Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2016, Qupperneq 56

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2016, Qupperneq 56
Alþjóðlegur samkomustaður Inn af Gyllta sal á neðstu hæð staðarins var dæmigerður hótelbar, lengi sá eini í bænum þar til aðrir slíkir barir tóku að veita honum samkeppni upp úr 1960. Þess vegna hafði hann þá sérstöðu að vera einn af fáum stöðum í Reykjavík sem minntu erlenda gesti á næturlíf heimsborganna. Veturliði Guðnason kom fyrst á barinn á Borginni þegar hann var að vinna í Reykjavík sumarið 1965, þá 19 ára menntaskólanemi vestan af Ísafirði: „Það merkilegasta við Borgina var heimsborgarabragurinn á öllu, ferðafólk úr öllum heimshornum, hermenn af Vellinum í borgaralegum fötum, listamenn og listaspírur, ungt, miðaldra og gamalt fólk, öllu ægði saman á einhvern heillandi hátt. Allir karlmenn að sjálfsögðu í jakkafötum og með bindi og þjónarnir í einkennisbúningum. Þetta var líkast því að vera staddur á hótelbar í útlöndum. Barinn á Borginni var alþjóðlegur samkomustaður eins og þeir gerast bestir þrátt fyrir málverkið sem setti sinn svip á staðinn.“ Skálað við sjófuglana Málverkið sem hér um ræðir var gríðarstórt og fellt inn í vegginn inn af barborðinu, Esjan í mildum litum við sólsetur. Undir henni lónaði fiskiskip og fremst á myndinni sátu skarfar, mávar og lundar í flæðarmáli og biðu næsta dags. Þessi sundurleita fjölskylda myndaði eins konar þrívídd því hún var máluð á sérstakan flöt sem elti útlínur fuglanna og stóð framan við Esjuna og Sundin. Undir sjófuglunum sat fólk svo í samlyndi kvöldsins og drakk – og hér drukku margir stíft. Á barnum voru bara sterkir drykkir á borðum, bjór var hvergi að hafa á íslenskum veitingahúsum fyrr en árið 1989 og létt vín þóttu ekki við hæfi á þessum tíma kvölds. Allir voru með long drinks í höndum enda sveif hratt á mannskapinn og nóttin á barnum talsvert styttri en nú tíðkast því klukkan hálftólf var útidyrum lokað og engum hleypt inn eftir það. Svo stóð gleðskapurinn til klukkan eitt um nóttina, en klukkutíma lengur um helgar þegar dansað var í Gyllta sal. Þaðan bárust kunnuglegar raddir inn á barinn því þar léku ýmsar vinsælustu hljómsveitir landsins fyrir dansi gegnum tíðina og margir af bestu dægurlagasöngvurum okkar komu við sögu í salnum. Seint á kvöldi fór hljómsveitin í sína samningsbundnu pásu og þegar aftur var tekið til við músíkina voru flekarnir sem skildu að bar og sal yfirleitt dregnir frá. En inni á barnum héldu fastagestir sínu striki. Hvernig var umhorfs þar árið 1965? „Auðvitað sá maður strax,“ segir Veturliði, „að þarna var talsvert um karla í leit að körlum en samt var sterkur hjónasvipur yfir staðnum og margt um roskið fólk, á fimmtugs- og sextugsaldri, að minnsta kosti fannst manni það þegar maður var nítján. Nú sér maður varla fólk yfir fertugu á börum. Okkur strákunum utan af landi fannst þetta ógurlega skrýtið allt saman. Ég man að einu sinni horfði ég í augun á konu með rauða augnskugga og fjólubláar varir og hugsaði í sakleysi mínu: Ætli konan sé litblind? Aðra konu man ég litríka, nýkomna frá Bandaríkjunum til að leita upprunans. Hún talaði jöfnum höndum íslensku og ensku og kynnti sig sem skáld og leikkonu: „I’m an actress on radio and stage.“ Svona nokkuð fannst manni ægilega fyndið. Þegar ég fluttist heim til Íslands eftir nám í útlöndum árið 1974 og kom aftur á Borgina var hjónafílingurinn að mestu horfinn og yngra fólk fyllti staðinn, nýir leikarar á vettvangi en sviðsmyndin sú sama.“ Worth visiting Það var haustið 1971 að Jón Þorsteinsson rataði í fyrsta sinn á barinn á Borginni, rétt að verða tvítugur, nýfluttur til Reykjavíkur norðan úr landi og orðinn starfsmaður á sjúkrahúsi: „Þá þegar átti ég mér dálitla reynslu með öðrum karlmönnum, hafði líka verið skiptinemi í Bandaríkjunum það sögulega ár 1969 og vissi alveg hvað ég vildi. Þegar í bæinn kom fór ég strax að leita að mínum líkum og fann þá í Klúbbnum við Borgartún og á Óðali við Austurvöll, en betra var að finna sér stráka í Glaumbæ við Fríkirkjuna því staðurinn var stór og meiri friður til að nálgast sína líka. Oftast fór ég þó á Borgina um helgar og þar fann ég mitt tengslanet og kynntist mörgum. Sumir urðu góðir kunningjar, aðrir vinir til lífstíðar en ég man líka eftir mörgum sem ég kynntist aldrei. Oft var margt um manninn og hommarnir stundum allt að helmingur gestanna sem töldu 100–150 á kvöldi. Langflestir þessara manna lifðu mjög aktífu kynlífi og þeir urðu á sinn hátt bjargvættir mínir í lífinu. Með þeim lærði ég að þekkja sjálfan mig.“ Jón minnist ekki bara Íslendinga á barnum, heldur líka homma í hópi útlendinga, enda ekki fyrir tilviljun að þeir rötuðu þangað. Í Spartacus International Gay Guide, ferðabiblíu homma, voru tveir staðir í Reykjavík sagðir „worth visiting“ á áttunda áratug aldarinnar, Sundlaug Vesturbæjar og Hótel Borg, „the rear bar“. Brátt var Jón orðinn fastagestur á Borginni en þurfti stundum að gera ráðstafanir til að komast inn. „Ég vann oft vaktavinnu til miðnættis og þá hringdi maður niður eftir og sagðist ekki koma fyrr en eftir lokun. Því var tekið af skilningi og mér hleypt inn um bakdyrnar refjalaust. Yfirleitt var það fyrir orð kvennanna í fatahenginu því að þær reyndust okkur hommunum vel að ógleymdri henni Hjördísi á barnum. Allar urðu þær vinkonur okkar. Ég man eina í fatahenginu sem alltaf gekk með hárkollu, dálítið spes, og ég man aðra þar sem hafði eignast dóttur með Ameríkana og var enn að bíða eftir unnustanum. Aldrei kom hann.“ Þar var gerður mannamunur Hvernig komu svo gestirnir þeim nýkomna fyrir sjónir? „Hommarnir voru úr ýmsum áttum,“ segir Jón, „ungir piltar og miðaldra karlar, menntaðir menn og fáfróðir unglingar, virðulegir borgarar og alþýðustrákar. Ég man líka vel eftir togarasjómönnum sem sóttu sitt þangað. Þeir voru góðir elskhugar. Aldrei kynntist ég að ráði amerísku hermönnunum sem sóttu staðinn, en þetta voru fínir strákar sem áttu stundum bágt því þeir gátu 56
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.