Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15
og gallana við hormónameð
ferðir,“ segir Ásgeir og bætir
við að upplýsingar séu mun að
gengilegri í dag en áður. Hann
tekur það þó skýrt fram að
það skipti miklu máli hvaðan
fólk sækir sér upplýsingar.
Það virðist vera orðið algengt
að fólk leiti læknisráða á Fa
cebook og í vinsælum Face
bookhópum eins og Beauty
Tips eða Mæðra Tips og hefur
Ásgeir tekið eftir þeirri aukn
ingu. En hann bendir á að
besta leiðin til að nálgast ör
uggar upplýsingar sé að notast
við áreiðanlegar síður eins og
heilsuvera.is.
Ásgeir segir að það sé bæði
jákvætt og neikvætt að slík
umræða hafi aukist á sam
félagsmiðlum, eins og þegar
netverjar deila persónulegum
sögum af tilteknum getnaðar
vörnum.
„Það jákvæða er að þær eru
þá skeptískar, eru að velta
fyrir sér aukaverkunum og
eru betur upplýstar. En gall
inn við það er sá að þær eru þá
kannski búnar að útiloka ein
hverja getnaðarvörn sem gæti
hentað þeim vel, en þær lásu
kannski um eitthvað slæmt til
felli á samfélagsmiðlum.“
„Það er svo mikið af upplýs
ingum og það getur verið erfitt
fyrir fólk að hafa stjórn á því
hvað er raunverulega rétt og
hvað er algilt, og hvað er ein
faldlega rangt. En það er mjög
jákvætt að konur í dag eru vel
upplýstar og geti auðveldlega
nálgast upplýsingar. Sumar
getnaðarvarnir eru raunveru
lega hættulegar fyrir konur
með ákveðna áhættuþætti eða
í ákveðnum aldurshópum, og
það er gott að konur séu með
vitaðar um það. Þetta skiptir
máli og það skiptir máli að að
gengi sé gott og að upplýsing
arnar séu réttar.“
Áhættuþættir
Ásgeir bætir við að það sé
mikilvægt að konur ræði
þessi mál, kosti og galla, við
heilbrigðisstarfsfólk sem
kann vel á þetta. „Vegna þess
að eitthvað sem gæti hentað
einni konu, gæti hentað ann
arri á sama aldri illa. Það
geta verið alls konar þættir,
áhættuþættir eru aldurinn,
reykingar eða saga um reyk
ingar, fyrri reynsla af mis
munandi getnaðarvörnum og
allt þetta,“ segir hann.
„Það skiptir miklu máli til
dæmis að kona sem er að fara
á pilluna, að hún raunverulega
treysti sér til að taka pilluna
rétt. Ef konur eru að lenda í
því aftur og aftur að þær séu
að gleyma pillunni eða ekki að
taka hana á réttum tíma, þá er
það merki um að þetta sé ekki
getnaðarvörn sem henti við
komandi. Þá er skynsamlegra
að fara í eitthvað meira lang
verkandi. Það eru svona hlutir
sem maður þarf að taka inn í
heildarmatið til ráðlegginga til
konunnar. Pillan er ekki góð
ef hún er ekki tekin hundrað
prósent rétt. Þá geturðu ekki
treyst á hana. Ef þú tekur
hana 100 prósent rétt þá er
þetta mjög góð getnaðarvörn
en ef þú getur það ekki þá er
skynsamlegra að fara í aðra
langverkandi getnaðarvörn.
Eins og með þriggja mánaða
sprautuna þarftu að fara og
láta sprauta þig á þriggja
mánaða fresti, með getn
aðarvarnarhringinn þarftu
að skipta honum út á þriggja
vikna fresti, en ekki eitthvað
sem þú þarft að muna eftir á
hverjum degi.“
Blóðtappar
Meðal sjaldgæfari og alvar
legri aukaverkana pillunnar
eru meðal annars blóðtappar.
Ásgeir segir að áhættan sé
verulega lítil en sé meiri hjá
konum með áhættuþætti.
„Blóðtappahættan er vissu
lega raunveruleg hjá konum
sem eru á pillunni en hún er
verulega lítil og ef það eru
ekki áhættuþættir til staðar
þá hefur maður almennt ekki
áhyggjur af blóðtöppum,“
segir hann og nefnir helstu
áhættuþættina. „Það eru
reykingar, fyrri saga um
blóðtappa, hjarta og æðasjúk
dómar og aldur, þá konur yfir
um það bil 35 ára. Fyrir konur
undir 35 ára og ekki með aðra
áhættuþætti þá er blóðtappa
hætta á pillunni verulega
lítil. Hún er ekki núll. Það er
ákveðin áhætta en hættan er
mjög lítil.“
Aukaverkanir
Sigríður Pálína Arnardóttir
lyfjafræðingur segir helstu
aukaverkanir pillunnar vera
ógleði, kviðverki, minnkaða
kynhvöt, þurrk í leggöngum,
höfuðverk, eymsli í brjóstum
og fótapirring. „Fæstir finna
fyrir aukaverkunum, þær eru
mjög litlar. Pillan er orðin
vægari en hún var áður fyrr.“
Sigríður segir að smápillan,
eða brjóstapillan eins og hún
er þekkt, sé með enn minni
aukaverkanir.
Reykingar auka áhættu
„Það er mjög sjaldgæft en
það eru aðeins auknar líkur
á blóðtappamyndun ef þú ert
á pillunni. Það er mjög mikil
vægt að fylgjast með því ef
maður verður andstuttur eða
fær verki í handlegg eða fót
legg, að fara til læknis. Eins ef
það er möguleiki á blóðtappa í
lungum að leita strax til læknis
og vera vakandi fyrir því, en
þetta er mjög sjaldgæft. Það
er ekki hætta á blóðtappa á
smápillunni. En á samsettu
pillunni er aðeins möguleiki.
En allar þessar aukaverkanir
eru miklu minni eftir því sem
skammtarnir eru lægri,“ segir
Sigríður og bætir við að reyk
ingar samtímis notkun pillunn
ar auki áhættu á blóðtöppum.
Kostir og gallar
„Kostirnir við pilluna eru að
hún minnkar líkurnar á að
maður fái sýkingu í eggja
leiðina því slímið verður
seigara og það hindrar bakt
eríur í að koma inn í legið, og
það minnkar líka tíðaverki og
blæðingarnar verða reglulegri.
Það getur verið fyrirbyggjandi
því að fá krabbamein í legið,
eggjastokkana og þarmana og
getur virkað á móti kvisum (e.
acne), bólum í andliti. Auðvitað
eru pillurnar mismunandi og
mismunandi samsettar,“ segir
Sigríður.
Taktu pilluna rétt
Það er mikilvægt að konur
taki pilluna rétt. Á hverjum
degi á sama tíma sólarhrings
ins. Sigríður mælir með að
fólk taki pilluna sér, ekki með
öðrum lyfjum. „Það skiptir
öllu máli að taka hana ekki
með öðrum lyfjum. Það er
voða gott að taka hana bara
sér því þetta er hormón og
lítill skammtur, gott að taka
hana með glasi af vatni og
bíða í hálftíma þar til þú borð
ar. Það má alveg borða á sama
tíma en allt sem þú innbyrðir
á sama tíma getur haft áhrif,“
segir hún.
„Ef þú kastar upp eða færð
niðurgang skömmu eftir að
þú tekur pilluna þá er gott að
taka aðra.“
Önnur lyf og greipaldin
Sigríður segir að það sé mikil
vægt að konur séu meðvitaðar
um hvaða öðrum lyfjum þær
eru á þegar kemur að því að
velja getnaðarvarnarpillu.
„Það skiptir máli fyrir þær
sem eru með flogaveiki eða
sykursýki hvaða getnaðar
vörn þær eru á. Það geta verið
milliverkanir milli ppillunn
ar og flogaveikilyfja. Svo get
ur greipaldin aukið aukaverk
anir, því það minnkar frásogið
eða útskilnað af hormóninu,“
segir hún.
„Það er annars vegar að lyf
getur aukið útskilnað og þá er
hún ekki eins örugg vörn, og
svo eru það einhver lyf sem
geta aukið aukaverkanir.“ n
DV 1. APRÍL 2021
Ef þú ert búin að vera á pillunni í X langan tíma þá getur
það tekið langan tíma fyrir þig að verða ólétt eftir að þú
hættir á henni.
Ásgeir: „Þetta á yfirleitt ekki við. Sérstaklega þar
sem pillan er ekki langverkandi getnaðarvörn og fer úr
líkamanum eftir stuttan tíma. Eftir mjög stuttan tíma
eru hormónin farin úr líkamanum. Hins vegar getur tekið
tíma fyrir tíðahringinn að verða reglulegur aftur og fyrir
kerfið að jafna sig og komast í eðlilegt horf aftur. Það
er mýta að þú sért lengur að verða þunguð eftir að
hafa verið á pillunni. Eftir tiltölulega stuttan tíma eftir
að hafa hætt á pillunni ertu á sama stað og áður hvað
varðar frjósemi.
Það er mismunandi milli getnaðarvarna, sumar konur
eru kannski aðeins lengur að komast í reglulegan tíða-
hring eftir að hafa verið á getnaðarvarnasprautunni,
sem dugar í þrjá mánuði í senn, heldur en pillunni. Sama
með hormónalykkjuna, það tekur aðeins lengri tíma. Hins
vegar eru hormónin farin úr líkamanum eftir tiltölulega
stuttan tíma.“
Ég get orðið ólétt í pillupásunni.
Ásgeir: „Nei. Ef þú hefur verið að taka pilluna rétt eins
og leiðbeiningar segja til um þá ertu ekki í hættu á því,
þá ertu örugg allan tíðahringinn.
Sýklalyf draga úr virkni pillunnar.
Sigríður: „Það sem sýklalyf gera er að þau hafa áhrif
á bakteríuflóruna og geta þannig haft áhrif á upptöku
p-pillunnar. Eins ef einstaklingur kastar upp eða fær
niðurgang stuttu eftir inntöku pillunnar.
Árið 2015 gaf evrópska lyfjastofnunin út leiðbeiningar
um það að almenn taka sýklalyfja og p-pillunnar hefðu
ekki eða lítil áhrif hvort á annað. Ekki þessi venjulegu
og almennu sýklalyf. Breiðvirk sýklalyf geta haft áhrif.
Lyf sem að gefið er við berklum minnkar verkunina en
það er sjaldan notað. Gott er að taka pilluna eina og
sér með glasi af vatni. Fá ráð hjá lækni, ljósmóður eða
lyfjafræðingi þegar önnur lyf eru tekin. Passa þá upp á
getnaðarvörnina.“
MÝTUR UM PILLUNA
Ásgeir Thoroddsen kvensjúkdómalæknir Sigríður Pálína Arnardóttir lyfjafræðingur
MISMUNANDI
GETNAÐARVARNIR
Getnaðarvarnarpillan
• Pillan er til af tveimur gerðum.
Önnur tegundin inniheldur tvö
hormón, estrógen og gestagen
en hin eitt hormón, gestagen.
Hormónalykkjan
• Lykkja er lítill T-laga plast-
hlutur sem læknir kemur fyrir
inni í leginu. Á lykkjunni er lítið
hormónahylki sem gefur frá
sér örlítinn skammt af horm-
ónum jafnt og þétt og inni-
heldur hormónið gestagen.
Koparlykkjan
• Er úr plasti og örlitlum kopar
sem er til þess að auka áhrifin.
Lykkjan er mjög smár T-laga
hlutur sem læknir kemur fyrir
inni í leginu. Kemur í veg fyrir
þungun en hefur engin önnur
áhrif á líkamann.
Hormónasprauta
• Sprautan er í formi stungu-
lyfs og inniheldur hormónið
gestagen. Hún er gefin í vöðva
á þriggja mánaða fresti.
Hormónastafur
• Inniheldur hormónið gestagen
og er lyfið í litlum plaststaf
sem læknir kemur fyrir undir
húðinni á upphandleggnum.
Hver stafur endist í þrjú ár.
Hormónahringur
• Grannur plasthringur sem
er 5 cm í þvermál. Hann inni-
heldur hormónin estrógen og
gestagen. Við fyrstu notkun er
hringnum komið fyrir í leggöng-
um eftir blæðingar og hann er
hafður þar í þrjár vikur. Þá er
hann fjarlægður og nýr hringur
settur upp eftir eina viku.
Hormónaplástur
• Inniheldur hormónin estrógen
og gestagen. Í plástrinum er
forðalyf sem endist í eina viku.