Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2016, Side 10
Ég áttaði mig á því hver ég var þegar
ég var smákrakki en eins og gefur að
skilja var ekki nokkur leið að gera neitt
í því lengi vel. Ég var orðin fimmtán,
sextán ára þegar ég heyrði fyrst af því að
leiðréttingaraðgerðir hefðu verið gerðar
á fólki og þá leit ég á það sem mjög
fjarlægan draum. Ég fór svo seinna á sjó
og í siglingum úti í heimi hitti ég trans
fólk. Árið 1974 rakst ég til dæmis á krá
suður í Genúa á Ítalíu þar sem trans fólk
hittist en ég þorði ekki fyrir mitt litla líf
að fara þangað inn. En svo var ég hluta
úr sumri í Hamburg árið 1983 og aftur
árið 1987 og þar stundaði ég trans krá
en var í felum gagnvart skipsfélögunum.
Á þessum tíma fór ég einnig í gegnum
misheppnað hjónaband og eignaðist þrjú
börn en skildi árið 1984.
Glíman við geðlæknana
Hvenær reyndirðu fyrst að koma út úr
skápnum?
Árið 1984 reyndi ég fyrst að sækja mér
aðstoð. Þá voru til geðlæknar sem voru til
í að rannsaka mig en enginn vildi í raun
hlusta á mig. Læknirinn sem ég fór til
var staðráðinn í að lækna mig af þessari
vitleysu en kom aldrei fram með neina
lausn. Dag einn mætti ég síðan í viðtal en
þá var hann ekki við og hafði ekki skilið
eftir nein skilaboð – hann hafði gefist upp
á mér!
Haustið 1987 braut ég svo á
mér öxlina og hætti til sjós og fór í
öldungadeild MH til að klára nám
sem ég var byrjuð á. Þar ræddi ég við
námsráðgjafa, Sölvínu Konráðs, og hún
var fyrsta manneskjan sem hafði skilning á
mínum málum. Hún aðstoðaði mig næstu
tvö árin á eftir, til dæmis við að ræða við
geðlækna. Einn þeirra vildi láta leggja
mig inn til að skoða mig betur en ég get
ekki séð hvað ætti að koma út úr því og
harðneitaði. Seinna frétti ég svo af því að
trans strákur sem leitaði sér aðstoðar hér
heima á þessum árum hefði verið lokaður
inni á geðdeild.
Leitaði til Svíþjóðar
Á þessum tíma var ég algjörlega ein.
Ég frétti reyndar af íslenskri konu sem
fór í aðgerð í Noregi árið 1989 og kom
til Íslands þá um sumarið. Við hittumst
meðan hún dvaldi hér heima og vorum
í ágætis sambandi eftir það en hún kom
aldrei fram opinberlega. Neikvæðnin hér
heima var mjög mikil og aðgerðaleysið í
heilbrigðiskerfinu algjört svo ég sá mér
ekki fært að búa hér og flutti til Svíþjóðar
haustið 1989.
Fórstu út með það í huga að fara í
leiðréttingarferli?
Að sjálfsögðu. Það var aðaltilgangurinn.
Formlega gaf ég reyndar upp að ég væri
að fara út til að setjast þar að og vinna –
sem ég gerði. En aðalástæðan fyrir því að
ég fór var sú að þarna úti var, og er enn,
í gildi norrænn sáttmáli um félagslegt
öryggi og samkvæmt honum átti ég að
eiga sama rétt á læknisþjónustu í Svíþjóð
og sænskir ríkisborgarar. Þetta gekk
reyndar ekki eftir og ég komst ekki í neitt
ferli strax. Það gekk á alls konar ævintýrum
áður en það gekk upp og ég gat loks lokið
leiðréttingarferlinu árið 1995.
Félagið Benjamin
En þarna komstu í félagsskap sem hefur
væntanlega skipt miklu máli?
Já, það var mjög mikilvægt fyrir andlegu
hliðina. Þarna var starfandi félagsskapur
fyrir transsexúal fólk sem hét Föreningen
Benjamin og þar var ég virk öll árin sem
ég var í Svíþjóð.
Í Föreningin Benjamin ríkti mikil
nafnleynd þegar ég gekk í félagið
og aðeins þrír aðilar höfðu aðgang
að nafnaskrá félagsins; formaðurinn,
gjaldkerinn og ritarinn. Margir félagar
og jafnvel stjórnarmeðlimir notuðust
við dulnefni og það var ómögulegt að
sækja um styrki því það mátti ekki gefa
styrkveitendum upp neinar upplýsingar
um félagsmenn. Þetta var dálítið broslegt
á köflum því leyndarhyggjan var algjör en
nokkrir félagar, þar á meðal ég, voru mjög
gagnrýnir á þennan feluleik.
Svo gerðist það að upp kom frægt
glæpamál í Svíþjóð þar sem hinn
svokallaði Lasermaður gerði skotárásir á
þeldökka innflytjendur. Það greip um sig
ÁRIÐ 1984 REYNDI ÉG FYRST AÐ
SÆKJA MÉR AÐSTOÐ. ÞÁ VORU
TIL GEÐLÆKNAR SEM VORU TIL Í
AÐ RANNSAKA MIG EN ENGINN
VILDI Í RAUN HLUSTA Á MIG.
Mynd til hægri: tekin fyrir
starfsmannablað Orkuveitu
Stokkhólms í ársbyrjun 1995.
Mynd: SEkring.
Mynd tekin í janúar 1981 um borð í Bakkafossi í höfn í
Norfolk VA. Ljósmynd: Magnús Þór Óskarsson.
Formleg tilkynning um að Önnu væri
heimilt að fara í aðgerð með því skilyrði að
hún gengist undir ófrjósemisaðgerð, þá
hina sömu og nú hefur verið dæmd ólögleg
í Svíþjóð. Anna á von á að fá skaðabætur
vegna þessa innan tveggja ára.
10