Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Side 23
FÓKUS 23DV 1. APRÍL 2021
TÆKNIN NÝTIST
FJÖLSKYLDUM Í
SAMKOMUBANNI
S igrún Ósk Kristjánsdóttir, dagskrárgerðarkona á Stöð 2, segir að sér litist
heldur illa á að aftur sé komið
samkomubann sem miðast við
að hámarki 10 manns, og til
heyrandi skólalokanir. „Hvað
á maður að ganga langt í
hreinskilninni? Mér líst bara
afleitlega á þetta.“
Hún á tvo drengi á grunn
skólaaldri og gengur með
þriðja barn sitt og eigin
mannsins, Jóns Þórs Hauks
sonar.
Reynslunni ríkari
„Það er þó eins og maður sé
aðeins orðinn vondu vanur
og er reynslunni ríkari eftir
síðustu skipti. Nú veit ég til
dæmis að það er öllum fyrir
bestu að halda í einhverja
rútínu. Mæli til að mynda alls
ekki með því að slaka á hátta
tímanum. Það fer fljótt úr
böndunum.“
Sigrún deildi nýverið á Face
book að í síðasta samkomu
banni hafi fjölskyldan sótt
app sem hafi gagnast vel við
að halda rútínu.
„Við náðum okkur í app
sem heitir iRewardChart og
er svona umbunarkerfi sem
ég get alveg mælt með. Þar
getur maður sett inn verkefni
vikunnar og gefið stig eða
stjörnur fyrir þau verkefni
sem þeir ná að klára þann
daginn. Svo safna þeir sér
fyrir fyrir fram ákveðnum
verðlaunum. Dæmi um verk
efni eru heimalestur, annar
heimalærdómur, að fara út að
leika, vera kurteis, hjálpa til
við húsverk og svo framvegis.
Verðlaunin þurfa ekki endi
lega að vera merkileg. Geta
verið til dæmis ísrúntur eða
að fá að ráða hvað er í matinn
á sunnudegi.“
Hún segir strákana nokkuð
spennta fyrir heimaskólanum
en er nokkuð viss um að mesti
glansinn fari fljótt af því.
Foreldrar verða kennarar
„En þetta gæti svo sem hitt
verr á núna. Páskafríið fram
undan, súkkulaði, góður
matur og fyrir vikið fara ekki
allir dagar í að reyna að fela
sig undir sæng til að koma
einhverju í verk í vinnunni.
Mér finnst það erfiðast. Að
vera kennari, íþróttaþjálfari
og dagskrárgerðarkona í átta
tíma á dag.“
Henni finnst það erfiðasta
við að skólarnir séu lokaðir
vera skortur á félagsskap
jafnaldra fyrir börnin og þar
með einnig fyrir foreldrana.
Spurð hvort hún lumi á ein
hverjum leynitrixum fyrir
foreldra til að koma í veg fyrir
bugun mælir hún bara með
því að reyna að vera mátu
lega afslappaður gagnvart
ástandinu og muna að þetta
hlýtur allt að taka enda. „Ég
sleppi öllu samviskubiti yfir
súkkulaðiáti, horfi á léttara
sjónvarpsefni en venjulega og
hringi mjög reglulega í fólk
sem kemur mér til að hlæja.“
G uðmundur Jóhannesson, samskiptafulltrúi Símans og tæknigúrú,
á tvær hressar grunnskóla
stelpur með eiginkonu sinni.
Þegar kemur að skemmti
legum öppum til afþreyingar
mælir hann með leikjunum
Pokémon Go og Among Us.
Göngutúr með snjalltæki
„Það er tilvalið að fara út í
göngutúr með krökkunum að
safna Pokémonum í gegnum
snjalltækin. Eitthvað sem við
öll getum gert saman, og er
hreyfing og leikur í senn.
Among Us er tölvuleikur
sem virkar í næstum hvaða
tæki sem er. Frábær til að
spila með stórfjölskyldunni
yfir internetið í eina kvöld
stund eða svo.“
Þegar kemur að fróðleik er
Guðmundur líka sannkallaður
fróðleiksbrunnur. Þar mælir
hann með Krakka og ungl
ingavef Menntamálastofnunar
(https://mms.is/krakkavefir)
„Hér eru gagnvirk verkefni
sem fræða og skemmta í
páskafríinu. Góð upprifjun
fyrir foreldra og nýr fróð
leikur fyrir krakkana.“
Teikna á tölvu
Þá stingur hann einnig upp á
að leyfa krökkum að nota tölv
una til að teikna, til dæmis á
vefnum kleki.com.
„Börnin fá að lita í tölv
unni sem þeim finnst gaman,
þetta þjálfar þau yngri að
nota tölvumús og stunda list
sköpun. Það er gott fyrir yngri
kynslóðina að kynnast tölvu
músinni sem annars er hverf
andi listgrein sökum þess að
við notum svo mikið snerti
skjái. Á sama hátt mætti svo
skrifa smásögu tengda mynd
inni í Word til að venjast því
að skrifa á lyklaborð.“ n
Synirnir safna sér
fyrir verðlaunum
Fjörugt og fræðandi
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
Gummi Jó,
eins og hann
er alltaf
kallaður,
kann að hafa
ofan af fyrir
dætrunum.
MYND/AÐSEND
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir er reynslunni ríkari. MYND/VALLI
APPIÐ IREWARDCHART
POKÉMON GO
Samkomubann og skólalokanir geta
reynt mikið á fjölskyldulífið. Tæknin
getur komið að góðum notum til að
gera þennan tíma bærilegri fyrir alla
og skiptir þá litlu hvort leitað er að
skemmtilegum fróðleik eða fræðslu.