Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Síða 38
38 SPORT 433
Guðmundur elskar lífið í Bandaríkjunum. MYND/GETTY
V ið vorum að koma úr þriggja vikna æfinga-ferð í Flórída,“ sagði
Guðmundur Þórarinsson, at-
vinnumaður í knattspyrnu,
sem leikur fyrir New York
City þar í landi. Knattspyrnan
í Bandaríkjunum hefur verið
í sókn síðustu ár og óhætt er
að fullyrða að deildin hafi
aldrei verið sterkari en akk-
úrat núna. Guðmundur gekk í
raðir New York City fyrir ári
síðan og upplifði stórborgina
bara út um gluggann heima
hjá sér til að byrja með, hann
var varla lentur í New York
þegar útgöngubann var sett á
í fylkinu og þurfti Guðmundur
að dúsa í hálftómri íbúð sinni
í tæpa þrjá mánuði.
Gott ástand
Ástandið um tíma vegna
COVID-19 var ansi slæmt í
Bandaríkjunum, Guðmundur
segir að allt horfi til betri veg-
ar, en það sé þó mismunandi
eftir fylkjum þar í landi.
„Staðan er orðin mjög góð,
miðað við fyrstu þrjá mánuð-
ina mína þegar við vorum í
útgöngubanni. Í Flórída er
eins og öllum sé sama, það
er enginn með grímu og allir
hressir. Við sem lið fylgjum
einhverjum reglum, við
vorum samt mjög frjálsir.
Við vorum á flottu svæði ná-
lægt Orlando og vorum svo í
tíu daga í Tampa sem er geð-
veikur staður, það var frjáls-
legt umhverfi. Hér í New
York eru þessar reglur sem
Íslendingar þekkja, þegar þú
ferð út að borða eru það grím-
ur. Þetta er orðið miklu betra,
þeir bólusetja eins og vitleys-
ingar hérna. Ég held að Biden
hafi lofað því að vera búinn að
bólusetja 200 milljónir fyrir
1. maí, það eru mjög margir
sem ég þekki sem hafa verið
bólusettir eða eru með mót-
efni,“ segir Guðmundur sem
sjálfur fékk COVID í upphafi
faraldursins og er bjartsýnn á
blómlegt sumar í Bandaríkj-
unum.
„Eins og þetta lítur út fyrir
sumarið er allt á réttri leið,
fótboltinn og aðstaðan er
geggjuð. Liðið og leikmenn-
irnir sem ég er með, þetta
er besta lið sem ég hef spilað
með. Það voru frábær lið í
Rosenborg og Norrköping en
maður er kominn á annað stig
hérna, þetta eru leikmenn frá
Suður-Ameríku sem eru að
spila með sínum landsliðum,“
sagði Guðmundur sem áður
lék í Noregi og í Svíþjóð.
Fótboltinn á uppleið
Mikil bæting hefur átt sér
stað í fótboltanum í Banda-
ríkjunum síðustu ár, liðið sem
Guðmundur leikur með er vel
mannað. „Þessi deild er miklu
miklu betri en ég gerði mér
kannski grein fyrir og aðrir
gera sér grein fyrir. Það er
fullt af geggjuðum fótboltalið-
um, kannski er hægt að segja
að Bandaríkjamaðurinn sé
kominn styttra í fótboltalegri
hugsun, en þetta eru vélar lík-
amlega. Líkamlega er deildin
mjög langt komin, þetta er
held ég betra en flestir gera
sér grein fyrir. Fólk má alveg
hætta að gera grín að fótbolt-
anum hérna.“
Guðmundur var ánægður
með uppskeruna á sínu fyrsta
tímabili í MLS deildinni eins
og hún heitir. „Ég spilaði
mjög vel það sem ég fékk að
spila, ég er mjög stoltur af
því hvernig það var við fárán-
legar aðstæður í nýrri borg og
með allt þetta COVID-dæmi.
Mér fannst ég gera mjög vel,
ég tók þátt í flestum leikjum
og byrjaði marga. Í dag virðist
ég vera kominn með stöðuna
og hef gert eitthvað rétt,“
sagði Guðmundur, sem leikur
sem vinstri bakvörður í þessu
sterka liði.
Fær ekki tækifæri
Síðustu ár hefur umræðan um
Guðmund í kringum íslenska
landsliðið komið reglulega
upp, hann hefur ekki fengið
mörg tækifæri og aldrei verið
í hópnum í leikjum sem skipta
máli. Guðmundur hefur spilað
með sterkum liðum og því hef-
ur ítrekuð fjarvera hans vakið
athygli. „Besta leiðin til að út-
skýra þetta er að það er æsku-
draumur að spila fyrir lands-
liðið, maður er keppnismaður.
Ég er alltaf að komast lengra
og lengra, ég vinn deildina og
bikarinn í Noregi, ég spila að
mínu viti með best spilandi
liðinu í Svíþjóð á þeim tíma
sem ég er þar. Núna er ég í
sennilega besta umhverfinu í
Bandaríkjunum, City Football
Group sem á liðið. Ég er með
frábæra leikmenn í kringum
mig, auðvitað er þetta mjög
spes þegar maður pælir í
þessu. Ég pæli ekki jafn mikið
í þessu eins og ég gerði, maður
er að verða aðeins eldri og veit
hvernig þetta virkar. Maður
sættir sig samt aldrei við það
að vera ekki í landsliðinu, sér-
staklega þegar maður hefur
eitthvað fram að færa,“ sagði
Guðmundur.
„Þegar maður veit að maður
hefur eitthvað fram að færa
fyrir land og þjóð, þetta er
sérstök blanda af tilfinn-
ingum. Maður vill að liðinu
gangi vel en að sama skapi
finnst manni það grátlegt að
vera ekki þarna, maður veit
hvað það er sérstök tilfinning
að spila fyrir þjóðina. Þetta
hefur áhrif á mann, þetta er
það sem mann dreymdi um
þegar maður var sex ára.
Auðvitað vona ég að ég fái
tækifærið, ég veit að ég hef
eitthvað fram að færa. Þetta
kennir manni helling, ég reyni
frekar að halda í það að vera
stoltur af því hvað ég hef náð
langt án þess að hafa fengið
tækifæri með landsliðinu.
Eins og ég sé þetta hefur eng-
inn annar íslenskur leikmaður
í sögunni komist svona langt
án þess að eiga alvöru lands-
leik.“ n
ÆSKUDRAUMURINN
Á ENN EFTIR AÐ RÆTAST
Guðmundur Þórarinsson hefur gert frábæra hluti í atvinnumennsku í
mörg ár, í dag blómstrar hann í New York en áður lék hann á Norður-
löndunum. Guðmundur hefur aldrei fengið almennileg tækifæri með ís-
lenska landsliðinu og sárnar það, hann telur sig hafa fullt fram að færa.
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is
1. APRÍL 2021 DV
Þetta er það sem
mann dreymdi um
þegar maður var
sex ára.