Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 28
28 FÓKUS Kokteilar til að kæta í Kóvid Fjórða bylgjan er hafin og er að taka sinn toll. Við erum hálfnuð með þriggja vikna samkomubann, barir lokaðir og blúsinn á næsta leyti. Þá er gott að muna að maður er manns gaman, rífa fram spil og bjóða nánum vinum í einn drykk. 1. APRÍL 2021 DV UPPSKRIFTIRNAR VORU FENGNAR FRÁ TIKTOK, SEACOST MOMS OG FORBES. Corona Sunrise Þessi sumarlegi drykkur hefur verið að vekja mikla athygli á Tik- Tok undanfarið. Netverjar skiptast á að prófa þennan drykk, sem virðist smakkast betur en hann hljómar. Corona í gleri 30 ml tekíla 90 ml appelsínusafi Dass af grenadine Límónusneið Drekktu úr Corona-flöskunni þar til komið er niður að merki. Bættu við tekíla, appelsínusafa og grenadine. Skreyttu með límónusneið. Screwdriver með tvisti Einfaldasti drykkurinn og stútfullur af C-vítamíni. Ertu að drekka kokteil eða heilsudrykk? 120 ml vodka 1 tsk. ylliberjasíróp 120 ml appelsínusafi Fylltu glas með klaka. Settu vodka og ylliberjasíróp í glasið. Fylltu með appelsínusafa, hrærðu og njóttu. Garibaldi Klassískur og einfaldur kokteill sem klikkar ekki. 45 ml Campari Ferskur appelsínusafi Settu tvo ísmola í glas. Bættu við Campari og dassi af appelsínu- safa, blandaðu vel. Bættu við einum ísmola og fylltu glasið af appelsínusafa. Skreyttu með appelsínusneið. Engifermargaríta Kröftugur og öðruvísi kokteill sem hressir þig við. Mögulega gott við kvefi. Eða ekki. 60 ml tekíla 30 ml ferskur límónusafi* 1,5 msk agavesíróp 15 ml ferskur engifersafi* *ef þú nennir ekki að kreista sítrónu og gera engifersafa, kauptu bara tilbúið til að einfalda verkin. Blandaðu tekíla og límónusafa saman. Bættu síðan við agave- sírópinu og engifersafanum. Mamma þarf kaffitíní Þessi er einfaldur en orkumikill. Eftir langan dag með börnin heima þá eiga allir foreldrar þennan skilið – fljótandi eftirréttur til að skála í þegar heimilið er komið í ró. Ef þú ert barnlaus þá áttu hann samt skilið. Því halló, COVID! 120 ml vodka 60 ml Kahlua 60 ml ískaffi eða espresso Fylltu kokteilhristara með klaka. Notaðu skotglas til að mæla vodkað, eða ekki. Farðu bara eftir tilfinningu ef þetta hefur verið erfiður dagur. Settu jafn mikið af Kahlua og kaffi. Hristu og sigtaðu í kokteilglas. Sóttkvíarkokteillinn Þessi er í fínni kantinum en með einföldum hráefnum. Þú þarft kokteilaglas ef þú vilt gera upplifunina alvöru. 30 ml Cointreau 30 ml trönuberjasafi 45 ml gin 15 ml eplasafi Toppað með kampavíni – eða freyðivíni Settu Cointreau, trönuberjasafa, gin og eplasafa í kokteilhristara með klaka og hristu vel saman í 10-15 sekúndur. Sigtaðu vökvann í kalt kokteilglas. Fylltu glasið með kampavíni og skreyttu með eplasneið. Faraldursbolla Ef þú vilt ekki blanda alltaf einn drykk í einu, þá skellurðu í gam- alds „bollu“, það er að segja stór kokteiluppskrift í könnu. Þennan er best að undirbúa með fyrirvara. 1 flaska hvítvín 330 ml Sprite 350 ml límonaði 2 bollar frosin ber 1/3 bolli sykur Blandaðu hvítvíni, límonaði, ávöxt- unum og sykrinum í könnu. Settu lok yfir og geymdu í ísskáp yfir nótt. Bættu við Sprite og fylltu glas með klaka áður en þú hellir drykknum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.