Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 32
Breska konungsfjölskyldan er ekki eins og fólk er flest. Um hana gilda ýmsar reglur sem við hin eig- um kannski erfitt með að skilja. Þær byggja á hefð- um, venjum, persónulegum smekk og að sjálfsögðu eru ýmsar reglur til að tryggja öryggi aðalsins. Klikkaðar reglur úr Buckinghamhöll 32 FÓKUS MYNDIR/GETTY AÐALDAMAN FYRST Filippus prins skal ganga tveimur skrefum á eftir eigin- konu sinni því hún er drottning og æðri honum. HATTAR FYRIR SEX Konunarnar í konungsfjölskyldunni eiga að vera með hatta á almannafæri. Nema ef klukkan er orðin 18.00, þá er skipt yfir í kórónu, ef konurnar eru giftar. SKILABOÐASKJÓÐA Elísabet drottning sést sjaldan án handtösku. Hana notar hún til að senda aðstoðarfólki sínu og öðrum skilaboð. Ef hún leggur töskuna á matarborðið er matartíminn á enda. Ef hún færir töskuna frá vinstri til hægri handar þá vill hún að samræðum ljúki. Ef hún leggur töskuna á gólfið þá er hún í leiðinlegu samtali og þarf björgun. NEON-DROTTNING Elísabet drottning klæðir sig í skæra liti. Það er ekki vegna þess að hún kýs það sjálf heldur svo að hún sjáist betur í margmenni. BANNAÐ AÐ SKAMMA Það er bannað að aga hunda drottningar og þeir eru með sinn eigin kokk sem eldar fyrir þá frá grunni eftir gúrmet-matseðli. FYRST TIL HÆGRI, SVO TIL VINSTRI Við formleg matarboð þarf drottningin að byrja á því að spjalla við manneskjuna sem situr henni á hægri hönd. Þegar næsti réttur er borinn fram snýr hún sér að manneskjunni á vinstri hönd. RYKSUGAN EKKI Á FULLU Það er bannað að ryksuga í Buck- inghamhöll fyrir klukkan 10.00 á morgnana til að raska ekki svefn- friði konungsfjölskyldunnar. MATURINN BÚINN Þegar drottningin er búin að borða þá eru allir búnir að borða. Það væri gífurlegur dónaskapur að fá sér bita eftir að drottningin er búin. EKKI SNÚA BAKI Í DROTTNINGU Þegar drottningin stendur, þá stendur þú líka og þú snýrð ekki baki í drottninguna heldur snýr hún baki í þig. KÁLHAUS Það er bannað að nota gælunöfn yfir konungsmeðlimi, nema ef þú ert í þeirra innsta, innsta hring. Filippus prins kallar drottninguna Cabbage sem á íslensku þýðir kál- haus. SVÖRTU FÖTIN MEÐ Konungsfjölskyldan má ekki ferðast án þess að taka með sér sorgarklæðnað. BARA EF ÞAÐ ER BRESKT Drottningin má ekki setjast í há- sæti sem er ekki breskt. Ekki einu sinni sjálft járnhásætið úr þátt- unum Game of Thrones. ÓSÝNILEGIR STARFSMENN Starfsmenn eiga helst ekki að sjást eða heyrast. Þeir eiga að blandast inn í bakgrunninn og láta lítið fara fyrir sér. BANNAÐ AÐ KEPPA Spilið Monopoly er sagt bannað í höllinni. Það olli víst illindum. Eins er bannað að vinna drottninguna í látbragðsleik. Hún tekur því víst illa að sögn barnabarns hennar, Harrýs prins. ENGA MATAREITRUN, TAKK Konungsfjölskyldan má ekki borða skelfisk. Skelfiskur er lík- legur til að valda eitrun eða of- næmisviðbrögðum og þá áhættu tekur kóngafólkið ekki. AÐSKILDIR Á FERÐALÖGUM Prinsarnir Karl, Vilhjálmur og Georg mega ekki ferðast saman. Þeir eru nefnilega arftakar krúnunnar og gæta þarf þess að þeir farist ekki samtímis. 1. APRÍL 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.