Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Síða 4
MEST LESIÐ Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST... Fosshótel verður sóttkvíarhótel Fosshótel Reykjavík verður sótttkvíarhótel frá og með 1. apríl samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar Íslands. Rauði krossinn mun hafa umsjón með sóttkvíarhótelinu auk þess sem farsótt- arhúsið við Rauðarárstíg verður áfram opið. Ekki er útilokað að fleiri sóttkvíarhótel verði opnuð í framhaldinu. Samkvæmt nýjum ráðstöfunum vegna COVID-19 á landamærum Íslands þurfa farþegar frá löndum þar sem 14 daga nýgengi COVID- smits er yfir 500 á hverja 100.000 íbúa að dvelja í húsnæði á vegum stjórnvalda á meðan á sóttkví eða einangrun stendur og ljóst var að núverandi gistipláss væru ekki nægjanleg til að anna þessum nýju, hertu reglum. Ferðamaður virti ekki sóttkví Nokkur þeirra tilfella kórónaveirusmits sem greinst hafa undanfarna daga hafa verið rakin til ferðamanns sem ekki virti sóttkví, samkvæmt Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni. Þórólfur segir klárt mál að ekki sé hægt að ráða við ótak- markaðan fjölda ferðamanna og halda uppi nauðsynlegum sóttvörnum á landamærunum. Nýjar hertar reglur á landa- mærunum tóku gildi á skírdag. Fyrrverandi bæjarstjóri ákærður Jónmundur Guðmarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Seltjarnar- ness og fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hefur verið ákærður fyrir meiriháttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum. Samkvæmt ákæru er Jónmundur sakaður um að hafa oftalið rekstrargjöld félags síns um tæpar 95 milljónir króna. Örtröð á gossvæði Mikil aðsókn hefur verið að gossvæðinu í Geldingadölum undanfarna daga, sem hefur valdið nokkrum erfiðleikum. Bílastæði eru af skornum skammti og hefur áfengisnotkun á svæðinu valdið lögreglu nokkrum áhyggjum. Mikið hefur ver- ið um rusl og tómar áfengisumbúðir á svæðinu og illa gengið um. Áhyggjur hafa einnig vaknað vegna samkomutakmarkana en talið er að þúsundir landsmanna og ferðamanna geri sér ferð að svæðinu á degi hverjum. Landeigendur hafa beðið gesti um að sýna tillitsemi og bera virðingu fyrir náttúrunni. Alvarlegt brot gegn siðareglum Helgi Seljan fjölmiðlamaður braut gegn siðareglum RÚV með því að hafa uppi ummæli á samfélagsmiðlum, samkvæmt nið- urstöðu siðanefndar Ríkisútvarpsins. Þessi niðurstaða hefur valdið nokkru fjaðrafoki og þykja siðareglur RÚV brjóta gegn stjórnarskrárbundnum réttindum fréttafólks til tjáningar- frelsis. Ríkisútvarpið hefur greint frá því að ráðist verði í endurskoðun á reglunum á næstunni. Meintu ósætti vísað á bug Guðjón Þórðarson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, sagði knatt- spyrnumanninn Gylfa Þór Sig- urðsson ekki hafa gefið kost á sér í landsliðið vegna meintra deilna við Eið Smára Guðjohn- sen, aðstoðarþjálfara liðsins. Þessi fullyrðing vakti mikla athygli en Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir ekkert hæft í þessum sögusögnum. Landsliðsfyrirliðinn Aron Ein- ar Gunnarsson segir ummæli Guðjóns galin og kjánaleg. 1 Maðurinn sem játað hefur morðið á Armando var í frétt- um í fyrra – virðist vera eftirlýstur í Albaníu Morðinginn í Rauða- gerði hafði áður verið bendlaður við hópslagsmál í Reykjavík og var eftirlýstur í Albaníu á síðasta ári. 2 Sigurður stígur fram eftir hryllingsárásina í Laugar- dalnum – „Heppin að vera ekki bæði dáin“ Sigurður Styff og sam- býliskona hans urðu fyrir hrottalegri árás árið 2016. 3 Bassi gagnrýndur fyrir framgöngu sína á Twitter – „Þetta er ekkert minna en ógeðslegt“ Bassi Maraj fór mikinn á Twitter og var gagnrýndur fyrir persónuárásir. 4 Íslenska þjóðin bálreið yfir sjónvarpinu – „Hvernig væri að hysja upp um sig buxurnar“ Ís- lendingar voru sárir þegar Armenía hafði betur gegn Íslandi í undan- keppni HM. 5 Berglindi voru boðnar 1,2 milljónir fyrir að fara á stefnumót – hún spurði um ástæð- una og þetta sagði hann Söng- konan Berglind Saga Bjarnadóttir fékk rausnarlegt boð á dögunum. 6 Nafn mannsins sem grun-aður er um morðið í Rauða- gerði Morðinginn í Rauðagerði heitir Angjelin Sterkaj. Hann hefur játað á sig ódæðið. 7 Segir Þröst hafa verið elti-hrelli sinn í mörg ár – „Nú er sannað að hann hafi framið þessa nauðgun“ Kona greindi frá því að Þröstur Thorarensen, sem hefur verið dæmdur fyrir nauðgun, hafi verið eltihrellir hennar árum saman. 8 „Algjörlega ömur-legar aðstæður“ segir móðir fermingarbarns – „Mér er eiginlega alveg sama þótt ég verði kölluð freka mamman“ Foreldrar fermingarbarns ákváðu að ferma þrátt fyrir samkomutakmarkanir og halda minni veislu í staðinn. BÍLASMIÐURINN HF. Þú hitar bílinn með fjarstýringu og nýtur þannig þæginda og öryggis ALDREI AÐ SKAFA! MEÐ WEBASTO BÍLAHITARA 4 FRÉTTIR 1. APRÍL 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.