Fréttablaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 34
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@ frettabladid.is Skartgripur með táknræna merkingu, seldur til styrktar blindum og sjónskertum á Íslandi. Íslenskt handverk. Fæst um land allt. Þríkrossinn Stuðningur til sjálfstæðis Vilhelm Neto fermdist til að stimpla sig inn sem trúaður maður og fermingargjafirnar voru bara óvæntur bónus. Hann á góðar minningar af ferming- unni og lét biblíu fljúga í mynda- tökunni. Skemmtikrafturinn, leikarinn og grínistinn Vilhelm Neto, eða Villi, segir að fermingargjafirnar hafi verið óvæntur bónus þegar hann fermdist og að það sé mikilvægt að njóta fermingardagsins án þess að stressa sig. Fréttablaðið hitti á Villa í fríi í Kaupmannahöfn, en hann er að hvíla sig eftir törnina við að klára þættina Hver drap Friðrik Dór? og heimsækja unnustu sína, Katrine Gregersen Vedel, sem var að hefja margmiðlunarhönnunarnám. „Ég er í smá heimsókn og er bara að nota tímann til að vera í fríi og lesa einhverja vitleysu. Ég er líka að undirbúa þátt fyrir Já OK! hlaðvarpið og þess vegna er ég að lesa um Ljón norðursins, hann Leó Árnason, sem var mögnuð per- sóna,“ segir Villi. Hann segir að þættirnir Hver drap Friðrik Dór?, sem Villi leikur aðalhlutverkið í og komu út á Sjón- varpi Símans fyrir skömmu, hafi fengið mjög góðar viðtökur. „Ég var að tala við afa minn í morgun. Hann les alltaf Morgun- blaðið og í morgun las hann dóminn þeirra um þættina fyrir mig í símann. Ég bara táraðist við að heyra hvað þau sögðu fallega hluti,“ segir Villi. „Þetta er alveg geggjað. Þetta er fyrsta svona stóra verkefnið mitt og það er ótrúlega gaman að fá svona góð viðbrögð.“ Stimplaði sig inn Villi ólst upp í Portúgal til 14 ára aldurs en fermdist svo árið 2008 í Hallgrímskirkju og segir að það hafi verið mjög hefðbundin íslensk ferming. „Ég fermdist reyndar einu ári seinna en venjulega, en ég vildi fermast til að staðfesta tengsl mín við guð,“ segir hann. „Ég var mjög trúaður á þessum tíma og fannst þetta góð leið til að stimpla mig inn sem trúaðan mann.“ En Villi segir að lífsskoðanirnar hafi aðeins þróast með tímanum og hann sé ekki jafn trúaður í dag. „Ég myndi segja að lífið hafi gerst og það hafi breytt viðhorfinu. Ég hef svo oft séð ótrúlega fallegt og gott fólk falla frá að ástæðu- lausu og það fær mann til að hugsa, „heyrðu, þetta er ekkert mjög sanngjarnt“,“ segir Villi. „En þetta er mjög flæðandi. Eins og Ljón norðursins sagði, ég held að sérhver lífvera sé lítill guð, því við Fljúgandi biblía og óvæntar gjafir Villi vildi endi­ lega fá mynd af sér þar sem það leit út fyrir að hann héldi á fljótandi biblíu. Það tók nokkrar tilraunir. MYND/ VILHELMNETO Hér sést fermingarbarnið á boðskortinu í ferminguna. Fermingin fór fram heima hjá ömmu. MYND/VILHELMNETO Villi var búinn að læra á Photo­ shop, eins og sést á textanum á þessari mynd. MYND/VILHELM- NETO Villi er staddur í Kaupmannahöfn þar sem hann er að heimsækja unn­ ustu sína. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK höfum öll neistann af guði í okkur. Maður þarf að finna hinn gullna meðalveg í þessu, ég er enn að móta mínar skoðanir og þær eru ekki ritaðar í stein.“ Fermingarfræðsla með Black Eyed Peas „Á þessum tíma fannst mér fermingin gefa mér staðfestingu á að ég væri trúaður. Ég var mikið að lesa um guð og tengdi mikið við það. Svo kom í ljós stuttu eftir að ég byrjaði þetta fermingarferli að það fylgja þessu heljarinnar gjafir!“ segir Villi. „Ég skildi ekkert í því, fólk var að gefa mér risabækur og peninga í umslagi. Þetta var bara bónus fyrir mig og hafði engin áhrif á ákvörðunina. Fermingarfræðslan var rosalega fín,“ segir Villi. „Ég held að það sé samt mjög erfitt að fá unglinga til að tengja við svona trúmál. Ég man að við vorum látin rýna í Black Eyed Peas-texta og svara því hvað við læsum úr honum og ég man bara eftir að hugsa „oh plís, ekki gera þetta“. Þetta var mjög vand- ræðalegt, en manni fannst líka allt bjánalegt á þessum tíma.“ Alltaf góður matur „Fermingarathöfnin sjálf var líka fín en þetta var rosastór helgiat- höfn. Mér fannst þetta skemmti- legt en líka stressandi,“ segir Villi. „Maður er svo ungur og þetta er svo stórt og rosalega kristilegt og fór fram í Hallgrímskirkju og ég þurfti að fara með minn uppá- haldskafla úr biblíunni. Þetta var dálítið stressandi allt saman. Fermingarveislan var geggjuð. Mig minnir að hún hafi farið fram hjá ömmu og það var mikil stemning og mjög gaman,“ segir Villi. „Hún bjó í húsi sem var með stóran garð og það var gott veður og það er alltaf góður matur í fermingum. Ég er svo mikill matar- karl, mér finnst alltaf gaman að fá þessa gömlu klassík, brauðtertur og allt þetta. Svo er líka gaman að hitta svona marga fjölskyldumeðlimi, ættingja og kunningja sem maður talar oft lítið við. Það eru líka allir í góðu skapi og allir ná að hittast í róleg- heitum á þessum tíma árs.“ Eruði að sjá þetta?! Villi fór í myndatöku eins og tíðkast en fékk frekar óvenjulegar myndir. „Maður þurfti náttúrlega að vera upp á sitt besta og ég var með þetta langa Bieber-hár. Þetta er mjög gott lúkk sem ég reyndi einmitt að rifja upp um daginn. Svo var ég í ferm- ingarkufli. Myndatakan var síðan smá vandræðaleg. Aðallega vegna þess að ég vildi taka eina mynd þar sem það væri eins og ég væri að halda á fljótandi biblíu,“ segir Villi og hlær. „Þannig að ég var alltaf að kasta biblíunni upp í loft og reyna svo að gera einhvern svona „eruði að sjá þetta?! Holy smokes!“ svip þannig að það liti út eins og hún væri fljótandi fyrir ofan höndina á mér. Þetta var mjög vandræðalegt fyrir mig en ég tárast af hlátri yfir þessum myndum í dag.“ Að lokum vill Villi minna fermingarbörn á að vera róleg yfir öllu þessu ferli. „Njótið dagsins og slakið á. Þetta er ekki mikið mál og þetta er dagurinn ykkar og guðs, það er gott að muna það,“ segir Villi. „Þannig að þau ættu bara að vera róleg og sátt þegar þau fara upp í pontu til að fara með sitt ritningarvers.“ Ég var alltaf að kasta biblíunni upp í loft og reyna svo að gera einhvern svona „eruði að sjá þetta?! Holy smokes!“ svip. 18 kynningarblað 9. mars 2021 ÞRIÐJUDAGUR FERMINGAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.