Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2016, Page 27
Iðnó, Vonarstræti 3,
þriðjudaginn 2. ágúst kl. 21:00.
Aðgangseyrir: 2.000 kr.
Pride-passi gildir.
Iðnó, Vonarstræti 3,
Tuesday 2 August at 9:00 p.m.
Admission: 2.000 ISK. Pride Pass valid.
DRAGSÚGUR
EXTRAVAGANZA
Dragsúgur í fyrsta skipti á Hinsegin dögum í Reykavík! Síðasta
árið hefur Dragsúgur skemmt sístækkandi hópi aðdáenda með
kynngimögnuðum dragsýningum sem hafa breytt íslensku
senunni að EILÍFU! Drottningarnar hafa fengið ársbirgðir
af glimmeri og kóngarnir eru allir í fjarþjálfun hjá helstu
heilsuræktarfrömuðum heims. Glamúr, uppistand, ævintýri
og kynþokki í ómældu magni flæðir um allt. Dragsúgur
Extravaganza hefur nóg handa öllum. Svo upp með pallíetturnar
og hælana og byrjaðu Hinsegin daga með stæl. En mundu … að
setja öryggið á oddinn!
Iceland’s only Queer Variety Performance is coming to Reykjavik
Pride! For the past year, Dragsúgur has been entertaining an ever-
growing crowd with its transcendent and outrageous drag royalty,
and changing the queer scene in Iceland FOREVER! Our queens are
padded, our kings are bulging, and they have comedy, glamour,
fantasy and fierceness oozing out of every pore. What Dragsúgur
has planned this week will give you everything you need! So get on
your sequins, put on those cha-cha heels and start this Pride with a
bang! But remember… always use protection!
VIÐBURÐUR / EVENT
AUSTRALIANA
Iðnó, Vonarstræti
3, föstudaginn 5. ágúst kl. 22:00.
Aðgangseyrir: 2.000 kr.
Pride-passi gildir.
Iðnó, Vonarstræti 3,
Friday 5 August at 10:00 p.m.
Admission: 2.000 ISK. Pride Pass valid.
Jonathan Duffy flutti frá Ástralíu til Íslands árið 2015 og síðan
þá hefur hann stanslaust verið spurður sömu spurningarinnar:
„Hvers vegna í fjandanum fluttir þú til Íslands?“ Á sýningunni
Australiana deilir Jono því með okkur hvernig var að alast upp
sem samkynhneigður strákur hinum megin á hnettinum, því
sem hann saknar og af hverju hann kvaddi Ástralíu. Australiana
samanstendur af uppistandi, kabarett og danspartíi! Þar
hljómar vel valin tónlist eftir ástralska listamenn sem hefur verið
endurhljóðblönduð af engum öðrum en dansdúettinum Dusk.
Jonathan Duffy moved from Australia to Iceland in 2015 and has
since then consistently been answering one question: “Why the hell
did you move to Iceland?” In Australiana, Jono will dish the dirt on
what it was like growing up in the land down under as a gay boy;
what he misses, and ultimately the reason why he said goodbye.
Part comedy, part cabaret, part dance party, Australiana is pieced
together with carefully selected music by Australian artists that
have been remixed by Icelandic dance duo ‘Dusk.’
VIÐBURÐUR / EVENT
27