Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 16
Íslendingar vinna mikið. Þetta er staðreynd. Sam-kvæmt Efnahags- og fram- farastofnuninni, OECD, vann 15,1 prósent vinnandi Íslend- inga meira en fimmtíu vinnu- stundir að meðaltali í viku hverri sem er töluvert hærra en meðaltal OECD sem er 11 prósent. Við vinnum sam- kvæmt þessum tölum meira en öll hin Norðurlöndin, en sem dæmi vinnur aðeins eitt pró- sent Svía meira en fimmtíu klukkustundir á viku. Aðeins átta lönd vinna meira en við og meðal þeirra landa er Japan, Kórea og Tyrkland. Þetta hefur óhjákvæmilega í för með sér að sumum reynist erfitt að finna tíma til að sinna sjálfum sér, enda frítími þá hlutfallslega minni. Það getur haft neikvæð áhrif á líkam- lega og andlega heilsu. Kulnun (e. burnout) er sál- fræðileg lýsing á afleiðingum langvinnrar streitu og sam- kvæmt Alþjóðaheilbrigðis- málastofnuninni (WHO) er um að ræða ástand sem verður til vegna langvarandi álags í vinnu. Til glöggvunar má hugsa sér kulnun, með ein- földun, sem nokkurs konar andlegt gjaldþrot. Kulnaður einstaklingur hefur örmagn- ast eftir viðvarandi streitu og er uppgefinn á líkama og sál. Þó að margar skilgreiningar á kulnun vísi til streituvalda í vinnu þá hafa rannsóknir einnig sýnt fram á að streita geti tengst öðrum þáttum. Ekki það sama og þunglyndi Kulnun er alls ekki nýtt hug- tak þó það hafi orðið meira áberandi undanfarin ár, en skilgreiningin hefur verið til í að verða hálfa öld. Margir gætu velt því fyrir sér hvort kulnun sé ekki í raun annað nafn á þunglyndi, en svo er ekki. Þunglyndi er sjúkdóm- ur sem snertir alla fleti dag- legs lífs þeirra sem við hann glíma en kulnun í starfi krist- allast í kringum vinnustaðinn. Kulnun er heldur ekki skil- greind sem sjúkdómur, heldur ástand sem getur í sumum til- vikum valdið þunglyndi. Óvíst með áhrif COVID Við upphaf kórónaveirufar- aldursins vöknuðu áhyggjur um að kulnun gæti aukist, þá sérstalega meðal starfsstétta framlínustarfsmanna. Berg- lind Stefánsdóttir, verkefna- stjóri hjá VIRK, segir ekki tímabært sem stendur að meta langtímaáhrif faraldursins, en VIRK er endurhæfingarsjóður sem hjálpar fólki með heilsu- brest að komast aftur eða í auknum mæli inn á vinnu- markað. Meðal annars tekur VIRK á móti einstaklingum í kulnun. „Það er ekki tímabært að segja til um það hver lang- tímaáhrif eru af því álagi sem skapast hefur í kringum CO- VID. COVID hefur vissulega margvísleg áhrif, nánast jafn margvísleg og við erum mörg. Fólk er ýmist að takast á við langvarandi einkenni þess að smitast sjálft, atvinnumissi, skipulagsbreytingar á vinnu- stöðum og mögulega hafa þessar aðstæður haft áhrif á undirliggjandi heilsubresti. Nýlega skerpti Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin enn frekar á skilgreiningu kuln- unar. Kulnun hafði verið skil- greind mjög vítt í flokkunar- kerfi stofnunarinnar hingað til en þó ekki sem sjúkdómur eða röskun. Í dag skilgreinir hún kulnun sem ástand sem verður til vegna langvarandi álags í vinnu. Einnig er skerpt á því hvað myndi ekki flokkast sem kulnun í starfi og þar tilgreint að ef aðrir þættir lífsins skýri stöðu einstaklings eigi hug- takið kulnun ekki við.“ Engar formlegar tölur Gallup birti niðurstöður könn- unar sinnar á síðasta ári sem bentu til þess að kulnun sé nokkurt vandamál hér á landi en samkvæmt niðurstöðu könnunarinnar töldu 60 pró- sent svarenda sig hafa upp- lifað kulnun einhvern tímann á ævinni og 35 prósent töldu sig vera í kulnunarástandi. Samkvæmt Berglindi eru þó ekki til neinar eiginlegar opin- berar tíðnitölur um kulnun á Íslandi. Því sé erfitt að meta hvort kulnun sé að aukast í samfélaginu eða ekki og þó svo mikill meirihluti þeirra sem leiti til VIRK séu konur þá sé almennt ekki talið að kulnun sé algengari meðal kvenna og ekki allir sem leiti til VIRK glími við kulnun. „Erlendar rannsóknir hafa ekki verið á sama máli hvað EKKI VINNA ÞIG Í ÞROT Íslendingar vinna mest allra á Norðurlöndunum og könnun Gallup frá því í fyrra bendir til að meirihluti Íslendinga finni einhvern tímann fyrir einkenn- um kulnunar. Karlmaður lýsir reynslunni af kulnun sem algjörri örmögnun. 16 FRÉTTIR 1. APRÍL 2021 DV Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is BJARGRÁÐ GEGN KULNUN Á VINNUSTAÐ • Starfsmenn geta haft áhrif á mikilvægar ákvarðanir sem tengjast starfi og aðstæðum. • Starfsmenn eiga góð félagsleg tengsl við samstarfsfólk. • Starfsmenn upplifa að starfið þeirra og framlag skipti máli. • Starfsmenn fá viðurkenningu fyrir framlag sitt. . • Starfsmenn hafa yfirsýn yfir verkefnin. • Kröfur til starfsmanna eru hæfi- legar. HÆTTUMERKI FYRIR VINNUVEITENDUR TIL AÐ HAFA AUGA MEÐ • Starfsmaður vinnur lengur en venjulega, t.d. er að senda tölvupósta um miðja nótt. • Starfsmaður virðist óþolin- móður og undir álagi. • Forgangsröðun brenglast og mikilvæg verkefni gleymast á meðan þau sem ættu að hafa minna vægi fá of mikla athygli. • Starfsmaður stekkur úr einu verkefni í annað og getur orðið fastur í smáatriðum þar sem hann vantar alla yfirsýn. • Starfsmaður tekur í auknum mæli rangar ákvarðanir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.