Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2016, Síða 32
Iðnó, Vonarstræti 3,
föstudaginn 5. ágúst kl. 17:00.
Aðgangur ókeypis.
Bókmenntaviðburður Hinsegin daga
hefur fest rækilega í sessi sem einn
skemmtilegasti viðburður ársins.
Dagskráin er mjög metnaðarfull í ár
og enginn, hinsegin eða þessegin,
ætti að láta hana framhjá sér fara.
Hljómsveitin Eva verður í hlutverki
kynna og ómögulegt er að vita hverju
þær taka upp á. Ákafir aðdáendur
glæpasagna geta glaðst yfir því að
Lilja Sigurðardóttir les í fyrsta sinn
opinberlega úr væntanlegri skáldsögu
sinni Netið. Anna Margrét Grétarsdóttir
les upp úr bók sinni Hún er pabbi minn,
ljóðskáldin Elías Knörr og Eva Rún
Snorradóttir lesa upp úr verkum sínum
auk þess sem valin hinsegin skáld stíga
út úr ljóðaskápnum. Þar með er ekki allt
upp talið en líkur eru á því að spennandi
leynigestir láti ljós sitt skína.
Reykjavik Pride invites you once again
to enjoy a poetic Friday afternoon
of Icelandic literary readings and
performances. Among the artists that
will perform are Lilja Sigurðardóttir, Elías
Knörr and Eva Rún Snorradóttir, and the
hosts are the amazing and entertaining
girls in The Band Eva. The event is in
Icelandic.
Ljóða-
sam-
keppni
HÝRIR HÚSLESTRAR
QUEEREADS
Ertu inni í ljóðaskápnum? Áttu
örsögur í skúffunni sem þrá að verða
sýnilegar? Núna er rétti tíminn til
að opna sig því Hinsegin dagar
efna til ljóðasamkeppni í samstarfi
við Sirkústjaldið, vefrit um listir og
menningu. Hinsegin skáld, jafnt
óreynd sem reynsluboltar, eru hvött
til að senda inn ljóð eða örsögur og
taka þannig þátt í að efla og auka við
hina blómlegu menningu okkar.
Þátttakendur sendi texta í
tölvupósti á netfangið
sirkustjaldid@gmail.com fyrir
31. júlí. Dómnefnd skipuð þremur
einstaklingum – fulltrúa Hinsegin
daga, Sirkústjaldsins og einum
óháðum aðila – fær textana nafnlausa
í hendurnar og henni eru ekki veittar
upplýsingar um höfunda fyrr en þrjú
verðlaunaverk hafa verið valin. Úrslit
verða tilkynnt á Hýrum húslestrum
á Hinsegin dögum föstudaginn 5.
ágúst þar sem verðlaunatextarnir
verða enn fremur fluttir. Öll innsend
verk verða birt á Sirkústjaldinu (www.
sirkustjaldid.is) nema höfundar óski
sérstaklega eftir öðru.
VIÐBURÐUR / EVENT
Iðnó, Vonarstræti 3,
Friday 5 August at 5 p.m.
Free admission.
32