Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Page 32
Breska konungsfjölskyldan er ekki eins og fólk er
flest. Um hana gilda ýmsar reglur sem við hin eig-
um kannski erfitt með að skilja. Þær byggja á hefð-
um, venjum, persónulegum smekk og að sjálfsögðu
eru ýmsar reglur til að tryggja öryggi aðalsins.
Klikkaðar reglur úr
Buckinghamhöll
32 FÓKUS
MYNDIR/GETTY
AÐALDAMAN FYRST
Filippus prins skal ganga tveimur skrefum á eftir eigin-
konu sinni því hún er drottning og æðri honum.
HATTAR FYRIR SEX
Konunarnar í konungsfjölskyldunni eiga að vera með
hatta á almannafæri. Nema ef klukkan er orðin 18.00,
þá er skipt yfir í kórónu, ef konurnar eru giftar.
SKILABOÐASKJÓÐA
Elísabet drottning sést sjaldan án handtösku. Hana
notar hún til að senda aðstoðarfólki sínu og öðrum
skilaboð. Ef hún leggur töskuna á matarborðið er
matartíminn á enda. Ef hún færir töskuna frá vinstri
til hægri handar þá vill hún að samræðum ljúki. Ef hún
leggur töskuna á gólfið þá er hún í leiðinlegu samtali
og þarf björgun.
NEON-DROTTNING
Elísabet drottning klæðir sig í
skæra liti. Það er ekki vegna þess
að hún kýs það sjálf heldur svo að
hún sjáist betur í margmenni.
BANNAÐ AÐ SKAMMA
Það er bannað að aga hunda
drottningar og þeir eru með sinn
eigin kokk sem eldar fyrir þá frá
grunni eftir gúrmet-matseðli.
FYRST TIL HÆGRI, SVO TIL VINSTRI
Við formleg matarboð þarf drottningin að byrja á því
að spjalla við manneskjuna sem situr henni á hægri
hönd. Þegar næsti réttur er borinn fram snýr hún sér
að manneskjunni á vinstri hönd.
RYKSUGAN EKKI Á FULLU
Það er bannað að ryksuga í Buck-
inghamhöll fyrir klukkan 10.00 á
morgnana til að raska ekki svefn-
friði konungsfjölskyldunnar.
MATURINN BÚINN
Þegar drottningin er búin að
borða þá eru allir búnir að borða.
Það væri gífurlegur dónaskapur
að fá sér bita eftir að drottningin
er búin.
EKKI SNÚA BAKI Í DROTTNINGU
Þegar drottningin stendur, þá stendur þú líka og þú
snýrð ekki baki í drottninguna heldur snýr hún baki
í þig.
KÁLHAUS
Það er bannað að nota gælunöfn
yfir konungsmeðlimi, nema ef þú
ert í þeirra innsta, innsta hring.
Filippus prins kallar drottninguna
Cabbage sem á íslensku þýðir kál-
haus.
SVÖRTU FÖTIN MEÐ
Konungsfjölskyldan má ekki
ferðast án þess að taka með sér
sorgarklæðnað.
BARA EF ÞAÐ ER BRESKT
Drottningin má ekki setjast í há-
sæti sem er ekki breskt. Ekki einu
sinni sjálft járnhásætið úr þátt-
unum Game of Thrones.
ÓSÝNILEGIR STARFSMENN
Starfsmenn eiga helst ekki að
sjást eða heyrast. Þeir eiga að
blandast inn í bakgrunninn og láta
lítið fara fyrir sér.
BANNAÐ AÐ KEPPA
Spilið Monopoly er sagt bannað í
höllinni. Það olli víst illindum. Eins
er bannað að vinna drottninguna
í látbragðsleik. Hún tekur því víst
illa að sögn barnabarns hennar,
Harrýs prins.
ENGA MATAREITRUN, TAKK
Konungsfjölskyldan má ekki
borða skelfisk. Skelfiskur er lík-
legur til að valda eitrun eða of-
næmisviðbrögðum og þá áhættu
tekur kóngafólkið ekki.
AÐSKILDIR Á FERÐALÖGUM
Prinsarnir Karl, Vilhjálmur og Georg mega ekki ferðast
saman. Þeir eru nefnilega arftakar krúnunnar og gæta
þarf þess að þeir farist ekki samtímis.
1. APRÍL 2021 DV