Fréttablaðið - 09.03.2021, Page 47
Fermingardagurinn er full-
komnaður með gómsætum
sælkerakrásum frá meistara-
kokkunum á Kryddi í Hafnar-
firði. Hægt er að halda veisluna í
einu fegursta húsi Hafnarfjarðar
eða fá veislukostinn heim.
„Fermingardagurinn og ferm-
ingarveislan verða ógleymanleg
hjá okkur; hvort sem við komum
færandi hendi með gómsætan
veislumatinn heim eða ferm-
ingarveislan er haldin í glæsilegri
umgjörð Krydds í hjarta Hafnar-
fjarðar,“ segir Hilmar Þór Harðar-
son, matreiðslumeistari og einn
eigenda veitingahússins vinsæla,
Krydds, í tignarlegu húsi Hafnar-
borgar, menningar- og listamið-
stöðvar Hafnarfjarðar.
Krydd er rómað fyrir ómót-
stæðilega matargerð og víst að
veislugestir í fermingarveislum þar
sem Krydd sér um matinn munu
gleðjast mjög í munni og maga.
„Við göldrum fram æðislegar
fermingarkrásir og bjóðum upp
á nútímalegan veislukost sem er
með annars konar tvisti en fólk á
að venjast en er alltaf spennandi,
seðjandi og gómsæt matarupp-
lifun. Þar má nefna kóreska kjúkl-
ingavængi, beikonvafðar döðlur,
buffaló-brauðhjúpað blómkál
með „hot sauce“, humarspjót,
mini-hamborgara, kryddvængi
með pestó, rjómaosti og trufflum,
kóreskt soðbrauð fyllt með „pulled
pork“, kjúklingaspjót, rækjuspjót
og fleiri krásir,“ upplýsir Hilmar og
þá er fátt upptalið.
„Maturinn á Krydd fellur öllum
í geð, jafnt börnum sem full-
orðnum. Þetta er ekki hefðbundið
kökuhlaðborð eða kalt borð, eins
og alltaf er vinsælt í fermingar-
veislum, heldur óvænt góðgæti
sem kemur skemmtilega á óvart
og kitlar bragðlaukana. Við erum
líka með barnvæn humarbrauð
og ítölsk brauð sem eru í raun
dýrindis súrdeigspitsur sem allir
eru sólgnir í,“ segir Hilmar.
Gestgjöfum sem halda ferming-
arveislu á Kryddi er svo velkomið
að koma með fermingartertuna
með sér á veisluborðið.
„Við gerum það sem við erum
best í, að elda ljúffengan mat, en
látum bakarana um baksturinn.
Því má koma með hvaðeina sætt
undir tönn í veisluna hjá okkur,
kransaköku, fermingartertu og allt
sem fólk vill, þótt vitaskuld sé líka
hægt að panta eftirréttina okkar á
veisluborðið líka,“ segir Hilmar.
Veisla til að njóta með gestunum
Fermingarveislur á Kryddi njóta
mikilla vinsælda en fáeinar dag-
setningar eru enn lausar til veislu-
halds.
„Við rukkum ekki leigu fyrir
salinn og verðið á veisluföng-
unum kemur þægilega á óvart,
aðeins 4.990 á mann. Miðað við
samkomu bannið nú mega 50 full-
orðnir koma saman í veislu en ef
léttir enn meira á takmörkunum
vegna Covid-19 getum við haldið
allt að hundrað manna veislur í fal-
legum salarkynnum okkar. Þá er
rýmið rúmgott og auðvelt að hafa
tvo metra á milli borða,“ upplýsir
Hilmar.
„Við förum að sjálfsögðu eftir
ströngustu sóttvarnareglum og
þótt fermingarveislan sé með
hlaðborði veitinga er það allt
COVID-vænt, maturinn er borinn
fram á einnota spjótum fyrir hvern
og einn og enginn snertir sömu
hnífapör eða áhöld.“
Krydd kemur líka með ferm-
ingarveisluna heim, eða í önnur
salarkynni, og það hefur fallið
mjög vel í kramið.
„Það léttir óneitanlega allan
undirbúning fyrir fermingar-
veisluna að fá kokkana á Kryddi
með sér í lið. Sé veislan haldin á
glæstum, hlýlegum og sjarmerandi
veitingastaðnum mætir fermingar-
barnið einfaldlega með fjölskyldu
sinni og fermingargestum á stað-
inn og foreldrarnir geta slappað
af, notið dagsins og spjallað við
gestina. Svo þegar veislan er búin
förum við í fráganginn og upp-
vaskið og fermingarfjölskyldan
fer sátt og sæl heim,“ segir Hilmar,
og það sama er upp á teningnum
þegar Krydd kemur með veislu-
matinn heim.
„Þá komum við með matinn á
bökkum sem við setjum upp og
sækjum aftur að veislu lokinni,
óuppvaskaða og ekkert vesen. Æ
fleiri kjósa að halda fermingar-
veislur með þessum hætti og njóta
fermingardagsins með fermingar-
barninu, án þess að vera á enda-
lausum hlaupum og eldamennsku
fram eftir öllu, enda kostar jafn
mikið að kaupa hráefni í matinn
fyrir 50 manns og sitja svo kannski
uppi með dýrt hráefni sem
skemmist ef allt klárast ekki. Við
sjáum um veisluna frá A til Ö og
leggjum okkur í líma við að ganga
í augun á gestunum með dýrindis
veitingum og vitaskuld mætum
við séróskum fermingarbarnsins
sem oft vill eitthvað visst og í
uppáhaldi á veisluborðið sitt.“
Krydd er á Strandgötu 34 í Hafnar-
firði. Sími 558 2222. Netfang:
krydd@kryddveitingahus.is. Sjá
nánar á kryddveitingahus.is
Ógleymanlega góð fermingarveisla
Hilmar Þór Harðarson, yfirmatreiðslumaður á Kryddi.
Kóreskir lostætir kjúklingavængir.
Veitingastaðurinn Krydd er í menningar- og listamiðstöðinni Hafnarborg í Hafnarfirði.
Fögur hönnun og hlýja umvefja veislugestina á Kryddi.
Súrdeigspítsur með humri og á ítalska vísu.
Kryddaðir vængir með rjómaosti.
Humar, kjúklingur og rækjur á spjótum.
Fermingarmaturinn frá Kryddi er freistandi, seðjandi og ómótstæðilega góður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Við leggjum okkur
í líma við að ganga
í augun á gestunum með
dýrindis veitingum og
vitaskuld mætum við
séróskum fermingar-
barnsins sem oft vill
eitthvað visst og í uppá-
haldi á veisluborðið sitt.
Hilmar Þór Harðarson
kynningarblað 23ÞRIÐJUDAGUR 9. mars 2021 FERMINGAR