Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Page 29
Getur verið
að þú sért
ekki búinn
að hugsa
skilnaðinn
til enda?
S æl Kristín. Mig langar að skilja við konuna mína til 17 ára en ég
get ekki sagt henni það og
ég kem því ekki í verk. Ég
hef reynt en það hefur endað
með því að ég fæ samvisku-
bit og gef hið þveröfuga í
skyn, að ég sé bálskotinn í
henni. Ég er búinn að hugsa
um þetta í svona sjö ár. Nú
verður eitthvað að gerast
því annars mun ég springa.
Þetta er fín kona, við erum
góðir vinir og eigum eitt barn
sem er 13 ára. Hún er rosa-
lega ástfangin af mér, vill
fleiri börn og hún mun aldrei
biðja um skilnað. Ég er bara
ekki ástfanginn, alveg sama
hvað ég reyni. Ég er ekki
hamingjusamur og kvíði því
að fara heim eftir vinnu því
mér finnst ég þurfa að leika
eitthvert hlutverk sem ég
er ekki sannur í. Stundum
verð ég skotinn í öðru fólki
og ég sækist frekar í félags-
skap annarra en hennar. Ég
er alveg viss um hvað ég vil,
ég bara get ekki og veit ekki
hvernig ég hrindi því í fram-
kvæmd.
Kær kveðja,
Einn í vanda
Þrenns konar aðstoð
Blessaður. Takk fyrir spurn-
inguna þína. Já stundum er
þetta bara svona, það er að
segja annar aðilinn er bara
ekki ástfanginn, en hinn er
að springa úr ást. Það er bæði
sárt og erfitt. Sumir segja
að það erfiðasta við skilnaði
sé að taka ákvörðunina. Sú
ákvörðun getur verið lengi
að gerjast innra með fólki
og það getur tekið mörg ár
að koma orðum að því. Það
hljómar eins og ákvörðunin
sé komin í þínu tilfelli og þú
getur verið sáttur með það,
eitt þungt skref í rétta átt.
Ég mæli samt alltaf með því
að fólk fái aðstoð við að taka
svona ákvörðun, jafnvel tíma
hjá fagaðila eða ræði við góð-
an vin eða fjölskyldumeðlim.
Fólk sem leitar til mín við
vanda í samböndum getur
fengið þrenns konar aðstoð. Í
fyrsta lagi getur fólk fengið
aðstoð við að bæta samband-
ið, í öðru lagi getur fólk feng-
ið aðstoð við að meta hvort
það vilji vera í sambandi eða
ekki og í þriðja lagi þurfa
sumir aðstoð við að skilja.
Stundum þurfa pör að rúlla
nokkra hringi í gegnum þetta
allt saman til þess að finna
staðinn sem þau eru sátt við.
Spurning þín bendir til
þess að þinn vegur liggi í átt
að skilnaði en að þú þurfir
aðstoð við að fylgja því eftir.
Getur verið að þú sért ekki
búinn að hugsa skilnaðinn til
enda og að óvissan komi í veg
fyrir að þú takir af skarið?
Til þess að eyða óvissunni og
kvíðanum sem henni fylgir
gæti verið ráð að gera plan
um næstu skref. Hvernig
mynduð þið hátta íbúðarmál-
um? Forsjármálum? Hvernig
myndir þú vilja segja barninu
ykkar frá þessari ákvörðun?
Hvað verður erfitt? Hvað ótt-
astu mest? Hvernig ætlar þú
að tækla það?
Óhamingja eða
skilnaðarferli?
Ef pör hugsa ekki skilnað til
enda þá er hætta á því að þau
haldist saman einfaldlega
vegna þess að þau þora ekki
að horfast í augu við það sem
skilnaður getur haft í för með
sér. Og hvort er betra? Að
vera í óhamingjusömu sam-
bandi eða takast á við erfitt
skilnaðarferli?
Þú nefnir að þú fáir sam-
viskubit og að þú viljir ekki
særa konuna þína. Það skil ég
mætavel, en hefur þú velt því
fyrir þér hvort þú sért jafn-
vel að særa hana með því
að koma heim úr vinnunni
og leika hlutverk sem þú
ert ekki sannur í? Mögulega
væri gott fyrir þig að vera
búinn að leiða hugann að að-
stoð fyrir konuna þína við
þessum særindum. Getur
hún leitað til fagaðila? Á hún
fjölskyldu og vini sem munu
grípa hana? Getið þið farið
saman til fagaðila sem getur
aðstoðað þig við að aðstoða
hana?
Sumum finnst erfitt
að koma orðum að svona
stórum ákvörðunum og það
er mjög skiljanlegt, en það
er ekki gott að bíða eftir því
að springa og böðla þessu
þá út úr sér í mikilli tauga-
spennu. Þú ert kominn ansi
langt og nú er það bara loka-
hnykkurinn, hann má fram-
kvæma bæði vel og illa. Við
undirbúum okkur fyrir annað
eins í lífinu og því væri ekki
úr vegi að setjast niður og
skrifa niður þá punkta sem
þú vilt að komi fram. Hvern-
ig viltu orða þetta? Hvað
viltu að hún viti? Við hvaða
aðstæður væri best að nefna
þetta? Þá gæti það reynst vel
að óska eftir því við maka að
fara saman til fjölskyldumeð-
ferðarfræðings, stundum er
auðveldara að koma orðum
að erfiðum málum með hlut-
lausan þriðja aðila sér við
hlið.
Stór og erfið ákvörðun
Ef þú spyrð mjög hamingju-
samt fólk hvers vegna það er
svona hamingjusamt þá er
tíðasta svarið: góður maki.
Sem er óþolandi í ljósi þess að
við viljum að hamingja okkar
byggi á okkur sjálfum. En
það segir okkur líka að ef við
erum ekki í góðu sambandi
þá getur það dregið verulega
úr hamingju fólks, eins og þú
nefnir raunar sjálfur. Í ljósi
þess gæti það orðið þér inn-
blástur að svona stór og erfið
ákvörðun geti leitt til þess
að þú, þrátt fyrir erfiðleika,
finnir fyrir meiri hamingju
í kjölfarið.
Ég vildi óska þess að þú
myndir sjá hversu langt þú
í raun og veru ert kominn í
þessu ferli. Þér hefur liðið
illa í nokkuð langan tíma og
ef þú ert sannfærður um að
þú þurfir út úr þessu sam-
bandi til þess að líða betur,
þá er þér ekki til setunnar
boðið. Tíminn líður hratt
á gervihnattaöld og þú vilt
síður vakna upp árið 2028 í
sömu sporum og þú ert núna.
Þú ert greinilega varkár
maður sem vilt þér og þínum
vel og þá munuð þið komast í
gegnum skilnaðarferli þann-
ig að þegar upp er staðið, þá
séuð þið öll sátt. Gangi þér
sem allra best. n
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
Fjölskylduhornið
Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi
svarar spurningum lesenda um málefni
er varða fjölskylduna, börnin og ástina
í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni
svarar Kristín spurningu lesanda sem
vill skilnað. Sérfræðingur svarar
MYND/GETTY
KEM MÉR EKKI Í AÐ
BIÐJA UM SKILNAÐ
DV 1. APRÍL 2021 FÓKUS 29