Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2021, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2021, Side 16
Hugtakið laumun eða „stealthing“ eins og það er kallað á ensku, lýsir þeirri háttsemi að karlmaður fjarlægir laumulega smokkinn meðan á samförum stendur, án vitneskju eða samþykkis rekkjunautarins, annað hvort með því að fjarlægja smokk- inn algjörlega eða eyðileggja hann vísvitandi. Hugtakið vekur athygli Það vakti almenna athygli á hugtakinu þegar lögmaðurinn Alexandra Brosky skrifaði grein sem birtist í lögfræði- tímariti í Bandaríkjunum þar sem hún velti fyrir sér laga- legri stöðu þeirra sem verða fyrir barðinu á slíkri háttsemi. Greinin birtist árið 2017 og í henni greindi Alexandra frá reynslu þolenda laumunar og þeim afleiðingum sem hátt- semin hafði á líf þeirra og heilsu. Þolendur sem ræddu við Alexöndru upplifðu að brotið hefði verið á sér en töldu sig þó ekki hafa lagaleg úrræði til að leita réttar síns. Litu þau á þetta sem nokkurs konar ígildi nauðgunar. Í greininni var jafnframt vísað til þess að á netinu mætti finna fjölda vefsíðna sem og spjallsvæða þar sem karlmenn hvetja til laumunar, deila „ár- angurssögum“ og góðum ráð- um um hvernig best sé að bera sig að til að rekkjunauturinn verði einskis var. Ein af hverjum þremur Í kjölfar þess að greinin birt- ist var fyrirbærið rannsakað í fyrsta sinn. Rannsóknin fór fram í Ástralíu og voru niður- stöður hennar birtar árið 2018. Af þátttakendum rannsóknar- innar höfðu 32 prósent kvenna lent í laumun, eða ein af hverj- um þremur, og jafnframt 19 prósent karlkyns þátttakenda sem stunda kynlíf með öðrum karlmönnum. Eftir að umræðan um laum- un hófst hafa menn velt fyrir sér lagalegri stöðu þolenda. Í lokaorðum greinar Alexöndru segir: „Þó svo lögin taki ekki beint til þessara tilvika þá er ósam- þykkt fjarlæging á smokk skaðleg háttsemi og oft er um kynbundið kynferðisofbeldi að ræða. Þó svo hægt sé að fella brotin undir gildandi laga- ákvæði þá væri með nýjum lögum hægt að auka líkurnar á því að þolendur geti leitað réttar síns […] laumun er ekki eitthvað sem bara minnir á of- beldi heldur er ofbeldi í sjálfu sér.” Íslensk lög En hvernig er staðan á Ís- landi? Skilgreiningu almennra hegningarlaga á nauðgun var breytt árið 2018 og er hún nú skilgreind sem samræði eða önnur kynferðismök án sam- þykkis. Íslenskir dómstólar hafa áður slegið því föstu að í þessari skilgreiningu felst að samþykki þurfi að liggja fyrir frá því að samfarir hefj- ast og þar til þeim lýkur og samþykki þarf fyrir öllum at- höfnum þar á milli. Í því ljósi væri ekki óvarlegt að líta svo á að um leið og smokkurinn er fjarlægður sé ekki lengur sam- þykki til staðar og um nauðgun að ræða. Þar að auki segir einnig í hegningarlögum að enn frem- ur sé um nauðgun að ræða þegar blekkingum er beitt eða þegar villa annars er nýtt til að hafa við hann samræði eða önnur kynferðismök. Svo að viljandi fjarlægja smokk án þess að fá samþykki eða láta vita, hlýtur að fela bæði í sér blekkingu og það að nýta sér villu rekkjunautsins. Þetta er þó ekki klippt og skorið. Samkvæmt Steinunni Gyðju- og Guðjónsdóttur, tals- konu Stígamóta, er laumun klárlega dæmi um kynferðis- ofbeldi. Hins vegar sé ekki víst að gildandi lög á Íslandi nái yfir slík tilvik. Miðað við dómaframkvæmd þar sem reynir á blekkingu í tengslum við nauðgun séu líkur til þess að ekki sé hægt að sækja menn til saka fyrir laumun. Sigrún Jóhannesdóttir lög- maður segist hafa heyrt af tilfellum laumunar á Íslandi. „Ég get alveg staðfest að það er aukning á að það heyrist af þessu broti og það tengist því að konur eru í dag með- vitaðri um það hvenær brotið er á þeim. Ég veit þó ekki til þess að þetta hafi verið kært eitt og sér sem sjálfstætt brot en þetta hefur verið kært sem hluti af máli.“ Enginn smokkur, ekkert samþykki Vilji löggjafans skiptir máli þegar lagaákvæði eru túlkuð á Íslandi. Í skýringum sem fylgdu frumvarpi til breyttrar skilgreiningar á inntaki nauðg- unar segir að með breyting- unni sé verið að leggja aukna áherslu á kynfrelsi og ákvörð- unarrétt einstaklingsins. Með breytingunni sé samþykki sett í forgrunn og skipti þá höfuð- máli „hvort viðkomandi hafi samþykkt að taka þátt í kyn- ferðislegri athöfn eða ekki“. Með breytingunni var einnig vonað að áherslan á samþykki samhliða aukinni fræðslu myndi leiða til þess að ungt fólk yrði meðvitað um mikil- vægi þess að samþykki liggi fyrir. Út frá þessum yfirlýsingum mætti telja óvarlegt að álykta að laumun sé brot á ákvörðun- arrétti og kynfrelsi einstakl- ings. Kynlíf hefur þá verið samþykkt á grundvelli þess að smokkurinn sé notaður og með því að fjarlægja smokkinn án samþykkis er samþykkið ekki lengur til staðar. Stígamót hafa undanfarin ár staðið fyrir herferð sem kallast Sjúk ást en hún miðlar að því að fræða ungt fólk um skaðlega hegðun í nánum sam- skiptum og ástarsamböndum. Á vefsíðu herferðarinnar eru taldar upp margar birtingar- myndir kynferðisofbeldis og áreitni. Eitt atriðið er: „Að neita að nota smokk eða taka hann af án þess að bólfélaginn viti af því.“ Frá árinu 2017 hafa erlendir fjölmiðlar birt nafnlausar frá- sagnir karlmanna sem leggja stund á laumun. Útskýra þeir háttsemi sína með því að kyn- líf sé betra án smokks og þeir hafi réttinn til að dreifa erfða- efni sínu að vild. Eins halda þeir því margir fram að um leið og kynlífi sé haldið áfram og rekkjunautur veiti engar mótbárur þá felist í því sam- þykki því að rekkjunautur- inn ætti að taka eftir því að smokkurinn sé úr leik. Rétt er að taka fram að þetta stenst enga skoðun. Dæmdir fyrir kynferðisbrot Dómstólar erlendis hafa fengið til sín mál sem varða laumun. Í Kanada árið 2014 var karl- maður sakfelldur fyrir kyn- ferðisbrot fyrir að stinga göt á smokka. Í janúar 2017 var karlmaður sakfelldur fyrir laumun í Sviss. Í héraðsdómi var hann dæmdur fyrir nauðg- un en dómurinn var mildaður hjá áfrýjunardómstól í kyn- ferðislegri áreitni. Árið 2018 var þýskur lög- reglumaður sakfelldur fyrir kynferðisbrot eftir að hafa fjarlægt smokk án samþykkis. Hann var dæmdur í átta mán- aða skilorðsbundið fangelsi og þurfti að greiða 450 þúsund í skaðabætur. Árið 2016 var kynferðisbrotakafla þýskra hegningarlaga breytt og auk- in áhersla lögð á samþykki, áþekkar breytingar og áttu sér stað hér á Íslandi nokkru síðar. Í Kaliforníuríki í Banda- ríkjunum var nýlega lagt fram frumvarp um að gera laumun refsiverða. Ef frum- varpið verður samþykkt þá væri það ólöglegt að valda því að getnaðarlim sem smokkur hefur verið tekinn af sé komið í snertingu við kynfæri annars sem hefur ekki veitt samþykki. Kvíði, vantrú og reiði Þolendur laumunar hafa lýst reynslu sinni við erlenda miðla síðustu ár. Ein greindi frá því í samtali við The Guardian að hjásvæfill hennar hefði ítrekað beðið um leyfi til að fjarlægja smokkinn en hún hafði í öll skiptin neitað. Að kynlífinu loknu komst hún að því að hann hafði virt neitun hennar að vettugi og fjarlægt smokk- inn án hennar vitundar. Annar þolandi lýsti reynslu sinni í samtali við Cosmopolitan: „Ég fann fyrir ofsakvíða, vantrú og reiði allt á sama tíma og ég man að ég grét og öskraði á hann. Ég spurði hann ítrekað hvers vegna hann hefði gert þetta, jafn- vel eftir að hann hafði svarað mér. Ég gat ekki skilið þetta. […] Mér verður óglatt að hugsa til þess að sumir menn kenna öðrum mönnum hvernig á að gera þetta með góðum árangri. Jafnvel þó nú sé komið hugtak til að lýsa þessu hátterni þá er þetta ekki nýtt af nálinni. Laumun er alvarlegt mál sem þarf að vekja athygli á og stoppa.“ n Fáðu sam- þykki áður en þú fjarlægir smokkinn. MYND/BSIP Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is SMOKKURINN FJARLÆGÐUR Í LAUMI Dómstólar víða erlendis hafa komist að þeirri niðurstöðu að um kynferðisbrot sé að ræða þegar smokkur er fjarlægður í laumi. Óvíst er hvort íslensk lög nái yfir slíka háttsemi. 16 FRÉTTIR 19. MARS 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.