Fréttablaðið - 09.03.2021, Qupperneq 76
EN ÉG FÓR SVO AÐ
HUGSA, HVAÐA
STAÐREYNDUM ER ÉG AÐ MISSA
AF, DAG FRÁ DEGI, SEM ÞAU
GÆTU HAFT ÁHUGA Á?
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Það er mikilvægt að sk r ifa niðu r minn-ingarnar. Þetta hefur Ólafur Schram gert sér grein fyrir og stendur því nú að útgáfu Barna-
barnabókarinnar, bókar sem er
ætluð öfum og ömmum til að skýra
líf sitt aðeins frekar fyrir af kom-
endunum. Hvort varstu meira
fyrir Bítlana eða Rolling Stones?
Allt getur þetta gefið barnabörn-
um færi á að þekkja betur og skilja
hvaðan við komum.
Á fullu
„Við erum bara á fullu við að brjóta
um bókina. Söfnunin gengur vel og
ég veit að þetta er góð hugmynd.
Þess vegna ákváðum við að þrefalda
upplagið og erum núna á fullu í því
að vinna að þessu,“ segir leiðsögu-
maðurinn Ólafur Schram, sem vill
nú hjálpa öðrum með að leiðsegja
af komendum sínum um fortíð
þeirra.
Ólafur hefur fundið fyrir miklum
áhuga á verkefninu, enda sé það
f lestum mikilvægt að varðveita
og þekkja sögu þeirra sem manni
standa næst.
„Ég hef þó lent í því að fólk hafi
nefnt að þau þurfi ekki á slíkri bók
að halda þar sem þau hafi skrifað
þetta allt niður. Ein á tölvu og önnur
handskrifað, en þær viðurkenndu
báðar að vita ekki hvar það væri
niðurkomið,“ segir Ólafur og hlær.
„Mín hugsjón er fyrst og fremst sú,
myndir þú ekki vilja eiga svona frá
afa þínum eða ömmu?“ bætir hann
við.
Bilið orðið stærra
Hugmyndin að bókinni kom til
Ólafs þó nokkru eftir að hann varð
afi sjálfur.
„En ég fór svo að hugsa, hvaða
staðreyndum er ég að missa af, dag
frá degi, sem þau gætu haft áhuga á?
Ég er úr sveitinni þar sem fólk bjó
yfir þúsund ára þekkingu á veðrum
og vindum. Svo núna þurfum við
það í raun ekki lengur. Nú er bilið á
milli kynslóða orðið það mikið, við
þurfum margt af þessu ekki lengur.
Þetta er orðið eins og tveir ólíkir
heimar. Af hverju notaði Kristur
ekki bara símann þegar hann var
að ferðast og svona?“ segir Ólafur
og hlær.
Flutningar, þótt innanlands séu,
eru Ólafi líka hugleiknir.
„Þótt fólk hafi búið fyrir norðan
og síðan ákveðið að f lytjast suður.
Er þetta ekki eitthvað sem barna-
börnum er kannski hugleikið að
skilja? Þetta hlóðst bara inn á mig,
þannig að ég eiginlega bara henti í
eina bók.“
Ólafur segir það algengt að milli-
kynslóðin, foreldrarnir, segi hvorki
né endilega viti það mikið um afa
og ömmu.
„Þetta fylgir spurningum frá
æsku og jafnvel unglingsárum, ertu
Rollingur eða Bítlamanneskja? Þó
sú spurning held ég að hafi verið
tekin út. Svo er ég með ertu fædd
Pepsí- eða Kók-manneskja? Síðan
eru spurningar tengdar tilhuga-
lífinu og f leira. Fjölskylda, frí og
síðari parturinn. Ég er svona smá að
reyna að ýta á eftir fólki með sumt,
hefurðu farið í heyrnarmælingu?
Það er annað hvert hjónaband sem
situr uppi með það að karlinn neitar
að fara og heyrir bara allt sem hann
heyrir,“ segir Ólafur og hlær.
Vel geymdar minningar
Ólafur grínast hress með að það
sé vissulega ákveðin fegurð í sam-
skiptum ömmu og afa við barna-
börn sín og það sé að miklu leyti
fólgið í því að þau þurfi síður að
skamma.
„Jóna mín, barnið er búið að gera
á sig!“ segir hann hlæjandi. „Við
þurfum minna að hlaupa til eða
byrsta okkur.“
Mataræði hefur til að mynda
breyst mikið á síðustu árum.
„Til dæmis hvort fólk borði enn
þá ekki selhreifa, hákarl eða skötu.
Lengi þótti kjúklingur ekki fínn
matur. Hænurnar voru þar sem
fjósin voru og borðuðu grasið þar.“
Hugmynd Ólafs er sú að ömmur
og afar fái sína bókina hvort og láti
elsta niðja hafa, þar sem allir gætu
nálgast hana.
„Svo þegar fólk fer að finna fyrir
áhuga á þessu getur það nálgast
bókina og skilað henni aftur. Ég
mæli með að það sé ekki keypt
nema ein bók fyrir hverja persónu.
Það eru margir sem hafa viljað
styrkja mig í þessu og vilja kaupa
fjölda bóka. En ég segi þeim að þau
hafi líklega ekkert að gera með 10
bækur, það þarf að fylla þær allar
út,“ segir hann, og bætir við að
fjöldann allan af skemmtilegum
spurningum sé að finna í bókinni,
hvort sem það er um fyrstu bíó-
ferðina, skólagönguna eða gæludýr.
Hægt er að leggja Ólafi lið og fjár-
festa í Barnabarnabókinni á karol-
inafund.com.
steingerdur@frettabladid.is
Minningarnar
eru svo mikilvægar
Landkynnirinn Ólafur Schram stendur nú að söfnun fyrir útgáfu
Barnabarnabókarinnar. Henni er ætlað að hjálpa öfum og ömm-
um að deila minningum sínum og lífi með afkomendum.
Ólafur stendur nú að útgáfu Barnabarnabókarinnar fyrir afa og ömmur landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTTRYGGUR ARI
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
Mottur og dreglar
... fyrir lifandi heimili
frá nordal. nokkrar stærðir og gerðir.
frá dialma brown. nokkrar gerðir.
MIKIÐ OG FJÖLBREYTT ÚRVAL
FRÁ NIRMAL, DIALMA BROWN, NORDAL O.FL.
frá nirmal. margar stærðir og gerðir.
9 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð