Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2016, Side 22
SJÁLFBOÐALIÐAR
FRÍÐA
AGNARSDÓTTIR
Hvenær og hvers vegna gerðist
þú fyrst sjálfboðaliði hjá Hinsegin
dögum?
Árið 2006, ef ég man rétt, byrjaði
ég mitt fyrsta sjálfboðaliðastarf á
verkstæðinu sem þá var við lýði.
Þátttakendur komu þangað til
að vinna í pöllunum sínum. Af
hverju? Líklega vegna mikils áhuga
á hinsegin málefnum, félagsstarfi
og löngun til að gera eitthvað
skemmtilegt.
Við hvaða verkefni hefurðu
unnið?
Ég hef unnið á verkstæðinu, sem
göngustjóri ásamt því að byrja með
sjoppu S’78 á Hinsegin dögum sem
ég sá að stórum hluta um í byrjun.
Svo hef ég hlaupið í hitt og þetta
eftir þörfum.
Hver er uppáhaldsminningin þín
frá Hinsegin dögum?
Mín uppáhaldsminning er líklega
þegar ég tók fyrst þátt í atriði.
Dansaði niður Laugaveginn í atriði
sem Eva María meðal annarra hélt
utan um. Ég var í skræpóttum
leggings, bleiku prjónavesti og
máluð í 80‘s stíl, hrikalega gaman!
Miðborg Reykjavíkur,
en hvar? þriðjudaginn 2.
ágúst klukkan 12:00.
MÁLUM
GLEÐIRENDUR
Á síðasta ári sló opnunarviðburður
Hinsegin daga í gegn þegar
Skólavörðustígurinn var málaður með
regnbogaröndum. Í ár verður sami
háttur á þegar formaður Hinsegin
daga, Eva María Þórarinsdóttir Lange,
og borgarstjóri Reykjavíkur, Dagur
B. Eggertsson, opna hátíðina með
málningarrúllu í hönd. Stóra spurningin
er: hvar verður regnbogamálunin í ár?
Staðsetning verður kynnt mánudaginn
1. ágúst. Fylgist með á samfélagsmiðlum
og vefsíðu hátíðarinnar. Götumálunin
er unnin í samstarfi við Umhverfis- og
skipulagssvið Reykjavíkurborgar og
er hluti af verkefninu „Torg í biðstöðu” í
miðborg Reykjavíkur.
Last year’s opening event was a big hit
when a prominent street in downtown
Reykjavik was painted in rainbow colors
during the Pride festivities. This year will
be no different. The president of Reykjavik
Pride, Eva María Þórarinsdóttir Lange,
and the mayor of Reykjavík, Dagur B.
Eggertsson, will open the Pride festival with
a paint brush in their hand. A new location
will be painted, but the big question is
“where?” Stay updated on the festival’s
webpage and social media Monday 1
August for the big reveal. The event is
organized in cooperation with Reykjavík
City’s “Meanwhile projects”.
VIÐBURÐUR / EVENT
ÁST ER ÁST
Bankastræti, frá þriðjudeginum 2.
ágúst. Aðgangur ókeypis
Á þessari ljósmyndasýningu má sjá
falleg augnablik frá stærstu stundum
þeirra hinsegin para sem ljósmyndarinn,
Kristín María, hefur fengið að mynda í
íslenskri náttúru á undanförnum árum.
Tilgangurinn með sýningunni er að sýna
að alls konar ást, hvort sem hún er svona
eða hinsegin, er alltaf jafn falleg. Pörin
eiga það öll sameiginlegt að hafa komið
til Íslands til að gifta sig og með því að
sýna myndirnar á Hinsegin dögum vill
ljósmyndarinn dreifa gleðinni sem ríkti á
þeim stundum með gestum og gangandi.
This photo exhibition displays some of
photographer Kristín María’s favourite
moments from her work with queer couples
from all around the world. All the couples
came to Iceland to experience one of the
biggest moments of their lives: to get
married. The point of the exhibition is to
share with everyone the pure joy of these
events and to make all kinds of love more
visual to the public eye.
VIÐBURÐUR / EVENT
Bankastræti, from Tuesday 2 August.
Free admission.
Downtown Reykjavik,
but where? Tuesday
2 August at 12 p.m.
LET’S PAINT A RAINBOW
LOVE IS LOVE
22