Fréttablaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 24
Margrét segist alla tíð hafa haft mikla ástríðu fyrir matargerð. Hún var aðeins sextán ára þegar hún byrjaði að vinna í eldhúsi. Hún var hjá Happ í sjö ár en meðan á náminu stóð starfaði hún hjá Geira Smart og Vox Hilt­ on. Margrét, sem er dóttir Bjarna Benediktssonar og Margrétar Þóru Baldvinsdóttur, segir að hún hafi erft matarástríðuna beint í kvenlegg en móðir hennar er þekktur matgæðingur. Margrét á ellefu mánaða gamlan son og er í barneignarfríi frá eldhúsinu. Hún hefur þó látið hendur standa fram úr ermum og er að klára aðra önn í lögfræði. „Mig langar í framtíðinni að nýta mér þekkinguna og starfa við bæði þess fög enda tel ég þau alveg geta farið saman,“ segir hún. „Það var eiginlega kærastinn sem átti hugmyndina af því að ég færi í lögfræði. Honum fannst mjög góð hugmynd að ég skellti mér í frek­ ara nám og eftir að ég kynnti mér lögfræðina var ég bara sammála. En maður þarf að skipuleggja sig vel svo þetta takist allt,“ segir hún. „Ég vonast þó til að fara aftur að vinna í eldhúsi í sumar þegar sá litli kemst í leikskóla.“ Þegar hún er spurð um súpu­ uppskriftina sem hún gefur les­ endum, segist hún alltaf hafa verið hrifin af asískum mat og þessi súpa sé í miklu uppáhaldi. „Þetta er taílensk súpa sem rífur aðeins í. Ég hef eldað hana í meira en tíu ár, oft boðið upp á hana í matar­ boðum og alltaf slegið í gegn,“ segir hún. „Hún er bragðmikil og ég nota kjúkling í hana og hrís­ grjónanúðlur. Ég hef líka prófað að setja rækjur og fisk með góðum árangri. Systir mín, sem er níu ára, biður mig oft um þessa súpu en til að deyfa hana set ég auka skammt af kókósrjóma í hennar súpu. Ég myndi segja að hún henti vel í fermingarveislu, sérstaklega ef þemað er tengt Asíu. Súpan er mjög saðsöm og óþarfi að hafa brauð með. Frekar myndi ég hafa góðan desert með mangó eða pav­ lóvur, jafnvel marensrúllu.“ Þegar Margrét fermdist var smá­ réttaveisla, eins konar tapasstemn­ ing, útskýrir hún. „Það var kokkur sem útbjó snittur og smárétti sem var mjög fínt. Ég á ekki von á að fara í fermingu á þessu ári. Önnur systir mín fermdist fyrir tveimur árum og hin er enn svo ung. Hér er súpan hennar Margrétar. Uppskriftin er miðuð við fjóra en hægt að stækka hana eftir þörfum. Taílensk kjúklinga- og núðlusúpa 3 kjúklingabringur, skornar í grófa bita Vermicelli núðlur 1/2 rauð paprika, skorin í grófa bita 1/2 græn paprika, skorin í grófa bita Handfylli af sykurbaunum Handfylli af brokkólí, skorið í bita 1/2 laukur, skorinn í grófa bita 1/2 rauður chilli, saxa 10 cm engifer, rifið í rifjárni 2 fernur kókosrjómi (bestur í fjólu- bláu fernunum frá Santa Maria) 1 dós kókosmjólk 2 msk. fiskisósa 1 tsk. rautt karrí paste 1-2 msk. penang karrí paste 1 tsk. sambal oelek 2 lárviðarlauf 1 kjúklingakraftsteningur 1/2 lime kóríander 1. Byrjið á því að skera niður græn­ metið og kjúklinginn. 2. Setjið í pott kókosmjólk, kókosrjóma, kjúklingakraft, lár­ viðarlauf, chilli og engifer. Hitið á meðalháum hita. 3. Bætið næst við fiskisósu, penang karrímauki og rauðu karrímauki 4. Á meðan súpan mallar steikið þá kjúkling á pönnu með olíu og saltið. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn bætið honum þá út í súpuna 5. Þegar kjúklingurinn er kominn út í súpuna skal steikja paprikurnar og lauk á pönnu í um það bil 1 mínútu, bætið þá brokkólíinu og sykurbaununum við og steikið í 2 mínútur til viðbótar. 6. Bætið grænmetinu út í súpuna og kreistið 1/2 lime yfir og látið malla á meðan þið undirbúið núðlurnar. 7. Hitið vatn í potti og setjið vermi­ celli núðlurnar í pottinn í 2 mínútur þegar vatnið hefur náð suðu. 8. Sigtið vatnið frá og skammtið núðlum í skálar. 9. Að lokum, hellið súpunni yfir núðlurnar og setjið kóríander eftir smekk. Elín Albertsdóttir elin @frettabladid.is Margrét Bjarnadóttir mat- reiðslumaður hefur mikið dálæti á asískum mat. Hún hefur heimsótt Taíland og Víetnam til að kynnast matarhefðum. Hér gefur hún uppskrift að sannkallaðri veislusúpu fyrir fermingarnar. Súpa sem allir falla fyrir Margrét, sem er lærður matreiðslumaður, hefur nýtt barneignarorlof til að stunda laganám. Hún telur að fögin muni bæði nýtast í framtíðinni. Hér hefur hún eldað súpuna góðu en hún notar kjúkling í hana. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Taílenska súpan hennar Margrétar lítur girnilega út og er bragðmikil. Meðal hráefna í súpuna er engifer, límóna og chilli. 8 kynningarblað 9. mars 2021 ÞRIÐJUDAGURFERMINGAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.