Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2016, Page 28
HINSEGIN
RÉTTINDABARÁTTA Á
ÍSLANDI FYRR OG NÚ
LGBTI RIGHTS IN ICELAND
Iðnó, Vonarstræti 3,
miðvikudaginn 3. ágúst
kl. 12:00. Aðgangur ókeypis.
Iðnó, Vonarstræti 3,
Wednesday 3 August at 12:00 p.m.
Free admission.
Á þessum hádegisfundi verður
rætt um sögu réttindabaráttu
hinsegin fólks á Íslandi, þá áfanga
sem unnist hafa og stöðuna í
dag. Horft verður á þróunina í
innlendu jafnt sem alþjóðlegu
samhengi og leitast við að
varpa ljósi á ólíkar hliðar hennar.
Erindi flytja: Baldur Þórhallsson,
prófessor í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands, Íris Ellenberger
sagnfræðingur, Ugla Stefanía
Kristjönudóttir Jónsdóttir,
varaformaður Trans Íslands, og
Kitty Anderson, formaður Intersex
Íslands. Fundarstjóri er Svandís
Anna Sigurðardóttir.
The focus of this seminar is LGBTI
rights in Iceland in a historical
perspective. The presentations
look at milestones that have been
reached, the situation today and
ongoing fights, in an Icelandic
as well as international context.
The speakers are: Professor
Baldur Þórhallsson, historian
Íris Ellenberger, Ugla Stefanía
Kristjönudóttir Jónsdóttir from
Trans Iceland, and Kitty Anderson
from Intersex Iceland. Seminar
chair: Svandís Anna Sigurðardóttir.
The event is in Icelandic.
SÖGUGANGA
HISTORICAL WALK
Framan við Iðnó, Vonarstræti 3,
þriðjudaginn 2. ágúst kl. 20:00.
Aðgangur ókeypis.
In front of Iðnó, Vonarstræti 3, Tuesday 2
August at 8:00 p.m. Free admission
Á hátíð Hinsegin daga er við
hæfi til að staldra við staði og
stundir liðinna tíma og minnast
mannlífs sem eitt sinn var. Í þetta
sinn ganga Baldur Þórhallsson
og Þorvaldur Kristinsson með
gestum um nokkra valda
sögustaði í miðborg Reykjavíkur
og segja frá menningu og lífi
nokkurra samkynhneigðra
Reykvíkinga allt frá lokum 19.
aldar til okkar daga. Næturlífi,
dómsmálum, ástarævintýrum,
skáldskap og tónlist verða gerð
skil og rifjaðir upp atburðir í lífi
samkynhneigðra kvenna og
karla, lífs og liðinna. Markmið
göngunnar er að minna á þennan
merkilega menningarkima
borgarinnar því víst er gamla
Reykjavík hýrari en margur
heldur! Safnast verður saman við
andapollinn framan við Ráðhús
Reykjavíkur og lagt af stað
stundvíslega kl. 20. Ferðin tekur
um klukkustund og í þetta sinn er
eingöngu boðið upp á leiðsögn á
íslensku.
Historical walk around Reykjavík
city center with Baldur Þórhallsson
and Þorvaldur Kristinsson who
share stories about queer people
and culture, nightlife, music and
literature with their guests.
The event is in Icelandic.
SÖGUKVÖLD
(HI)STORY NIGHT
Sunnudaginn 7. ágúst kl. 20:00.
Aðgangur ókeypis.
Staðsetning auglýst síðar.
Sunday 7 August at 8:00 p.m. Free
admission. Venue announced later.
Að kunna skil á sögu hinsegin
fólks á Íslandi er meira en að
segja það. Brotin eru varðveitt
víða en nýjar kynslóðir eru ekki
forritaðar með sögu samfélagsins
í heilanum og saga okkar þarf
að vera lifandi. Því verður nú
efnt til fyrsta sögukvöldsins af
mörgum í samvinnu við Hinsegin
daga þar sem hinsegin fólki er
boðið að segja söguna í samtali
við áheyrendur. Kvöldið er öllum
opið og allt hinsegin fólk af öllum
kynslóðum er hvatt til að taka þátt
og segja sína sögu. Sögukvöldin
verða tekin upp svo hægt sé að
gera efnið algengilegt, meðal
annars til að leggja grunn að
fræðsluefni og sýningu um sögu
Samtakanna ´78.
The history of queer people in
Iceland is fragmented and poorly
documented, but the need for
remembering and staying in touch
with the past has perhaps never
been stronger. This event is the
first in a series of ‘(hi)story nights’
where queer people get together
to tell their stories; joining forces
in documenting Icelandic queer
history. Everybody is welcome and
all generations are encouraged
to participate. The event will be
recorded and made accessible in
the future. The event is in Icelandic.
VIÐBURÐUR / EVENT
VIÐBURÐUR / EVENT
VIÐBURÐUR / EVENT
28