Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2016, Page 63

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2016, Page 63
og samfélaginu okkar til skammar. Það voru líka margar skoðanir uppi um gönguleiðina. Margir töldu of langt að ætla að labba allan Laugaveginn. Margsinnis var lagt til að stytta leiðina og ganga til dæmis frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíginn að Laugavegi 3 þar sem Samtökin ‘78 voru til húsa. Ég sagði alltaf nei! Ef við ætluðum að gera þetta yrði það gert af fullum krafti. Úrtöluraddirnar voru margar þetta haustið en frá þeim voru margar undantekningar, eins og Þorvaldur. Hann var samt maður með báða fætur á jörðinni því hann fór strax að hugsa um peninga. Okkur var ljóst að hátíð af þessari stærðargráðu gæti falið í sér fjárhagslega áhættu sem gæti stefnt starfsemi Samtakanna ‘78 í hættu. Þess vegna lagði ég til að Hinsegin dagar yrðu sjálfstætt félag með sérkennitölu. Það var í raun gæfuspor því hátíðin þarf að vera sjálfstæð. Þ: Það sem Heimir nefnir hér er eitt af því sem mér finnst einkenna allt grasrótarstarf; að verða að eyða tíma og kröftum í að mæta úrtöluröddum í eigin hópi. Þessar raddir eru alltaf þarna en berast heiminum sjaldnast til eyrna. Ég verð Heimi seint nógu þakklátur fyrir að setja stefnuna á göngu niður allan Laugaveginn og kröfuna á mikla skrautsýningu. Það vissi enginn hver árangurinn yrði en ég ákvað að trúa á þetta því það skiptir mig máli að trúa á það ómögulega og fara stundum fram úr sjálfum mér. Jafnvel þótt ég bíði ósigur. H: Það er algjör tilviljun að á sama tíma kom boð til Samtakanna ‘78 um þátttöku á ársþingi InterPride sem þá var haldið í fyrsta skipti í Evrópu. InterPride eru samtök pride-hátíða í heiminum en þetta var í fyrsta sinn sem ársþing þeirra var haldið utan Bandaríkjanna. Ég var sendur sem fulltrúi Samtakanna, eða hinnar nýju hátíðar okkar, á þingið í Skotlandi og það var þarna í Glasgow sem ég fékk hugljómun um hvernig gangan gæti orðið í Reykjavík. Hvað lærðirðu í Glasgow? H: Ég sótti margar vinnustofur sem kenndu hvernig átti að skipuleggja gleðigöngur, hvernig átti að vinna með lögreglunni, tryggja öryggi, sækja um leyfi og svo framvegis. Þetta voru tæknileg atriði sem frændur okkar og frænkur í Bandaríkjunum voru búin að læra fyrir guðs lifandi löngu hvernig ætti að gera og búin að kenna hvert öðru. Ég lærði að við þyrftum að gefa fólki flotta titla, að við þyrftum að skipta með okkur verkum og ekki ætlast til of mikils af neinum. Þ: Og þetta rataði inn í hefðir Hinsegin daga; þar sátu „stjórar“ á öðrum hverjum stól: Göngustjóri, sölustjóri, fjármálastjóri, gas- og blöðrustjóri, sviðsstjóri, verkstæðisstjóri, öryggisstjóri og ritstjóri svo fátt eitt sé nefnt. Þannig fundu margir til mikilvægis síns og það með réttu, allt framlag skipti máli en líka það að hver stæði við það sem hún eða hann hafði lofað að gera og stæði við sitt með stolti. Því við vorum að biðja fólk um að gera eitt og annað fyrir ekki neitt. Hluti af þessari góðu brellu var að þefa uppi það fólk sem fann sig í grasrótarstarfinu og bjóða því ábyrgð og strax á fyrsta ári Hinsegin daga varð til „samstarfsnefnd“ sem var öllum opin. Þar nutum við góðs af því að ungliðahópur Samtakanna ´78 var óvenju öflugur á fyrstu árum aldarinnar og þau reyndust Hinsegin dögum betri en engin! Ég gleymi því seint þegar við blésum upp fyrsta blöðrusnák gleðigöngunnar með hjálp ungliðanna uppi á 4. hæð á Laugavegi 3 og þokuðum honum svo niður stigana og út á götu klukkutíma fyrir göngu. Enn skil ég ekki hvernig tókst að koma 24 metrum af lúðuneti, gasi og partíblöðrum niður þessa ómögulegu leið. En oft snúast manns bestu minningar um fyrirhyggjuleysið! H: Svo rann dagurinn upp. Laugardagurinn 12. ágúst 2000. Við settum gönguna saman við Rauðarárstíg, vestan við lögreglustöðina. Allt var mjög skipulagt, búið að raða atriðunum upp og kríta staðsetningu fyrir hvern vagn. Eitt sem ég lagði mikla áherslu á var að við yrðum að útbúa að minnsta kosti 300 metra langa göngu vegna þess að það væri ekki til sú myndavél í heiminum sem næði henni allri í einu skoti. Þess vegna, sama hvernig færi og þótt enginn myndi mæta nema við, myndu allar ljósmyndir í sögunni sýna gönguna eins og hún væri risastór. Í öllum hasarnum vorum við svo upptekin við að skipuleggja að enginn hafði rænu á að kíkja fyrir hornið á Hlemmi niður Laugaveginn til að skoða mætinguna. Almenningur, fjölskylda og vinir voru svo kurteis að þau vildu ekki ónáða okkur við samsetninguna. Þegar við lögðum svo af stað klukkan tvö á eftirmiðdegi, með mótorhjólalögregluna í fararbroddi, og komum fyrir hornið stoppaði í mér hjartað. Okkur biðu um 12.000 manns. Ekki til að stríða okkur. Ekki til að berja okkur. Ekki til að gera lítið úr okkur, heldur til að ganga með okkur. Þá vissi ég að okkur hefði tekist þetta og tárin streymdu niður kinnarnar. Þ: Hér áttuðum við okkur á því að nú var þjóðin loksins mætt og í mínum augum var hún að biðja um sátt. Fyrstu árin skynjaði ég það sterkt að gleðigangan var athöfn sáttar og fyrirgefningar. Eins og ég sagði áðan þá höfðu fjölskyldur okkar ekki sýnt mikla reisn og stuðning fyrr á árum; við höfðum lengi verið óhreinu börnin í íslenska ættarsamfélaginu, svo dapurlega sem það hljómar, og því varð gleðigangan tákn fyrirgefningar og sáttar án þess að það væri fært í orð. Enda var mikið um tár í göngunni fyrstu árin; við vorum að seilast til þeirrar virðingar sem við áttum sjálfsagðan rétt á. H: Þetta er rétt sem Þorvaldur segir um sáttina. Lykilhugtak göngunnar var og hefur verið stolt – að vera stolt af því hver við erum – og við buðum ættingjum okkar að vera stolt með okkur, ekki af okkur. Enn þann dag í dag kemur alltaf eitthvert augnablik í hverri göngu þar sem ég fer að gráta af þakklæti og stolti. Þ: Um leið má íhuga það að samfélag samkynhneigðra bar sinn hlut af sökinni á því hvað íslenska fjölskyldan var fjarlæg lengi vel. Sú var tíðin að við héldum fólkinu okkar frá okkur, gáfum því litla hlutdeild í ástum okkar og tilfinningalífi. Sú saga snýst um flókið gangverk kúgunar og sjálfskúgunar og þá varð gleðigangan, öllum að óvörum, leið til að brjótast út úr því mynstri. Hvernig kom það til að þú fórst að vinna við hátíðina, Eva María? Eva (E): Eins og gerist oft í hreyfingum sem snúast um hjartans mál þá sogast vinir og ættingjar inn í starf sem stendur manni nærri. Ég byrjaði út af konunni minni, Birnu, sem hafði verið þátttakandi í göngunni og hátíðinni í þónokkurn tíma. Fyrstu árin var ég í samstarfsnefnd hátíðarinnar og sinnti þar ýmsum störfum en árið 2011 bauð ég mig fram í stjórn félagsins. Eitt sem vakti athygli mína þegar ég hóf störf var hvað veltan var lítil meðal sjálfboðaliða. Þau sem voru í stjórn og samstarfsnefndum höfðu sinnt sínum störfum í mörg ár, jafnvel áratug, og voru orðin algjörir sérfræðingar á sínu sviði. Þ: Við vorum snemma mjög lagin við að nýta sérsvið fólks. Til dæmis var Heimir Már þaulreyndur fjölmiðlamaður sem þekkti marga og vissi þar af leiðandi hvaða boðleiðir giltu til að þoka málum áfram. Þegar Eva María hóf störf hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Eldingu opnaðist enn önnur leið og óvænt; við fórum að bjóða upp á regnbogasiglingu um Sundin sem varð strax einn af vinsælustu viðburðum okkar. 63

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.