velja sér lögmenn til þess að halda
uppi eins góðum málsvörnum
og frekast er unnt. Um þetta er
almenn sátt í samfélaginu. Lögregl-
an leitar samt stundum af brigða
og beitir jafnvel brögðum til þess
að leiða mál til lykta á grund-
velli sannfæringar sinnar um sekt
fremur en hlutlægri niðurstöðu
dómara.
Ég geri þetta að umtalsefni vegna
þess að ég er – a.m.k. á meðan þessi
orð eru skrifuð – skipaður verjandi
sem löggan vill losna við. Ég hef um
nokkurra vikna skeið í því verkefni
notið skilyrðislauss trúnaðar skjól-
stæðings míns. Til skamms tíma sat
hann í gæsluvarðhaldi og er nú í
farbanni vegna gruns um tengsl við
alvarlegt sakamál sem mjög hefur
verið í fréttum síðustu vikurnar. Í
rannsókn á mögulegum tengslum
hans við sjálfan glæpinn hefur lög-
reglan gripið til sjaldgæfra örþrifa-
ráða – að losa sig við lögmanninn.
Hefur hún farið fram á það að ég
verði kallaður til skýrslutöku sem
vitni. Skv. lögum er mér um leið
óheimilt að gegna störfum mínum
sem verjandi í sama máli.
Þetta er ljótur leikur í stöðunni.
Látum vera, þótt sorglegt sé, að
þetta er í annað sinn sem þessum
hælkróki er beitt á mig – síðast
m.a. með fyrirvaralausu gæslu-
varðhaldi, húsleitum og f leira sem
lögreglan hefur ekki enn bitið úr
nálinni með. Alvarlegra er hvernig
lögreglan vegur að réttindum og
andlegri líðan hins grunaða. Þar
er sparkað illa í liggjandi mann.
Hann valdi sér lögmann sem hann
treysti, hann trúði honum fyrir
öllum atriðum sem honum voru
kunnug, hann hagaði vitnisburði
sínum og svörum að viðhöfðu sam-
ráði við lögmann sinn og náði með
honum ákveðnum áfangasigrum í
vörn sinni gagnvart sakargiftum.
Ekki er nóg með að lögreglan ætli
að neyða hann til að skipta um lög-
mann í miðjum klíðum heldur á að
leiða trúnaðarmanninn, lögmann
hans, í vitnastúkuna þar sem reynt
verður að rekja úr honum garnirn-
ar. Væntanlega mun þessi leikur
lögreglunnar auka sakborningnum
enn frekar áhyggjur og eru þær þó
nægar fyrir.
Lögmaður hefur ríkar – og í raun
heilagar – trúnaðarskyldur gagn-
vart skjólstæðingum sínum. Ég
endaði að ósekju í gæsluvarðhaldi
vegna þess að ég neitaði að svara
spurningum sem skaðað hefðu
skjólstæðing minn. Ég mun gera
það aftur núna. Haldi lögreglan
þessum leik sínum til streitu mun
ég leita allra leiða til þess að standa
á bæði mínum rétti og skjólstæð-
ings míns. Í fyrsta lagi til þess að
verja hann áfram og í öðru lagi til
þess að geta, með milligöngu dóm-
stóla ef á þarf að halda, vikið mér
undan spurningum sem skaðað
gætu málsvörn hans.
Vonandi mun svo Lögmanna-
félag Íslands taka þessa makalausu
atburðarás til skoðunar. Það er eitt-
hvað mikið að ef lögreglan getur
ítrekað leikið þann leik að breyta
verjanda í vitni til þess annars
vegar að losna við hann úr mál-
inu og hins vegar að pumpa upp
úr honum upplýsingar sem hann
kann að búa yfir vegna trúnaðar-
sambands við skjólstæðing sinn.
Ljótur leikur lögreglunnar
Steinbergur
Finnbogason
lögmaður
Í rannsókn á mögulegum
tengslum hans við sjálfan
glæpinn – hefur lögreglan
gripið til sjaldgæfra örþrifa-
ráða að losa sig við lög-
manninn.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11Þ R I Ð J U D A G U R 9 . M A R S 2 0 2 1