Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2021, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2021, Qupperneq 20
20 EYJAN A llir sem eitthvað hafa lært um stjórnmál og stjórnskipun þekkja kenningu franska barónsins Charles-Louis Montesquieu um skiptingu ríkisvalds í lög- gjafar-, framkvæmdar- og dómsvald. Valdþættirnir þrír eiga að tempra hver annan og enginn einn þeirra á að verða svo sterkur að hann geti geng- ið á hlut hinna. Íslenskir sérfræðingar á sviði stjórnskipunarréttar hafa jafnan talið mest völd liggja hjá löggjafanum; hann leggur undirstöður annarra valdaþátta og við bætist fjár- stjórnarvald Alþingis og þingræðið sem gerir það að verkum að handhafar fram- kvæmdarvaldsins sitja í skjóli Alþingis. Farið út fyrir valdmörk Völdum Alþingis eru samt vitaskuld takmörk sett. Það hefur til að mynda enga heim- ild til að breyta úrskurðum eða dómum með lagasetningu. Þá eiga lög að vera almenn – ekki sértæk. Björg Thorarensen, hæstaréttardómari og fyrr- verandi prófessor, hefur orðað þetta svo að löggjafinn væri kominn út fyrir valdsvið sitt ef hann „tæki með lögum ein- stakar ákvarðanir í málum sem eru á forræði stjórn- valda“. Doktor Haukur Arnþórsson stjórnmálafræðingur hefur rannsakað störf Alþingis og borið saman við Folketinget í Danmörku. Niðurstöður rann- sókna sinna birti hann í nýlegri bók og tiltók þar ýmis dæmi um þetta sem nefnt hér að framan: Að Alþingi hafi farið út fyrir valdmörk sín og breytt ákvörðunum framkvæmdar- valdshafa. Meðal dæma sem hann tiltekur er úrskurður stjórnvalds um ólögmæti lax- eldis á Vestfjörðum en sá úr- skurður var gerður ógildur með lögum. Þá nefnir hann líka dæmi um það þegar Alþingi virti að vettugi niðurstöðu Hæstaréttar um ólögmæti kosningar til stjórnlagaþings og skipaði þá sem kjörnir höfðu verið til „stjórnlagaráðs“. Haukur skrifar: „Rökstyðja má að hvort tveggja sé ekki bara valdníðsla heldur sennilega stjórnarskrárbrot því að í báð- um málum er gengið fram hjá valdi annarra valdþátta til þess að taka endanlegar ákvarðanir í málum sem eru á þeirra for- ræði.“ Þarna hefðu ekki verið settar nýjar almennar reglur heldur sértækar reglur sem miðuðust við tiltekið mál. Alltof stuttur málsmeðferðartími Haukur hefur raunar bent á æði margt sem hann telur af- laga fara í starfsemi Alþingis. Þar á meðal sé málsmeðferðar- tími frumvarpa. Hann segir málsmeðferðartímann hafa áhrif á réttmæti þinglegrar meðferðar og snerta um leið möguleika almennings og fjöl- miðla á að kynna sér mál og þá um leið hvort sjónarmið opin- berrar umræðu hafi náð að koma fram áður en lögin voru sett. Stuttur málsmeðferðar- tími kann einnig að leiða til þess að þingmönnum gefist ekki tóm til að kynna sér mál. Lágmarksmálsmeðferðar- tími lagafrumvarps eru fjórir dagar. Á Folketinget er megin- reglan sú að frumvarp komi ekki til fyrstu umræðu fyrr en fimm dögum eftir fram- lagningu og þriðja og síðasta umræðan má ekki fara fram fyrr en 30 dögum eftir fram- lagningu. Þar að auki getur minni- hlutinn í Folketinget (en þó að minnsta kosti tveir fimmtu hlutar þingmanna) alltaf frestað þriðju umræðu um tólf virka daga frá lokum annarrar umræðu. Engum slíkum neyð- arhemli er fyrir að fara hér og oftast hefst og lýkur þriðju um- ræðu um mál á Alþingi sama dag og annarri umræðu lýkur. Haukur segir sláandi hvað Alþingi flýti sér við lagasetn- ingu. Rannsókn hans hefur meðal annars leitt í ljós að ráð- herrar leggja fjórðung sinna mála fram í þinginu eftir að framlagningarfrestur er runn- inn út. Þar af leiðandi hefur þingheimur mun styttri tíma en ella til að kynna sér mál og sömuleiðis fjölmiðlar og allur almenningur. Þá er ekki góðs viti að mál sem lögð eru seint fram verða oftar að lögum en önnur. Möguleg afturför Rannsókn Hauks Arnþórs- sonar nær yfir tímabilið frá 1991-2018, en árið 1991 var deildaskipting Alþingis af- numin. Fram að þeim tíma voru lagafrumvörp rædd við þrjár umræður í efri og neðri deild. Á sama tíma voru heim- ildir til setningar bráðabirgða- laga þrengdar til að afstýra mögulegri misnotkun á þeim valdheimildum. Síðan þá hef- ur það varla hent að sett hafi verið bráðabirgðalög. Haukur bendir þó á að bráðabirgðalög fengu jafnan þinglega með- ferð hér áður fyrr þegar Al- þingi kom aftur saman. Aftur á móti fengju lög sem afgreidd væru með hraði ekki rétta þinglega meðferð. Lýðræðishalli Þessi mál ættu að vera sér- stakt athugunarefni nú þegar styttist í þinglok. Fjöldi mála bíður afgreiðslu og ef að líkum lætur mun stjórnarmeirihlut- inn láta mörg þeirra fá allt- of hraða afgreiðslu – jafnvel þannig að þriðja umræðan eigi sér varla stað – og án þess að almenningi og fjölmiðlum gefist kostur á að kynna sér málin. Og það sem verra er: Við blasir að margir þingmenn munu ekki hafa færi á að setja sig inn í mál í þeim mikla flýti við afgreiðslu sem fram undan er. Hér vantar í reynd verulega upp á að tiltekin grundvallar- skilyrði lýðræðislegra stjórn- arhátta séu virt. Þau óvönduðu vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við lagasetningu gera það að verk- um að alltof oft þarf að ráðast í veigamiklar úrbætur á nýlega settum lögum. Er nema von að almenningur beri lítið traust til Alþingis? n Er nema von að almenn- ingur beri lítið traust til Alþingis? Málsmeðferð­ artími laga­ frumvarpa hér á landi er oft mjög stuttur. MYND/ SIGTRYGGUR ARI Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason eyjan@eyjan.is SKOÐANAPISTILL ALÞINGI Í ÓGÖNGUM Rannsókn dr. Hauks Arnþórssonar stjórnmálafræðings hefur leitt í ljós alvarlega galla á meðferð lagafrum- varpa hér á landi. Þingmenn ná oft ekki að setja sig inn í mál. Framkvæmdin kann að stangast á við stjórnarskrá. 19. MARS 2021 DV Dr. Haukur Arnþórsson stjórnmála­ fræðingur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.