Fréttablaðið - 09.03.2021, Side 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Hulda Sigurlaug er með ákveðið
þema sem flæðir gegnum allt.
„Undirbúningurinn er búinn að
ganga mjög vel, ég var strax vel
skipulögð, skrifaði allt niður í
samráði við Huldu Sigurlaugu og
við mæðgurnar fórum saman í
þankahríð þegar við púsluðum
deginum saman. Í framhaldinu fór
ég síðan í undirbúninginn og fram-
kvæmdina, því það er að mörgu
að hyggja, gera og græja. Við
byrjuðum frekar seint út af allri
þessari óvissu með COVID-19 og
tilslakanir, en þegar ljóst var að við
gætum haldið smá veislu fórum
við á fullt.“ Mæðgurnar eru mjög
samrýndar og samstarfið eftir
því. „Undirbúningurinn er búinn
að ganga glimrandi vel og tíminn
okkar saman er búinn að vera
yndislegur, við erum svo samstiga
í öllu. Þetta er búinn að vera góður
tími sem við báðar eigum eftir að
eiga minningar um. Við vorum
sammála um allt, dóttirin svo glöð
og sátt við allt.“
Rómantískt og franskt þema
Þema veislunnar er í anda
fermingarstúlkunnar sem vildi
náttúrulega jarðliti og sleppa
öllum skærum og sterkum litum.
„Þema veislunnar er smá í bland
hjá okkur, við vildum hafa nátt-
úrulega liti og grænar plöntur í
forgrunni. Það má segja að þetta
sé smá retró, bóhó þema þar sem
rómantíkin með frönskum blæ
svífur yfir. Svo fengum við svo fal-
legar skreytingar frá Partýbúðinni
og poppuðum þetta aðeins upp
með „rose gold“ blöðrulengju,
blöðrum og skrauti á veisluborðið.“
Þurrkuð blóm og strá koma sterkt
inn á móti grænu blómunum í
skreytingunum. Ljósir sand- og
beige-litir spila aðalhlutverkið í
skreytingunum og Ingibjörg gerði
allar skreytingarnar sjálf í samráði
við dótturina. Hún sækir inn-
blástur sinn mikið út í náttúruna
og umhverfið.
Persónulegir hlutir úr bernsku
Ingibjörg lét prenta slatta af
myndum af dótturinni á ýmsum
aldri hjá Prentgram sem hún hefur
sett í lítið albúm fyrir veislugesti
að njóta. „Við verðum með sér-
skreytt borð þar sem gestabók og
kortakassi, ásamt skreytingum frá
Huldu Sigurlaugu þegar hún var
lítil, munu vera í forgrunni. Þar
verða til að mynda fyrstu jóla-
skórnir hennar sem eru pínupons
og krúttlegir.“
Fermingarkjóllinn er fallegur
hvítur blúndukjóll
Leitin að draumafermingar-
kjólnum gekk vel. „Hulda Sigur-
laug var svolítið óákveðin með
fermingarfatnaðinn, en svo
skelltum við okkur í Gallerí 17 í
Smáralind og þar kolféll hún fyrir
fallegum hvítum blúndukjól sem
er virkilega fallegur á henni og
klæðir hana vel.“ Blúndukjóllinn
passar vel í þemað og er sveipaður
franskri rómantík.
Smáréttahlaðborð og sætir bitar
Mæðgurnar ákváðu að bjóða upp
á blandað smáréttahlaðborð þar
sem fjölbreytnin ræður ríkjum og
allir ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi. Má þar nefna kjúklingaspjót
með satay-sósu, litlar kjötbollur
með sósu, beikonvafðar döðlur,
tortillastykki með fyllingu og tor-
tillasósu, tapassnittur og venjuleg-
ar snittur, svo fátt sé nefnt. Síðan
verður boðið upp á glæsilegt eftir-
réttahlaðborð þar sem franskar
makkarónur og skrautlegir litlir
kleinuhringir munu gleðja augu
og munn. Það verður síðan toppað
með stórglæsilegri fermingartertu.
„Fermingartertuna ætlum við
að panta frá Sætum syndum og
við treystum á frumlegheit þeirra í
bakstrinum. Margt af veitingunum
munum við sjálfar gera en eitthvað
verður pantað frá veisluþjónustu.“
Einnig verður boðið upp á hina
dýrlegu Hersey-kossa sem merktir
eru fermingarstúlkunni og kók-
flöskurnar verða prýddar nafni
hennar líka.
Mæðgurnar Ingibjörg Ósk Jóhannsdóttir og Hulda
Sigurlaug fermingarbarn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fallegt skraut á fermingarborði frá
því fermingarstúlkan var barn.
Borðið og skreytingarnar í kring setja glæsilegan svip á
umhverfið. Veitingar verða síðan á öðru borði.
Meira að segja gosflöskurnar eru merktar nafni fermingarbarnsins.
Sérstakur kassi til notkunar ef fólk
gefur kort og peningaupphæð.
Sælgætismolar með nafni ferming-
arbarnsins er skemmtilegt skraut.
Fallegar servíettur fyrir gestina.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@torg.is
Skoðaðu gjafahugmyndir á kringlan.is
FERMING
Viðbúin, tilbúin,
Allt frá kökunni til klæðanna
2 kynningarblað 9. mars 2021 ÞRIÐJUDAGURFERMINGAR