Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.03.2021, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 09.03.2021, Qupperneq 30
hand- og körfubolta. Einnig hef ég gert nokkrar styttur fyrir golfara og sundiðkendur. Ég reyni eftir fremsta megni að verða við þeim óskum sem koma til mín. Ég mála síðan stytturnar í þeim litum sem henta hverju íþróttafélagi. Sömuleiðis hef ég verið beðin að gera styttu sem er í stíl við veislu- borðið í fermingunni eða jafnvel fermingarkjól stúlkunnar sem er að fermast,“ segir hún. „Það er allur gangur á hugmyndum og óskum jafnt hjá stelpum og strákum.“ Stytturnar eru 18 cm og ætlaðar sem borðskraut. Berglind segir að hún viti dæmi þess að stytta hafi verið sett upp á köku en þá hafi verið notað glas undir þannig að hún snerti ekki tertuna. „Ég hef líka gert nokkrar styttur fyrir útskriftir og brúðkaup. Ég er þó ekki að gera neitt svakalegt magn af styttum því ég er að gera þetta meðfram hundrað prósent vinnu sem leikskólakennari. Þetta er fyrst og fremst áhugamál hjá mér, enda hef ég takmarkaðan tíma til að sinna þessu.“ Berglind hefur starfað á leik- skóla frá árinu 2003 og útskrifaðist sem leikskólakennari árið 2011. Hún er því næstum því farin að passa börn þeirra fyrstu sem hún gætti á sínum tíma. Það má að minnsta kosti segja að hún hafi lengi verið umvafin börnum og kynnst nokkrum kynslóðum. Ég hef mjög gaman af föndri og starfið hentar mér því vel. Ég sit yfirleitt ekki auðum höndum, er svolítil dellukona og tek tarnir. Um tíma var ég mikið í handavinnu, saumaði út og prjónaði lopapeysur. Eitt sinn var vinsælt að smíða og skera út kántrí-dót og þá var ég á kafi í því. Auk þessa er ég mikil útivistarkona, fer gjarnan í göngu, til dæmis á Helgafellið eða við Hvaleyrarvatn þar sem ég geng um náttúruna. Mér finnst líka nota- legt að sitja í stofunni heima með kveikt á sjónvarpinu og tálga um leið. Það er gott að dreifa huganum eftir amstur dagsins.“ Berglind segist hafa fengið nokkrar pantanir núna fyrir fermingarnar. Fyrst hafi hún verið að þessu fyrir vini og ættingja en eftir styttunum var tekið og fleiri hafa haft samband. Þá er hún með Facebook-síðuna Bella tálgar og margir sjá stytturnar sem hún birtir þar. „Fólk er að halda veislur þrátt fyrir takmarkanir á gesta- fjölda. Ég fékk margar beiðnir í fyrra þrátt fyrir samkomubann. Mér finnst mjög skemmtilegt að tálga stytturnar og ætla að halda því áfram og ég finn mér alltaf eitt- hvað til að dunda við.“ Elín Albertsdóttir elin @frettabladid.is Berglind Mjöll Jónsdóttir, eða Bella tálgari, býr til fallegar fermingarstyttur sem notið hafa mikilla vinsælda. Stytturnar eru gerðar eftir óskum fermingar- barna. Berglind Mjöll er deildarstjóri leikskólans Norðurbergs í Hafnar- firði. Þar er mikið föndrað og hún skemmtir sér jafn vel við það og börnin. Áhugamál Berglindar, að tálga út styttur, hófst á óvæntan hátt. „Eiginmaður minn og sonur ákváðu að fara saman á námskeið og læra að tálga. Þar með gætu þeir átt sameiginlegt áhugamál. Þeir kenndu mér síðan handtökin og ég féll fyrir þessu. Fór á fullt að tálga á meðan þeir misstu nánast áhugann. Ég fann mig betur í þessu en þeir,“ segir hún. „Upphaflega byrjaði ég að tálga út litla hnífa sem ég síðan lánaði börnunum á leikskólanum. Einnig fór ég að kenna þeim að tálga og við fórum út í skóg til að sækja efnivið sem þeim þótti spenn- andi,“ segir Berglind en hún starfar á deild með elstu leikskólabörnun- um. „Fyrsta fermingarstyttan sem ég gerði var fyrir fermingu sonar míns árið 2011. Hún var allt öðru- vísi en þessar sem ég geri núna enda hef ég þroskast og þróast á þessum árum. Fyrsta styttan var úr ösp en nú kaupi ég linditré sem er mun auðveldara að nota við þessa iðju. Stytturnar eru gerðar eftir óskum fermingarbarnanna en ég er mikið beðin um að búa til íþróttastyttur, jafnt knattspyrnu, Tálgar út fermingarstyttur Berglind Mjöll, eða Bella tálgari, situr ekki auðum höndum á kvöldin þótt hún sé með börnum allan daginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Flottur fermingarstrákur í íþrótta- fötum. Heppinn sá sem fær hana. Misjafnt er hvað fermingarbörnin biðja um þegar kemur að styttum. Það er greinilegt að einhver fermingarstúlkan er í ballett. Enn ein útgáfan af borðstyttu. Þessi setur skemmtilegan svip á borðið. Ég reyni eftir fremsta megni að verða við þeim óskum sem koma til mín. Ég mála síðan stytturnar í þeim litum sem henta hverju íþróttafélagi. Berglind Mjöll Jónsdóttir Kjólar fyrir öll tilefni Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 12-16 Kíkið á myndir og verð á Facebook 14 kynningarblað 9. mars 2021 ÞRIÐJUDAGURFERMINGAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.