Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2021, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2021, Blaðsíða 4
MEST LESIÐ Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST... Morðið í Rauðagerði Rannsókn á morðinu í Rauðagerði heldur áfram. Í vikunni var greint frá niðurstöðu bráðabirgðaskýrslu réttarmeinafræð- ings sem framkvæmdi krufningu á líki hins látna. Í niður- stöðunni kom fram að hinn látni hlaut níu skotáverka, meðal annars í höfuð, bol og lífsnauðsynleg líffæri. Þrír eru nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins og fleiri í farbanni. Alls hafa tólf verið handteknir í málinu og hafa stöðu sakbornings. Að sögn lögreglu er rannsóknin á viðkvæmu stigi. Landspítalinn sagði já Það lá fyrir í nóvember í fyrra að Landspítalinn taldi sig geta tekið við rannsóknum á leghálssýnum, en það var einmitt í nóvember sem yfirvöld ákváðu að leita til erlendra aðila til að taka við keflinu. Þetta er á skjön við skýringar sem hafa verið gefnar, um að ekki væri fært að greina þessi sýni innanlands eftir að skimanir færðust frá Krabbameinsfélaginu yfir til heilsugæslunnar. Því er nú haldið fram að leitað hafi verið til erlendra aðila í sparnaðarskyni. Engar skýringar hafa enn fengist á því hvers vegna það dróst svo lengi sem raun ber vitni að ganga frá tilhögun rannsóknanna en seinagangurinn leiddi til þess að 2.000 sýni lágu óhreyfð á heilsugæslunni í Hamraborg svo vikum skipti. Beðið eftir gosi Áfram heldur náttúran að minna á sig með tíðum jarðskjálft- um sem vel finnast á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu. Íbúar Suðurnesja hafa farið hvað verst út úr jarðskjálftahrin- unni og segjast sumir vera orðnir langþreyttir á skjálftunum. Um fimmtíu þúsund jarðskjálftar hafa riðið yfir Reykjanes- skaga frá 24. febrúar og hafa sex þeirra verið fimm að stærð eða meira. Nú bíða menn eftir eldgosi sem virðist þó ekkert ætla að láta sjá sig. Bruninn á Bræðraborgarstíg Karlmaður á sjötugsaldri, sem hefur verið ákærður fyrir manndráp og íkveikju á Bræðraborgarstíg síðasta sumar er ósakhæfur samkvæmt yfirmati geðlækna. Þrennt lést í brun- anum og fleiri slösuðust en ákærði hefur neitað sök. Um er að ræða einn mannskæðasta bruna hér á landi á síðustu ára- tugum. Börnin flutt úr Fossvogi Stefnt er að því að flytja nemendur Fossvogsskóla yfir í nýtt húsnæði frá og með mánudeginum. Foreldrar nemenda hafa mótmælt því að skólinn sé opinn þar sem mygla hefur fund- ist í húsnæðinu og sumir nemendur hafa orðið veikir vegna þess. Einhverjir foreldrar ákváðu að hætta að senda börn sín í skólann á meðan kennsla færi enn fram í mygluðu húsnæðinu. Fá ekki að keppa við strákana Tillaga um að stelpnalið og strákalið í körfubolta fengju að spila í sama flokki á Ís- landsmóti til fjórtán ára ald- urs var felld á ársþingi KKÍ á laugardag. Tillagan kom frá UMFK en stúlknaliðið Aþena sem fjallað var um í kvik- myndinni Hækkum rána spil- ar undir þeim hatti. Mikil um- ræða skapaðist á þinginu um tillöguna og voru lagðar fram tvær breytingatillögur. Allar voru tillögurnar þó felldar. 1 Simmi Vill birti myndband af kynlífi fólks á Instagram – „Gaf mér síðan þumalinn og hélt áfram“ Sigmar Vilhjálmsson veitingamaður varð vitni að því er fólk stundaði sam- farir í húsinu á móti. 2 Áhorfendur bauluðu og reyndu að öskra Björn af sviðinu – „Þetta hef ég aldrei upplifað hvorki fyrr né síðar“ Björn Thors fylgdi Silvíu Nótt í Eurovision í hlutverki Romario Hugo Estevez og vakti úlfúð. 3 Hart tekist á í Silfrinu: „Þegi þú bara og vertu þæg og sæt og hættu þessu“ – „Leyfðu mér að klára, nei ég ætla að fá að klára“ Hart var tekist á í Silfrinu um brot menntamála- ráðherra á jafnréttislögum. 4 Hún sleit trúlofuninni þegar hún sá hvað hann geymdi undir rúminu Craigslist-morðinginn Philip Markoff geymdi 16 nærbuxur í sokkum undir rúminu. Þær tilheyrðu fórnarlömbum hans. 5 Vikan á Instagram – „Já ég er með stór brjóst, og hvað“ Vikan á Instagram er fastur liður á mánudögum. 6 Rómantíska ferðin til Kanarí­eyja breyttist í martröð – „Ég var sú eina sem vissi ekki af þessu“ Abi Willis planaði rómantíska ferð en sólbrann illa. Kærastinn hennar nýtti tækifærið og hélt framhjá. 7 Svona leit bíll Svölu út í morgun – Maður sem marg­ brýtur nálgunarbann gengur laus og ógnar fjölskyldunni Eltihrellir stórskemmdi bifreið Svölu Lindar Ægisdóttur og braut þar með gegn nálgunarbanni. 8 Þetta er ástæðan fyrir því að Kristján Þór er að hætta – „Ástæðan er einföld“ Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, hættir í pólitík. 9 Katrín Jakobs vekur athygli í Bandaríkjunum – „Mögnuð niðurstaða“ Bandarískir fjölmiðlar fjölluðu um viðbrögð Íslands við COVID-faraldrinum. Dalshrauni 11, Hafnarfirði  S: 571 6770  www.rekstrarumsjon.is  umsjon@rekstrarumsjon.is Látið okkur um rekstur húsfélagsins Við sérhæfum okkur í umsjón með rekstri húsfélaga og bjóðum trausta og faglega þjónustu á góðu verði. Hafðu samband og fáðu tilboð strax í dag! 4 FRÉTTIR 19. MARS 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.