Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Síða 35
Marokkósk páskaveisla Fyrir 4 2 ½ klst. Lambabógur 1 lambabógur 3 msk. ras el hanout krydd ½ tsk. harissa krydd 1 tsk. lamb Islandia krydd 2 hvítlauksgeirar rifnir 2 tsk. salt 2 msk. olía Hitið ofninn í 210°C, blandið hvít- lauk, olíu og kryddi í skál. Nuddið kryddblöndunni vel á lambabóginn. Setjið bóginn í eldfast mót og brúnið kjötið í 10-15 mínútur, lækkið hitann í 80°C og eldið í 2 klst. Chimichurri-sósa 1 búnt kóríander 1 búnt steinselja 2-3 hvítlauksgeirar ½ jalapeno 150 g olía 1 tsk. hunang 1 msk. edik Salt Allt maukað saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota og smakkað til með salti. Einnig hægt að saxa allt fínt og blanda saman í skál. Grillaður maís með graslauks- og hvítlauksmajónesi 2 heilir, forsoðnir maísstönglar 2 dl japanskt majónes ½ búnt graslaukur, heill ½ búnt graslaukur, saxaður 1 hvítlauksgeiri 50 g sólblómafræ Bráðið smjör Salt Hitið ofninn í 160°C. Setjið sólblómafræ á bakka og ristið í ofninum í 5 mínútur. Penslið smjörinu á og saltið maísinn. Eldið maísinn á grilli, grillpönnu eða í ofni, á öllum hliðum. Setjið japanskt majónes, graslauk og hvítlauk í matvinnsluvél eða notið töfrasprota og blandið vel, smakkið til með salti. Penslið maísinn aftur með smjöri. Setjið ögn af majónesi, sólblóma- fræ og saxaðan graslauk yfir. E r eitthvað páskalegra hér á landi en máls-hættir? Flestum Íslendingum þættu þeir illa sviknir ef ekki leyndist einn málsháttur í páska- egginu, enda væru það alvarleg vöru- svik og svik við ára- langa hefð. DV ákvað því að leyfa lesendum að spreyta sig og óskaði eftir nýjum málsháttum. Svörin létu ekki standa á sér og streymdu inn tillögurnar. Svo margar að úr verulega vöndu var að ráða. Blaða- menn lögðust undir feld og tilnefndu síðan tíu bestu tillögurnar að þeirra mati og lögðu svo í dóm lesenda sem völdu bestu málshættina og skáru úr um hver sé málsháttameistari DV árið 2021. Vinn- ingshafarnir fá glæsileg páskaegg frá GÓU. n Pétur er Málsháttameistari DV 3. SÆTI Betri eru tvö lík í skotti en eitt á húddi ÞORMAR ELÍ RAGNARSSON 2. SÆTI Mundu það besta og gleymdu því versta DAGMAR LILJA JÓNASDÓTTIR 1. SÆTI Betra er heima að sitja en aðra að smita PÉTUR INGI GUÐMUNDSSON MÁLSHÁTTARMEISTARI DV 2021 Pétur Ingi Guðmundsson, málsháttarmeistari DV 2021. MYND/INGVI ÖRN Prófaðu eitthvað nýtt um páskana Snædís Jónsdóttir matreiðslu maður mælir með að fólk prófi sig áfram og skoði nýjar uppskriftir í páska- fríinu. Hér er komin spennandi útfærsla á lambabóg sem sómir sér vel á páskaborðinu. Maísinn er algert dúndur og því má vel gera tvöfalt magn af honum. Snædís Jónsdóttir matreiðslumaður og meðlimur í íslenska kokkalandsliðinu. MYND/UNA HILDARDÓTTIR Ný krydd á klassískan bita. MYND/AÐSEND Ritstjórn dv@dv.is MATUR 35DV 1. APRÍL 2021

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.