Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2021, Side 12
12 FRÉTTIR
ömurlegt. Ég tók ákvörðun um
að bjóða ekki upp á þetta.“
Halla segir að faraldurinn
hafi opnað á ýmsar leiðir hvað
sveigjanleika í starfi varðar
og það sé mikilvægt fyrir fjöl
skyldur. „Það er ekkert sem
staðfestir að 14 tíma dagur á
skrifstofu sé best.“
Þekkir þú einhvern sem
vinnur hálfan vinnudag?
„Nei, en ef ég vildi vinna
hálfan vinnudag þá verð ég
bara sú fyrsta. En það er allt
í góðu. Ég er vön því að taka
slaginn.“
Ertu ekkert hrædd um að
það verði erfitt seinna meir
að olnboga sig aftur inn í svo
eftirsótta og krefjandi stöðu,
komin með þrjú börn og mann
sem vinnur einnig í sama
geira?
„Nei. Málið er að það er erf
iðara að fá þetta starf sem ég
var í heldur en að komast inn í
Harvard. Það eru 0,2 prósenta
líkur á því að þú fáir starfið ef
þú sækir um. Þetta var mjög
erfitt. Ég eyddi fimm árum
þarna, er búin að gera þetta og
læra fullt og þetta er á feril
skránni minni. Ég er í góðum
málum.“
Hún segir að það þurfi ekki
að skilgreina breytingar sem
þessa sem pásu. Fólk sé alltaf
að læra og stækka. „Þetta er
ekki einu sinni pása. Í næsta
skrefi, þá get ég sameinað í
mitt starf allt sem ég hef verið
að fókusera á núna og þá þekk
ingu sem ég hef bætt við mig,
þannig að starfið verður enn
áhugaverðara.“
Hefur þú meðvitað valið að
vera í námi samhliða fæð-
ingarorlofi til að það myndist
ekki gat á ferilskránni þinni?
„Nei. Alls ekki. Ég er ekki
hrædd við það. Ég get alveg
ráðið ókunnuga manneskju
inn á heimilið en ég hef bara
núll áhuga á því. Það er ekki
það sem hentar okkur núna.
Nú ætla ég að vitna í merki
legan mann. „Velgengni er
punktur á tímalínu, það er
ekki varanlegt ástand,“ þetta
sagði Will.I.Am,“ segir Halla
og hlær og vísar í athafna
manninn og rapparann sem
löngum hefur verið kenndur
við hljómsveit sína Black
Eyed Peas.
„Það eru ekki allir alltaf
alveg með þetta. Þér þarf
ekki alltaf að ganga ótrúlega
vel. Stundum gengur ekki vel
eða þú ert að einbeita þér að
öðru en vinnunni. Þú ert þá
að vaxa.“
Hún bendir á að fólk sé sí
fellt að læra og breytast og í
því felist tækifæri. „Stór fyr
irtæki eru í meiri mæli að sjá
mikilvægi þess að starfsfólk
sé með fjölbreytta hugsun.
Og þá dugar ekki að allir séu
með svipaða menntun. Lærðu
ýmislegt, fjölbreytt hugsun
sprettur af því. Vissulega
þarf maður að vinna mikið
og eyða mikilli orku og tíma
í nám en allt hitt skiptir líka
máli. Þú getur alltaf nýtt alla
þína reynslu, alveg sama hver
hún er. Mæður eru til dæmis
öðruvísi verðbréfamiðlarar
en barnlausir karlmenn. Fjöl
breytnin er svo mikilvæg,
ekki öll eggin í eina körfu.“
Úreltur hugsunarháttur
Verðbréfaheimurinn er hraður
og fyrir mörgum óskiljan
legur. Miklir fjármunir geta
brunnið upp á örskömmum
tíma og mistök þar geta verið
dýrkeypt.
Það hlýtur að vera ansi erf-
itt að ráðstafa miklum eignum
og fjármunum og hvað þá þeg-
ar það gengur ekki upp og fólk
tapar eða þú gerir mistök?
„Það sem kallast ábyrgar
fjárfestingar eiga hug minn
allan núna. Ábyrgar fjárfest
ingar eru fjárfestingaraðferð
ir sem taka mið af umhverfis
legum og félagslegum þáttum
og stjórnarháttum (e. ESG) við
fjárfestingarákvarðanir með
það að markmiði að draga úr
áhættu og skila sjálfbærri
ávöxtun til langs tíma. Þarna
er komið mikið inn á siðfræði
og félagsfræði. Stór hluti af
því er líka að sporna við spill
ingu og hvernig fólk hugsar í
fjármálum. Þessi skammtíma
hugsun um að græða mikið
hratt er úrelt. Ef þú gerir hlut
ina út frá þinni bestu vitund,
eins vel og þú getur fyrir þá
sem þú starfar fyrir, þá líður
þér ekki illa ef þú gerir mis
tök. Þú gerir alltaf það besta í
stöðunni.“
Í tengslum við ábyrgar fjár
festingar er einnig talað um
mikilvægi þess að fjárfesta í
grænum skuldabréfum sem
eru þá í fyrirtækjum þar sem
horft er til umhverfisþátta
með afgerandi hætti. Reynsl
an víða erlendis hefur sýnt að
ávöxtun grænna skuldabréfa
er ekki síðri en hefðbundinna.
„Þú ert ekki að fá verri kjör
ef þú kaupir grænt skuldabréf.
Það hefur verið misskilningur
að það sé kostnaðarsamara því
kannanir hafa sýnt að fyrir
tæki sem skora hátt á þeim
kvarða sem nýttur er til að
meta hvort hægt sé að skil
greina hlutabréfin í þeim sem
græn, eru talin líklegri til þess
ganga vel.“
Öskrar í baði
Hjónin starfa sem áður segir
bæði í fjárfestingarbankageir
anum. Halla segir þau þó vera
hvort á sinni hillunni. Hún
hafi starfað á „the trading
floor“ þar sem verið er að selja
og kaupa hlutabréf, skuldabréf
og afleiður en Harry sé á hinni
hliðinni og vinni með útgáfu
skuldabréfa.
„Í fjárfestingarbönkum er
kínverskur veggur sem að
skilur viðkvæmar upplýsing
ar og almennan markað. Mér
finnst mjög áhugavert það sem
Harry starfar við en í flestum
tilfellum væri það lögbrot ef
við ræddum okkar verkefni.
Þetta eru líka það ólík störf
að við getum ekki beint gefið
hvort öðru ráð.“
Í þáttum á borð við hinn
norska Exit og bandaríska
Billions er verðbréfabransinn
sýndur sem mjög hraður, agr
essífur, menn öskra í símann
og virðast oft á barmi tauga
áfalls.
Viðtalsferlið hjá mörgum
bankanna er eitt og sér þol
raun fyrir taugarnar. Halla
segir að þá komi leiklistin
sterk inn. „Ég er vön að vinna
undir álagi og það er ekki auð
velt að slá mig út af laginu. Í
þessu starfi er gerð sú krafa
að þú sért pollróleg þegar allt
fer til fjandans.“
Kemur þú svo heim í lok
erfiðs dags og öskrar í lófann?
„Það er meira svona kampa
vínsglas í baði og öskra ofan
í vatnið. Annars nota ég list
ina mikið til þess að losa út
og vinna úr tilfinningum. Ég
er alltaf semjandi hvort sem
það er tónlist eða að skrifa. Ef
einhver gerir mig brjálaða þá
beini ég því í gegnum listina.
Skrifa einhvern súran karakt
er í leikverk og afgreiði hann
þar.“
Að því sögðu þá dugar listin
ekki ein og sér og þar kemur
stærðfræðiástríðan inn, sem
drífur Höllu áfram í sínum
störfum í fjármálageiranum.
„Ég hef alltaf verið rosa
legt stærðfræðinörd og hef
til dæmi mikinn áhuga á af
leiðuviðskiptum því þau eru
stærðfræðilega flókin. Pabbi
var stærðfræði og eðlis
fræðikennari og er tónlistar
maður svo við erum mjög
lík og vinnum vel saman. Ég
geri líka mikið af tónlist með
honum.“
Pabbi Höllu er Vilhjálmur
Guðjónsson, gítar, saxófón
og píanóleikari, en hann spil
aði lengi vel í húsbandi RÚV
í Eurovisionundankeppnum
sem Halla tók einmitt eitt sinn
þátt í og útilokar ekki að gera á
ný. „Einn starfsframi útilokar
ekki annan, þvert á móti. Ég
er alltaf að semja tónlist líka.“
Tölfræðin og háir hælar
Talið berst að kynjamisrétti.
Halla segir launamisrétti og
ójafnvægi á vinnustað vera
svipað í Bretlandi og hér
lendis. „Það er staðreynd að
það er misrétti. Ég hef tekist á
við það af hörku. Ég læt heyra
í mér og stundum þýðir það að
mér sé ýtt til hliðar en ég læt
ekki vaða yfir mig. Ég er hörð
í horn að taka. Það er ólíklegt
að öllum líki það og mér er
alveg sama. Ég ætla ekki að
biðja um leyfi eða rými – ég
tek það. Ég biðst ekki afsök
unar á sjálfri mér.“
Hvað með að aðlaga þig um-
hverfinu til þess að falla betur
inn. Til dæmis í klæðnaði?
„Ég fer til dæmis alltaf á
háum hælum á fundi því ég
hef tölfræðina alltaf í huga.
Hávaxið fólk er til dæmis al
mennt með hærri laun. Töl
fræðin segir mér líka að það sé
líklegt að stærsti hluti fólksins
á fundinum séu karlmenn og
að þeir séu flestir hærri en ég.
Ég vil ekki vera mikið lægri
en þeir svo ég fer á hælum. En
það er fyrir mig.“ n
Halla hefur klifið fjóra af sjö hæstu tindum heims. FATNAÐUR: GK MYND/SIGTRYGGUR
Mæður eru til
dæmis öðruvísi
verðbréfamiðlarar
en barnlausir
karlmenn.
19. MARS 2021 DV