Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2016, Qupperneq 3
VELKOMIN Á HINSEGIN
DAGA 2016
WELCOME TO REYKJAVIK PRIDE 2016
Sagan okkar – saga hinsegin fólks – er þema Hinsegin daga að þessu sinni. Við
lítum um öxl og veltum fyrir okkur hvernig fortíðin hefur mótað það samfélag
sem við búum í og okkur sjálf sem manneskjur. Á Íslandi hefur sagan okkar
ekki verið skráð nema að litlu leyti en hún býr innra með okkur, sér í lagi þeim
sem eldri eru. Mikilvægi þess að hlusta á frásagnir fortíðarinnar er ótvírætt því
pólitískir sigrar jafnt sem hversdagslíf þeirra sem á undan okkur komu hefur
áhrif á líf okkar, menningu og hugsunarhátt. Við ættum því að sýna sögunni
virðingu og læra af henni.
Þó er ekki vænlegt að dvelja eingöngu í fortíðinni; samfélag okkar hefur
breyst og við þurfum að laga baráttuna að samtímanum. Hryðjuverkaárásin
á skemmtistaðinn Pulse í Orlando, sem tók líf 49 einstaklinga, og aðrir
hatursglæpir sem framdir eru gegn hinsegin fólki víða um heim sýna að við
þurfum sífellt að vera á varðbergi og minna á að baráttan gegn hómófóbíu,
transfóbíu, rasisma og annars konar fordómum er langt því frá búin.
Hinsegin samfélagið verður sífellt stærra og málefnin fjölbreyttari og
við verðum að halda áfram að berjast fyrir sýnileika okkar, virðingu og
mannréttindum. Sagan okkar verður til þegar þessi orð eru skrifuð og lesin
og það er á okkar ábyrgð að feta hinn vandrataða milliveg milli fortíðar og
framtíðar; læra af því sem gerst hefur og reyna um leið að sjá fyrir hvað mun
hafa farsælust áhrif á framtíðina og þjóna hinsegin fólki samtímans best.
Stjórn Hinsegin daga leggur nú, líkt og áður, áherslu á að hafa dagskrá
hátíðarinnar fjölbreytta og höfða til eins margra og mögulegt er. Það er
von okkar að þið finnið efni við ykkar hæfi, bæði hér í tímaritinu og á sjálfri
hátíðinni, og að þau brot úr sögunni okkar sem birtast á þeim vettvangi séu
bæði gagnleg og fræðandi. Gleðilega hátíð!
The theme of Reykjavik Pride this year is ‘Our History’ – the history of queer
people. We look back and think about how the past has shaped our society and
ourselves. In Iceland our history is still largely unwritten, but it lives within us; in
the stories we tell about ourselves and the people around us. These stories are
important because those who came before us, their personal and political battles
as well as everyday lives, affect the way we live our lives and think today. We
should thus respect our history and learn from it.
Yet to move forward one can not dwell in the past for too long. There are still
battles to be fought and the horrifying events at the Pulse nightclub in Orlando
show that we need to stay on guard and continue the fight against homophobia,
transphobia, racism and other prejudices. Our queer community is expanding
and we need to work towards increased visibility, respect and human rights of all
our siblings.
Diversity and variety is important to the management team of Reykjavik
Pride, and our goal is to organise events that appeal to all our guests. We hope
that this year’s programme will be no exception therefrom, and that you will
meet great people, learn new things about our society and our history, and last
but not least: have great fun. Happy Pride!
Stjórn Hinsegin daga 2016:
Reykjavik Pride’s management team 2016:
Eva María Þórarinsdóttir Lange – formaður / president
Jón Kjartan Ágústsson – varaformaður / vice president
Gunnlaugur Bragi Björnsson – gjaldkeri / treasurer
Ásta Kristín Benediktsdóttir – ritari / secretary
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson – meðstjórnandi / board member