Fréttablaðið - 09.03.2021, Síða 74
„Mér finnst krabbamein dálítið
glat aður hlutur, og ekki er ég vís
indamaður sem getur fundið lækn
ingu við því, en ég get safnað skeggi
og með því get ég styrkt krabba
meinsrannsóknir,“ segir Jón Baldur
á söfnunarsíðu sinni í Mottukeppn
inni og hvetur alla sem vettlingi
geta valdið til dáða: „Berjumst sam
eiginlega gegn krabbameini, leggðu
okkur lið. Þitt framlag skiptir miklu
máli.“
Jón Baldur segist hafa safnað og
tekið þátt öll mottumarsárin að því
fyrsta undanskildu. „Þá var ég ekki
með og svo er ég reyndar búinn að
vera stanslaust með mottu núna í
sex ár,“ segir Jón Baldur, en bróðir
hans greindist eftir fyrsta mottu
marsinn.
„Annars hefði ég verið með þar
líka,“ segir Jón Baldur og bætir
við að veikindi bróður hans hafi
„algjörlega“ verið ástæðan fyrir því
að hann byrjaði að safna í mottu.
Gat lítið annað gert
„Þar sem ég gat nú lítið gert annað
en að vera til staðar og vera með
mottu. Honum fannst þetta reynd
ar geggjað sko og var einmitt þarna
undir lokin kominn með alveg
ágætis skegg sjálfur.“
Ingi Björn var með krabbamein
í heila og Jón Baldur segir bróður
sinn hafa sýnt ótrúlegan styrk og
baráttuþrek. „Þetta voru ellefu ár
sem hann barðist við þetta. Alveg
ótrúlega. Ég myndi ekki nenna því
sjálfur, persónulega, þannig að ég
skil ekki alveg hvernig hann náði
því,“ segir Jón Baldur og bendir á
að krabbamein í heila gefi sjaldnast
mikið tilefni til bjartsýni.
Jón Baldur hefur sem fyrr segir
gengið stoltur með virðingarvott
inn við bróður sinn í andlitinu í sex
ár og reynir að gera aðeins meira
með mottuna í þessum mánuði
þótt vissulega sé við fordæma
lausan ramman reip að draga.
„Það hefur venjulega verið aðeins
meira um það en núna náttúrlega
nenni ég ekki að gera neitt út af því
að ég er alltaf með grímu á mér. Um
leið og skeggið mitt sér grímuna þá
er það komið í klessu aftur en ég
reyni að gera eitthvað svona við
hátíðleg tækifæri.“
Mottuheimsmeistari
Þótt tilefni þess að Jón Baldur byrj
aði að safna í mottu hafi verið sorg
legt hefur mottan dregið nokkuð
kostulegan og ánægjulegan dilk á
eftir sér. „Vegna þess að þegar ég
byrjaði að safna mottu þá asnaðist
ég út í skeggkeppnir í útlöndum,“
segir Jón Baldur, sem hefur verið
heldur betur víðförull með sína
tilkomumiklu mottu.
„Fyrst fór ég til Austin í Texas á
heimsmeistaramótið þar. Svo fór ég
til Skotlands, Glasgow, og Antwer
pen í Belgíu. Svo var ein í Chic ago
líka og ef það væri ekki allt í volli
núna þá væri ég á leiðinni til Nýja
Sjálands á keppni sem hefði verið
núna í apríl.“
Og hafið þið mottan verið sigur-
sæl?
„Ekki í fyrsta skiptið í Austin. Þá
lenti ég í 25. sæti í mínum flokki en
í Chicago og Glasgow var ég í 1. sæti
í mínum flokki og svo var ég fimmti
á heimsmeistaramótinu þarna í
Antwerpen,“ segir Jón Baldur, sem
komst á sínum tíma að því í frétt
um RÚV að keppt væri í mottum á
heimsvísu.
„Ég sá þetta einhvern tímann
í fréttunum á RÚV. Svona svip
myndir frá heimsmeistaramótinu
þegar það var, held ég, í Austur
ríki eða Þýskalandi og ég hugsaði
bara: Ef þeir geta þetta þá get ég
þetta líka,“ segir mottumeistarinn
í sínum flokki og hlær.
Krabbamein er glatað
859 karlar á ári
n Ár hvert greinast að meðal-
tali 859 íslenskir karlar með
krabbamein.
n Í árslok 2019 voru 7.110 karlar
sem fengið hafa krabbamein
á lífi.
n Tæpur helmingur þeirra sem
greinast eru á aldrinum frá 40
til 69 ára.
n Þriðji hver karlmaður greinist
með krabbamein einhvern
tímann á lífsleiðinni.
n Talið er að um tíunda hvert
krabbamein skýrist af arf-
gengum þáttum.
n Hver og einn getur gert ýmis-
legt til að draga úr líkum á
að fá krabbamein, til dæmis
með því að reykja ekki,
hreyfa sig reglulega, borða
hollan og fjölbreyttan mat,
takmarka neyslu áfengis og
varast óhófleg sólböð.
n Algengustu krabbamein hjá
körlum eru krabbamein í
blöðruhálskirtli, ristli, enda-
þarmi og lungum.
n Meðalaldur karla við grein-
ingu krabbameins er 68 ár.
n Lífshorfurnar hafa batnað
mikið. Um 69% karla sem
greinast með krabbamein
læknast eða lifa lengur en
fimm ár.
n Því fyrr sem krabbamein
greinist, því meiri líkur eru á
lækningu.
Meira á www.mottumars.is
Krabbamein hjá körlum og vitundarvakning um þann banvæna óþverra og hvar í líkamanum meinið er körlum hættulegast
og líklegast til að stinga sér niður,
er venju samkvæmt í sviðsljósinu í
mars sem er þá kenndur við mottur.
Mottukeppnin er því komin í
fullan gang á ný og á Mottumars.
is leggur skeggprúður herskari alls
konar karla hormottur sínar fram og
safna um leið áheitum fyrir baráttu
Krabbameinsfélagsins gegn krabba
meinum hjá körlum.
Þegar þetta er skrifað leiðir Hall
dór Benjamín Þorbergsson, fram
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs
ins, áheitasöfnunina en fast á hæla
hans kemur Þórður Sigurðsson, 55
ára gamall framhaldsskólakennari,
sem hefur glímt við sortuæxli í tvö
ár.
„Ef ekki væri fyrir frábær lyf og
góðan stuðning fjölskyldu og vina
væri staða mín eflaust önnur. Leggj
umst á eitt og styðjum við gott mál
efni. Krabbamein spyr hvorki um
stétt né stöðu,“ segir Þórður á áheita
síðu sinni þar sem hann er með núm
erið #1054. toti@frettabladid.is
Grímur renna
á mottumenn
Árleg vitundarvakning Mottumars um
krabbamein hjá körlum er í fullum gangi
og þeir safna nú margir yfirvaraskeggi og
áheitum. Þar á meðal eru Jón Baldur, sem
heiðrar minningu bróður síns, og Daniel,
sem vill bara láta gott af sér leiða. Báðir eru
þeir rótgrónir mottumenn sem þjást með
skeggi sínu undir sóttvarnagrímunum.
Daniel Pilkington er 25 ára sirkus
listamaður með meiru sem hefur
skartað forláta mottu síðan í mars
2019 en tekur nú þátt í keppninni í
fyrsta skipti.
„Ég er það heppinn að hafa
hvorki þurft að díla við þetta
sjálfur eða með mínum nánustu.
Hingað til. En þar sem ég er með
mottuna og get tekið þátt í þessu
þá vill maður reyna að styðja átakið
eins og maður getur,“ segir Daniel,
sem stígur fram undir slagorðinu
„Stöndum saman og söfnum fyrir
f leiri krabbameinsrannsóknum!“
Daniel var með sítt hár og skegg
þangað til hann lét klippa sig í
mars 2019 og breytti við það tæki
færi sirkuspersónu sinni úr víkingi
í klassískan kraftakarl með snúið
yfirvaraskegg.
„Þar sem þetta var í mars ákvað
ég að halda mottunni allavega út
mánuðinn en svo fannst mér þetta
svo skemmtilegt að ég er bara allt
af með hana. Maður fær ákveðna
athygli í kringum þetta,“ segir
Daniel, sem gefur einmitt hvergi
eftir og birtir nýja sjálfu af sér og
mottunni daglega á meðan átakið
stendur yfir.
Það eru samt deildar meiningar
um hversu töff þetta er. Verður þú
fyrir einhverju aðkasti fyrir að vera
lúði?
„Nei, ekki hjá þeim sem eru í
kringum mig sérstaklega. Fólk hló
náttúrlega að þessu fyrst en ég hef
bara gaman af þessu. Ég tek mig
ekki mjög alvarlega og þetta er
náttúrlega bara skemmtilegt frá
vik frá norminu og fær fólk til að
brosa.“
Og til þess er leikurinn ekki
síst gerður. „Ég heyri oft börn sem
labba fram hjá með foreldrum
spyrja hvort þau hafi séð „skeggið
á þessum?“ Mér finnst bara gaman
að þetta fær fólk til að brosa og
kannski brjóta upp annars leiðin
legan og tilbreytingarsnauðan dag,“
segir Daniel og glottir.
„Það er samt rosalegt vesen að
vera með mottuna í COVID vegna
þess að maður er alltaf með grímu
og rakinn undir henni leysir upp
olíuna sem ég set í yfirvaraskeggið
sem missir þá formið, ýtist niður
og ofan í munninn sem er rosalega
óþægilegt.“
Sástu skeggið á þessum?
Daniel er með söfnunarnúmerið
#1098 og bregður á leik með mott-
una og splæsir daglega í nýja sjálfu.
Kötturinn Tóbías Týr fær að vera með á sjálfu í mottuflippinu með Daniel.
Jón Baldur Bogason hefur skartað
mottunni sinni árum saman og
ítrekað teflt henni fram á heims-
meistaramótum. Hann er með
keppnisnúmerið #1012 og safnar
áheitum á Mottumars.is.
Ingi Björn heitinn á góðri stundu með systkinum sínum, Jóni Baldri og
Maríu Erlu, ásamt Snædísi Ídu, dóttur Maríu.MYNDIR/AÐSENDAR.
ÞAÐ ER SAMT ROSA-
LEGT VESEN AÐ VERA
MEÐ MOTTUNA Í COVID VEGNA
ÞESS AÐ MAÐUR ER ALLTAF MEÐ
GRÍMU.
MÉR FINNST KRABBA-
MEIN DÁLÍTIÐ
GLATAÐUR HLUTUR, OG EKKI ER
ÉG VÍSINDAMAÐUR SEM GETUR
FUNDIÐ LÆKNINGU VIÐ ÞVÍ, EN
ÉG GET SAFNAÐ SKEGGI.
9 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ