Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Qupperneq 40
*Samkvæmt netmælingum Gallup 433.is er hluti af 1. apríl 2021 | 13. tbl. | 112. árg. dv.is/frettaskot askrift@dv.is 512 7000 SAND KORN MYND/FACEBOOK LOKI Drjúg eru morgun- verkin! Þóra selur Prada Þóra Margrét Baldvinsdóttir, hönnunarráðgjafi og eigin- kona Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráð- herra Íslands, hefur löngum þótt áberandi lekker bæði í klæðnaði og störfum, en hún hefur hannað og stíliserað fjölda heimila og fyrirtækja við góðan orðstír. Þóra aug- lýsti á dögunum fatnað og skó í söluhóp á Face book fyrir merkjavörur. Meðal þess sem er til sölu eru buxur frá Spaksmanns- spjörum á 25 þúsund krónur og aðrar frá sama fyrirtæki á 30 þúsund krónur. Hún er einnig að selja bláa hæla- skó frá Prada á 20 þúsund krónur. Sambærilegir Prada- skór, notaðir, kosta um 50 þúsund á eBay svo hér má gera góð kaup. Hæg eru heimatökin Í Viðskiptamogganum á miðvikudag mátti finna umfjöllun um nýja bók um styttingu vinnuvikunnar eftir Alex Soojung-Kim Pang. Bókin nefnist Styttri: Komdu meira í verk á skemmri tíma. Lögfræðingurinn Sara Lind Guðbergsdóttir þýddi verkið, en Sara Lind er gift Stefáni Einari Stefánssyni. Það hlýtur að hafa legið beinast við að Viðskiptamogginn fjallaði um verkið en Stefán Einar er einmitt fréttastjóri þar á bæ og því hefur eflaust reynst auðvelt að komast í samband við Pang. Þetta hlýtur að eiga vel við tilefnið, að stytta sér leið í samræmi við styttri vinnuviku. Edda, útgáfufélag í eigu Árvakurs sem á Morgunblaðið, gefur bókina út og eru ekki nema örfá skref á milli hæða þar. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.