Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Side 28
28 FÓKUS
Kokteilar til að
kæta í Kóvid
Fjórða bylgjan er hafin og er að taka sinn toll. Við
erum hálfnuð með þriggja vikna samkomubann,
barir lokaðir og blúsinn á næsta leyti. Þá er gott
að muna að maður er manns gaman, rífa fram spil
og bjóða nánum vinum í einn drykk.
1. APRÍL 2021 DV
UPPSKRIFTIRNAR VORU FENGNAR FRÁ TIKTOK, SEACOST MOMS OG FORBES.
Corona Sunrise
Þessi sumarlegi drykkur hefur
verið að vekja mikla athygli á Tik-
Tok undanfarið. Netverjar skiptast
á að prófa þennan drykk, sem
virðist smakkast betur en hann
hljómar.
Corona í gleri
30 ml tekíla
90 ml appelsínusafi
Dass af grenadine
Límónusneið
Drekktu úr Corona-flöskunni þar til
komið er niður að merki.
Bættu við tekíla, appelsínusafa og
grenadine.
Skreyttu með límónusneið.
Screwdriver með tvisti
Einfaldasti drykkurinn og stútfullur af C-vítamíni. Ertu
að drekka kokteil eða heilsudrykk?
120 ml vodka
1 tsk. ylliberjasíróp
120 ml appelsínusafi
Fylltu glas með klaka.
Settu vodka og ylliberjasíróp í glasið.
Fylltu með appelsínusafa, hrærðu og njóttu.
Garibaldi
Klassískur og einfaldur kokteill
sem klikkar ekki.
45 ml Campari
Ferskur appelsínusafi
Settu tvo ísmola í glas. Bættu við
Campari og dassi af appelsínu-
safa, blandaðu vel.
Bættu við einum ísmola og fylltu
glasið af appelsínusafa.
Skreyttu með appelsínusneið.
Engifermargaríta
Kröftugur og öðruvísi kokteill sem
hressir þig við. Mögulega gott við
kvefi. Eða ekki.
60 ml tekíla
30 ml ferskur límónusafi*
1,5 msk agavesíróp
15 ml ferskur engifersafi*
*ef þú nennir ekki að
kreista sítrónu og gera
engifersafa, kauptu bara
tilbúið til að einfalda verkin.
Blandaðu tekíla og límónusafa
saman. Bættu síðan við agave-
sírópinu og engifersafanum.
Mamma þarf kaffitíní
Þessi er einfaldur en orkumikill. Eftir langan dag með
börnin heima þá eiga allir foreldrar þennan skilið –
fljótandi eftirréttur til að skála í þegar heimilið er komið
í ró. Ef þú ert barnlaus þá áttu hann samt skilið. Því
halló, COVID!
120 ml vodka
60 ml Kahlua
60 ml ískaffi eða espresso
Fylltu kokteilhristara með klaka.
Notaðu skotglas til að mæla vodkað, eða ekki. Farðu
bara eftir tilfinningu ef þetta hefur verið erfiður dagur.
Settu jafn mikið af Kahlua og kaffi.
Hristu og sigtaðu í kokteilglas.
Sóttkvíarkokteillinn
Þessi er í fínni kantinum en með einföldum hráefnum.
Þú þarft kokteilaglas ef þú vilt gera upplifunina alvöru.
30 ml Cointreau
30 ml trönuberjasafi
45 ml gin
15 ml eplasafi
Toppað með kampavíni – eða freyðivíni
Settu Cointreau, trönuberjasafa, gin og eplasafa í
kokteilhristara með klaka og hristu vel saman í 10-15
sekúndur.
Sigtaðu vökvann í kalt kokteilglas. Fylltu glasið með
kampavíni og skreyttu með eplasneið.
Faraldursbolla
Ef þú vilt ekki blanda alltaf einn
drykk í einu, þá skellurðu í gam-
alds „bollu“, það er að segja stór
kokteiluppskrift í könnu. Þennan
er best að undirbúa með fyrirvara.
1 flaska hvítvín
330 ml Sprite
350 ml límonaði
2 bollar frosin ber
1/3 bolli sykur
Blandaðu hvítvíni, límonaði, ávöxt-
unum og sykrinum í könnu.
Settu lok yfir og geymdu í ísskáp
yfir nótt.
Bættu við Sprite og fylltu glas með
klaka áður en þú hellir drykknum.