Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2021, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2021, Blaðsíða 38
38 SPORT 433 K n a t t s p y r n u k o n a n Fanndís Friðriksdóttir hefur um langt skeið verið á meðal bestu knatt­ spyrnukvenna landsins. Þessi öfluga kona frá Vestmanna­ eyjum hefur síðustu vikur og mánuði þurft að taka því rólega þegar kemur að bolt­ anum en Fanndís og unnusti hennar Eyjólfur Héðinsson eignuðust sitt fyrsta barn þann 1. febrúar síðastliðinn. Fanndís lék fjóra leiki með Val síðasta sumar en dró sig í hlé þegar hún varð barns­ hafandi. Þeir sem þekkja til Fanndísar vita að það er ekki hennar helsti styrkleiki að taka því rólega en hún kveðst hafa saknað fótboltans. Saknaði fótboltans Fanndís fagnar síðar á þessu ári 31 árs afmæli sínu en hún hefur á ferli sínum í meistara­ flokki spilað með Breiðabliki og Val hér á landi. Hún hefur einnig átt góð ár í atvinnu­ mennsku en hún lék í Nor­ egi, Frakklandi og í Ástralíu. Fanndís er kröftugur og áræð­ inn sóknarmaður og hefur spilað 109 landsleiki fyrir Ís­ lands hönd og skorað í þeim 17 mörk. „Það er búið að ganga ansi vel allt í þessu ferli, þegar maður er með risa kúlu fram­ an á sér þá getur maður lítið hreyft sig. Það var skrýtið, ég æfði alveg ennþá fram á síðasta dag en var ekki í fót­ bolta. Maður saknaði þessi að vera ekki úti á velli með stelpunum,“ segir Fanndís um verkefnið að halda sig frá fót­ boltavellinum í nokkra mán­ uði. Það er ekki auðsótt fyrir metnaðarfullan leikmann. Að komast á fulla ferð Þrátt fyrir að aðeins séu sex vikur frá því að Fanndís fæddi stúlkubarn í heiminn er hún að komast á fulla ferð í fótboltanum. „Hún er bara sex vikna, það hefur gengið ótrúlega vel að komast aftur af stað. Ég er byrjuð að gera allt, ég var með í spili á æf­ ingu á dögunum. Hugurinn er kominn lengra en líkam­ inn, ég nýt þess samt í botn að geta farið aftur út á völl,“ segir hún. Fanndís hefur ekki sett neina dagsetningu á endur­ komu sína, hún stefnir á að spila í sumar. Það virðist raunhæfur möguleiki en efsta deild kvenna fer af stað í byrjun maí. Valur er á pappír með yfirburða besta lið landsins og það kitlar Fanndísi að taka þátt í því ævintýri sem gæti átt sér stað. „Ég ætla ekki að setja neina brjálaða pressu á mig hvenær ég sný aftur, maður vill ekki setja neina dagsetn­ ingu ef hún gengur ekki upp. Ég stefni bara á að vera með í sumar.“ Breiðablik varð Íslands­ meistari síðasta sumar en liðið hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku í vetur, margir lykil­ menn hafa horfið á braut. Fanndís og liðsfélagar hennar í Val eru því til alls líklegar. „110 prósent ætlum við að endurheimta titilinn, maður nennir þessu ekki nema að maður sé að vinna einhverja titla. Þegar maður hefur pruf­ að það að vinna titla þá er það eitthvað sem maður vill gera aftur og aftur,“ sagði Fanndís en Valur varð síðast Íslands­ meistari haustið 2019. Barn sem sefur Nýbakaðar foreldrar þekkja margir þá raun að svefn sem þótti svo sjálfsagður á næt­ urnar þarf að víkja, börnin eru misjöfn eins og þau eru mörg. Sum sofa lítið sem ekkert á næturnar en önnur leggjast á koddann á kvöld­ in og eru þar til morguns, Fanndís er í hópi þeirra sem hafa fengið nægan svefn. „Ég hef ekki enn upplifað svefn­ lausar nætur, ég á stelpu sem sefur bara. Þess vegna getur maður kannski byrjað svona fljótt í boltanum aftur, ég sef vel og svefn er ansi stór hlut­ ur af því að vera í íþróttum.“ Gulrótin Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er komið inn á Evrópumótið 2022, mótið átti að fara fram í ár en kóróna­ veiran varð til þess að því var frestað. Það kemur sér vel fyrir Fanndísi. „Auðvitað hjálpar það manni að gera þetta almennilega og koma vel til baka, það er gulrót. Það hefði verið erfitt fyrir mig að fara á EM í sumar, það er að því leytinu gott að ég hef lengri tíma til að koma mér í stand. En á móti kemur að ég verð eldri en það er svo sem fullt af gömlum kerlingum í þessu landsliði.“ Fanndís segir það mikil­ vægt fyrir sig að hafa séð leikmenn í kringum sig fara í gegnum barnsburð og koma aftur út á knattspyrnuvöllinn í fullu fjöri. „Margrét Lára hættir bara í fyrra. Það er gott að vita að þetta sé hægt því maður er með svo góðar fyrirmyndir. Margrét kom til baka í tvígang eftir að hafa eignast barn, Elísa (Viðars­ dóttir) kom til baka eftir barnsburð, Dagný (Brynjars­ dóttir) og fleiri. Það er mögu­ leiki í þessu og það er mikil­ vægt að hafa fyrirmyndir í þessum málum,“ segir Fann­ dís sem horfir björtum aug­ um á fótboltasumarið fram undan. n Á EFTIR BARNI KEMUR BOLTI Sex vikur eru síðan ein fremsta knattspyrnukona Íslands eignaðist sitt fyrsta barn. Hún er byrjuð að æfa á nýjan leik og hefur háleit markmið. Fanndís Friðriks segir lykilinn að því að snúa aftur svo fljótt og vel á völl- inn vera góðan nætursvefn en barnið sefur eins og steinn allar nætur. Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is 19. MARS 2021 DV Fanndís er að komast á fulla ferð í fótboltanum. MYND/VALLI Ég hef ekki enn upplifað svefnlausar nætur, ég á stelpu sem sefur bara. Þess vegna getur maður kannski byrjað svona fljótt í boltanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.