Fréttablaðið - 09.03.2021, Page 53

Fréttablaðið - 09.03.2021, Page 53
Þegar velja þarf kaffi fyrir fermingarveisluna er best að velja tegund sem flestum líkar vel við. Kaffitár býður upp á Morgundögg og Kvöldroða sem henta sérstak- lega vel fyrir slík tilefni. „Það er óhætt að segja að gott kaffi sé einn af lykilþáttum góðrar fermingarveislu. Þegar aðstand- endur fermingarbarnsins eru að bjóða til sín ættingjum og vinum á þessum stóra og eftirminnilega degi þar sem boðið er upp á ljúffengar veitingar má kaffið að sjálfsögðu ekki klikka,“ segir Sólrún Björk Guðmundsdóttir, sölustjóri kaffi- deildar OJK. „Það er svo sannarlega ekki gaman að vera með frábærar veitingar en bjóða síðan upp á kaffi sem er alls ekki í sama gæðaflokki. Kaffitár kaupir um 80% af öllu kaffi beint frá bónda, sem tryggir bæði stöðugleika í gæðum og um leið að bændur fá sinn hlut óskertan. Kaffið frá Kaffitári fæst í f lestum mat- vöruverslunum hérlendis auk þess sem hægt er að kaupa kílóapakka á kaffihúsum Kaffitárs og í vefverslun okkar, verslun.kaffitar.is“. Vanda þarf valið Kaffitár býður upp á margar tegundir af úrvalskaffi að sögn Sólrúnar. Þegar velja þarf kaffi fyrir veislu á borð við fermingarveislu, þar sem samsetning gesta getur verið fjölbreytt, er þó gott að hafa nokkra hluti í huga. „Best er að velja kaffi sem flestum líkar vel við. Þar má helst nefna tegundir á borð við Morgundögg og Kvöldroða, en báðar þessar tegundir passa vel með kökum og skyldum veitingum og einnig eftir mat.“ Ólíkar þarfir Þegar áætla þarf magn fyrir veislu segir Sólrún að oft megi gera ráð fyrir að um 20% veislu- gesta drekki ekki kaffi, t.d. börn og unglingar. Það sem helst þarf því að hafa í huga er heildar- fjöldi gesta, hversu margir þeirra drekka kaffi og hvort um kökuboð eða matarboð sé að ræða. „Fyrir matarboð er gott að gera ráð fyrir tveimur bollum á mann en sé um köku- eða kaffiboð að ræða má gera ráð fyrir þremur bollum á mann. Fyrir hvern lítra af kaffi er gott að nota 50-60 g af kaffi en úr einum lítra má reikna með átta bollum. Þannig að ef 100 manns í fermingarveislu drekka kaffi mælum við með 1,5-2,5 kg af kaffi. Ef það verður afgangur er lítið mál að geyma kaffið og hella upp á heima síðar.“ Lykilþáttur góðrar fermingarveislu Morgundögg og Kvöldroði frá Kaffitári henta sérstaklega vel fyrir ferming- arveisluna. Kaffitár býður upp á margar tegundir af úrvals kaffi fyrir gesti. kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol la k aff itá R f rá bý li í b ol la ka ff itá r f rá býli í boll a frá býlií bolla kynningarblað 29ÞRIÐJUDAGUR 9. mars 2021 FERMINGAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.