Fréttablaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 56
Ég þurfti sem sagt
að uppfylla fimm
lífsgildi. Þau voru
umhyggja, viska, heiðar-
leiki, hugrekki og sjálfs-
bjargarviðleitni.
Elvar Ingi Guðjónsson
Elvar Ingi Guðjónsson er nemi í
9. bekk í Húsaskóla í Grafarvogi.
Þegar kom að fermingu hjá jafn-
öldrum hans í fyrra ákvað hann
að fara aðeins aðra leið en flestir
og segist sáttur við þá ákvörðun.
sandragudrun@frettabladid.is
Elvar Ingi vissi að hann vildi ekki
fermast í kirkju og fór að hugsa
hvað hann ætti þá að gera. Hann
skoðaði siðfestu hjá Ásatrúar-
söfnuðinum en leist ekki nógu vel
á hana og langaði að gera eitthvað
öðruvísi. Þá kom upp sú hugmynd
að gera manndómsvígslu í gríni og
við tók undirbúningur á henni.
„Ég þurfti sem sagt að uppfylla
fimm lífsgildi. Þau voru umhyggja,
viska, heiðarleiki, hugrekki og
sjálfsbjargarviðleitni. Við gerðum
svo myndband af öllum þrautun-
um sem ég leysti,“ segir Elvar Ingi.
„Ég þurfti til dæmis að hjálpa til
heima við að vaska upp og eitthvað
þannig. Ég hjálpaði systur minni
í körfubolta og ýtti litla bróður
mínum í rólu, hjálpaði ömmu yfir
götu og fleira þannig. Aðalpartur-
inn af vídeóinu var að ég þurfti
að lifa af í náttúrunni. Þá gerðum
við svolítið grín að Cast Away,
kvikmyndinni. Ég var með gamlan
körfubolta í staðinn fyrir blak-
bolta og var skítugur og þannig.“
Öll fjölskyldan hjálpaðist að við
gerð myndbandsins, foreldrarnir
bjuggu til þrautirnar og frænkur
Elvars Inga bjuggu til búningana
og sáu um förðunina. Myndbandið
var svo sýnt í manndómsvígslu-
veislu sem haldin var í júní þegar
COVID leyfði.
„Þetta var bara venjuleg veisla að
öllu leyti nema að myndbandið var
sýnt í henni. Ég held að engum hafi
ekki líkað það. Það voru allavega
flestir hlæjandi,“ segir Elvar Ingi og
svarar því játandi að hann sé sáttur
við að hafa gert eitthvað öðruvísi
en aðrir.
„Já, ég er sáttur við það. Það var
líka gott fyrir sjálfstraustið hjá mér
að gera þetta myndband. Að þora
að gera eitthvað svona öðruvísi,“
segir hann
Þannig að það að gera mynd-
bandið var hálfgerð manndóms-
vígsla? Þú lærðir af því og fékkst
aukið sjálfstraust?
„Já, ég myndi segja það.“
Gott fyrir sjálfstraustið
Þrátt fyrir
óhefðbundinn
undirbúning var
veislan hefð-
bundin. MYNDIR/
AÐSENDAR
Elvar Ingi segir
að sjálfstraust-
ið hafi aukist
við að þora að
gera eitthvað
öðruvísi.
Elvar Ingi þurfti að læra sjálfsbjargarviðleitni. Það var
gert með smá gríni í anda kvikmyndarinnar Cast away.
Gestirnir í veislunni fengu að sjá manndómsvígslumyndbandið og hlógu mikið.
Fjölskylda Elvars Inga hjálpaðist öll að við gerð mynd-
bandsins. Að taka það upp, klippa og búa til búninga.
FERMING FRAMUNDAN?
Faxafeni 11, 108 Reykjavík S: 534-0534 www.partybudin.is
Partrýbúðin hefur tekið yfir rekstur
tækjaleigunnar booth.is þar sem
leigja má allskyns flottar græjar fyrir
partýið!
Sjá nánar á booth.is
photobooth!
32 kynningarblað 9. mars 2021 ÞRIÐJUDAGUR FERMINGAR