Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2016, Page 55
„Strákarnir á Borginni hittast öll
laugardagskvöld á barnum inni í
Gyllta sal,“ söng Bubbi Morthens á
plötunni Ný spor árið 1984. Söngurinn
varð fljótt sígild perla í safni Bubba,
sannkallað tímanna tákn – hispurslaus
og einlægur. Enda fjölgaði þeim
mjög á þessum árum, hommum og
lesbíum sem voru sýnileg í íslensku
samfélagi og heimtuðu sitt rými án
þess að biðjast afsökunar á neinu eins
og segir í öðrum söng. Þegar íslenskir
hommar minnast liðinna daga ber
barinn á Borginni oft á góma, enda var
hann helsti samkomustaður þeirra í
Reykjavík í aldarfjórðung.
Á Hótel Borg var á árum áður boðið
upp á bestu gistingu í Reykjavík.
Þar átti metnaðarfull þjónusta við
ferðamenn sína miðstöð og þar gisti
flest það fólk sem kom til Reykjavíkur
með farþegaskipum og flugvélum,
enda hafði öll flugumferð frá Íslandi til
meginlands Evrópu áður fyrr aðsetur sitt
á Reykjavíkurflugvelli. Þegar bandarískt
herlið tók land á Keflavíkurflugvelli árið
1951 samkvæmt varnarsamningi ríkjanna
fóru hermenn í bæjarleyfi brátt að venja
komur sínar á Borgina. Þeir Reykvíkingar
sem sóttu út á lífið í leit að kynnum
við ferðalanga og óvænt ævintýri
rötuðu þangað líka, og að sjálfsögðu
létu hommar bæjarins sig ekki vanta
á staðinn. Þar áttu þeir friðland árum
saman, einkum þó á sjöunda og áttunda
áratug aldarinnar, og gátu gengið að því
vísu að finna þar sína líka á föstudags- og
laugardagskvöldum.
55