Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2016, Síða 39

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2016, Síða 39
HREIN & BEIN 13 ÁRUM SÍÐAR KVIKMYNDASÝNING OG PALLBORÐSUMRÆÐUR HREIN OG BEIN DOCUMENTARY SCREENING AND PANEL DISCUSSION Iðnó, Vonarstræti 3, fimmtudaginn 4. ágúst kl. 17:30. Aðgangur ókeypis. Iðnó, Vonarstræti 3, Thursday 4 August at 5:30 p.m. Free admission. Í heimildarmyndinni Hrein og bein (2003) komu fram íslensk, samkynhneigð ungmenni og sögðu frá reynslu sinni af því að koma út úr skápnum. Myndin var notuð sem kennsluefni í grunn- og framhaldsskólum landsins árum saman og er almennt talin mikilvægt innlegg í fræðslu um samkynhneigð á Íslandi. Margt hefur þó breyst á þeim þrettán árum sem liðin eru frá því að myndin var gerð og umræða um samkynhneigð og hinsegin málefni almennt hefur þróast í ýmsar áttir sem ekki var hægt að sjá fyrir – auk þess sem ungmennin sem sögðu sögu sína eru nú orðin fullorðið fólk. Eftir sýningu myndarinnar fara fram pallborðsumræður um meðal annars hlutverk hennar og áhrif, þá þróun og breytingar sem orðið hafa síðan hún kom út og hvort þörf sé á nýrri heimildarmynd af svipuðu tagi. Þátttakendur í umræðunum eru: Þorvaldur Kristinsson og Hrafnhildur Gunnarsdóttir, höfundar myndarinnar, Heiðar Reyr Ágústsson og Sigríður Birna Valsdóttir, sem komu fram í myndinni, Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir, jafningjafræðari hjá Samtökunum ‘78 og Alex Blær Tryggvi Freyr Gíslason, meðlimur í Ungliðahreyfingu Samtakanna. Umræðum stjórnar Svandís Anna Sigurðardóttir. In the documentary Hrein og bein (2003), young gay Icelanders stepped forward and told their coming-out stories. The film was used as a part of educational programs in schools, but now, thirteen years later, much has changed when it comes to gay rights and general discussion about queer issues. After the screening, a panel discussion will take place where the film, its influence and educational value, the societal changes that have occurred in the past 13 years, and the need for a new documentary are under discussion. The event is in Icelandic. VIÐBURÐUR / EVENT TÓNLEIKAR HINSEGIN KÓRSINS REYKJAVÍK QUEER CHOIR CONCERT Fríkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 5. ágúst kl. 19:00. Aðgangseyrir: 2.000 kr. í forsölu. Við hurð: 2.500 kr. Pride-passi veitir 500 kr. afslátt við hurð. Fríkirkjan Church, Friday 5 August at 7:00 p.m. Pre-sale tickets: 2.000 ISK. Full price tickets: 2.500 ISK. 500 ISK discount at the door with Pride pass Líkt og fyrri ár efnir Hinsegin kórinn til tónleika í tilefni Hinsegin daga. Kórinn hefur á undanförnum árum getið sér afar gott orð fyrir góðan söng og skemmtilega framkomu en kórinn syngur undir stjórn tónlistarkonunnar Helgu Margrétar Marzellíusardóttur. Hinsegin kórinn hefur komið víða fram, bæði hér heima og erlendis, en kórinn hélt á vordögum tónleika í Hofi á Akureyri og hefur áður m.a. sungið í London og á kóramóti hinsegin kóra í Dublin. Efnisskrá tónleikanna að þessu sinni er afar fjölbreytt og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Sérstakir gestir eru félagar í Bartónum, Kallakór Kaffibarsins. Forsala miða fer fram hjá kórfélögum og í Kaupfélagi Hinsegin daga. The Reykjavík Queer Choir performs in Fríkirkjan Church in Reykjavík on Friday 5 August. The choir has performed in London and Dublin and recently at its first concert in Akureyri. The programme includes a great variety of songs so everyone should find something to their taste. VIÐBURÐUR / EVENT 39

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.