Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2021, Page 38
38 SPORT 433
K n a t t s p y r n u k o n a n Fanndís Friðriksdóttir hefur um langt skeið
verið á meðal bestu knatt
spyrnukvenna landsins. Þessi
öfluga kona frá Vestmanna
eyjum hefur síðustu vikur
og mánuði þurft að taka því
rólega þegar kemur að bolt
anum en Fanndís og unnusti
hennar Eyjólfur Héðinsson
eignuðust sitt fyrsta barn
þann 1. febrúar síðastliðinn.
Fanndís lék fjóra leiki með
Val síðasta sumar en dró sig
í hlé þegar hún varð barns
hafandi. Þeir sem þekkja til
Fanndísar vita að það er ekki
hennar helsti styrkleiki að
taka því rólega en hún kveðst
hafa saknað fótboltans.
Saknaði fótboltans
Fanndís fagnar síðar á þessu
ári 31 árs afmæli sínu en hún
hefur á ferli sínum í meistara
flokki spilað með Breiðabliki
og Val hér á landi. Hún hefur
einnig átt góð ár í atvinnu
mennsku en hún lék í Nor
egi, Frakklandi og í Ástralíu.
Fanndís er kröftugur og áræð
inn sóknarmaður og hefur
spilað 109 landsleiki fyrir Ís
lands hönd og skorað í þeim 17
mörk.
„Það er búið að ganga ansi
vel allt í þessu ferli, þegar
maður er með risa kúlu fram
an á sér þá getur maður lítið
hreyft sig. Það var skrýtið,
ég æfði alveg ennþá fram á
síðasta dag en var ekki í fót
bolta. Maður saknaði þessi
að vera ekki úti á velli með
stelpunum,“ segir Fanndís um
verkefnið að halda sig frá fót
boltavellinum í nokkra mán
uði. Það er ekki auðsótt fyrir
metnaðarfullan leikmann.
Að komast á fulla ferð
Þrátt fyrir að aðeins séu
sex vikur frá því að Fanndís
fæddi stúlkubarn í heiminn
er hún að komast á fulla ferð
í fótboltanum. „Hún er bara
sex vikna, það hefur gengið
ótrúlega vel að komast aftur
af stað. Ég er byrjuð að gera
allt, ég var með í spili á æf
ingu á dögunum. Hugurinn
er kominn lengra en líkam
inn, ég nýt þess samt í botn
að geta farið aftur út á völl,“
segir hún.
Fanndís hefur ekki sett
neina dagsetningu á endur
komu sína, hún stefnir á að
spila í sumar. Það virðist
raunhæfur möguleiki en
efsta deild kvenna fer af
stað í byrjun maí. Valur er á
pappír með yfirburða besta
lið landsins og það kitlar
Fanndísi að taka þátt í því
ævintýri sem gæti átt sér
stað. „Ég ætla ekki að setja
neina brjálaða pressu á mig
hvenær ég sný aftur, maður
vill ekki setja neina dagsetn
ingu ef hún gengur ekki upp.
Ég stefni bara á að vera með
í sumar.“
Breiðablik varð Íslands
meistari síðasta sumar en
liðið hefur orðið fyrir mikilli
blóðtöku í vetur, margir lykil
menn hafa horfið á braut.
Fanndís og liðsfélagar hennar
í Val eru því til alls líklegar.
„110 prósent ætlum við að
endurheimta titilinn, maður
nennir þessu ekki nema að
maður sé að vinna einhverja
titla. Þegar maður hefur pruf
að það að vinna titla þá er það
eitthvað sem maður vill gera
aftur og aftur,“ sagði Fanndís
en Valur varð síðast Íslands
meistari haustið 2019.
Barn sem sefur
Nýbakaðar foreldrar þekkja
margir þá raun að svefn sem
þótti svo sjálfsagður á næt
urnar þarf að víkja, börnin
eru misjöfn eins og þau eru
mörg. Sum sofa lítið sem
ekkert á næturnar en önnur
leggjast á koddann á kvöld
in og eru þar til morguns,
Fanndís er í hópi þeirra sem
hafa fengið nægan svefn. „Ég
hef ekki enn upplifað svefn
lausar nætur, ég á stelpu sem
sefur bara. Þess vegna getur
maður kannski byrjað svona
fljótt í boltanum aftur, ég sef
vel og svefn er ansi stór hlut
ur af því að vera í íþróttum.“
Gulrótin
Íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu er komið inn á
Evrópumótið 2022, mótið átti
að fara fram í ár en kóróna
veiran varð til þess að því
var frestað. Það kemur sér
vel fyrir Fanndísi. „Auðvitað
hjálpar það manni að gera
þetta almennilega og koma
vel til baka, það er gulrót. Það
hefði verið erfitt fyrir mig
að fara á EM í sumar, það er
að því leytinu gott að ég hef
lengri tíma til að koma mér í
stand. En á móti kemur að ég
verð eldri en það er svo sem
fullt af gömlum kerlingum í
þessu landsliði.“
Fanndís segir það mikil
vægt fyrir sig að hafa séð
leikmenn í kringum sig fara
í gegnum barnsburð og koma
aftur út á knattspyrnuvöllinn
í fullu fjöri. „Margrét Lára
hættir bara í fyrra. Það er
gott að vita að þetta sé hægt
því maður er með svo góðar
fyrirmyndir. Margrét kom til
baka í tvígang eftir að hafa
eignast barn, Elísa (Viðars
dóttir) kom til baka eftir
barnsburð, Dagný (Brynjars
dóttir) og fleiri. Það er mögu
leiki í þessu og það er mikil
vægt að hafa fyrirmyndir í
þessum málum,“ segir Fann
dís sem horfir björtum aug
um á fótboltasumarið fram
undan. n
Á EFTIR BARNI KEMUR BOLTI
Sex vikur eru síðan ein fremsta knattspyrnukona Íslands eignaðist sitt
fyrsta barn. Hún er byrjuð að æfa á nýjan leik og hefur háleit markmið.
Fanndís Friðriks segir lykilinn að því að snúa aftur svo fljótt og vel á völl-
inn vera góðan nætursvefn en barnið sefur eins og steinn allar nætur.
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is
19. MARS 2021 DV
Fanndís er að komast á fulla ferð í fótboltanum. MYND/VALLI
Ég hef ekki enn upplifað
svefnlausar nætur, ég á stelpu
sem sefur bara. Þess vegna
getur maður kannski byrjað
svona fljótt í boltanum.